SKÝRSLAN: Stúkan hristist á Lambhagavellinum
Hvað réði úrslitum?
Fram voru áræðnari og meira 'clinical' í sínum leik og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Þeir vörðust vel og voru hættulegir þegar þeir sóttu. Afturelding komu sterkir út í seinni hálfleikinn en náðu ekki þessu mikilvæga þriðja marki í leiknum á meðan Fram gerðu það og gerðu þar með út um leikinn.
Bestu leikmenn
1. Kennie Chopart
Var virkilega öflugur í kvöld. Opnaði leikinn með góðu marki og var öflugur varnarlega. Bjargaði meðal annars á línu í seinni hálfleiknum og verðskuldar þessa nafnbót.
2. Viktor Freyr Sigurðsson
Var virkilega öflugur í markinu hjá Fram í kvöld. Varði allt sem á hann kom og var mjög öruggur í sínum leik.
Atvikið
Þriðja mark Fram. Það virðist vera brotið á Aroni Jóhannessyni í aðdragandanum og það búast allir við flautinu en Freyr Sigurðsson og Vuk Oskar vaða saman upp einir á móti Arnari Daða í marki Aftureldingar og skora auðvelt mark. Aldrei kom flautið og Frammarar fagna.
Hvað þýða úrslitin?
Fram fara í sex stig og lyfta sér upp í 6.sæti deildarinnar á meðan Afturelding sitja í 9.sætinu með sín fjögur stig.
Vondur dagur
Mig langar ekki útnefna neinn með vondan dag í kvöld. Vantaði meira bit í sóknarleik Aftureldingar svo mögulega nefni ég það bara.
Dómarinn - 6
Ég er á báðum áttum hvort að ég sé sammála því að dæma ekkert í þriðja markinu. Helgi Mikael leyfði smá hörku í kvöld sem ég kunni að meta. Mér fannst fyrir utan þetta vafaatriði þessi leikur bara nokkuð vel dæmdur.




