SKÝRSLAN: Vítaklúður reyndist heimamönnum dýrt
Hvað réði úrslitum?
Í stuttu máli er Ólafur Kristófer það sem stóð á milli liðana í kvöld. Mikill baráttuleikur og jafnræði í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik taka Njarðvíkingar öll völd en frábær markvörður Fylkis heldur þeim á floti með að verja vítaspyrnu og dauðafæri. Bæði mörk leiksins heldur klaufaleg en það er við því að búast í upphafi móts að lið séu að stilla saman strengi og þá læðast svona móment inn á milli.
Bestu leikmenn
1. Ólafur Kristófer Helgason
Bjargaði stigi fyrir sína menn. Varði víti og hvert dauðafærið á fætur öðru hér í kvöld. Var hreint magnaður í síðari hálfleiknum og ástæða þess að Fylkir gengur úr þessum leik með stig.
2. Amin Cosic
Skemmtikraftur í liði Njarðvíkur. Skoraði gott mark og var sífellt að ógna. Hrikalega spennandi leikmaður sem verður skemmtilegt að fylgjast með í sumar.
Atvikið
Nóg búið að nefna vítaspyrnuna sem Ólafur Kristófer varði en seinna í leiknum varði hann dauðafæri frá Valdimar Jóhannssyni eftir frábæra fyrirgjöf frá Svavari Erni Þórðarsyni. Dudek varlsa á ögurstundu á fjærstönginni.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið fá einn punkt á töfluna eftir fyrstu umferð.
Vondur dagur
Dominik Radic hefði getað klárað þennan leik fyrir Njarðvík í kvöld af vítapunktinum en ömurlegt víti. Tekur titilinn fyrir það en hann vonandi kemur bara tvíefldur til leiks stax í næstu umferð.
Dómarinn - 6
Heilt yfir þá var þetta bara þokkalegt. Sum atriði sem hægt er að pikka út og spyrja spurninga en ekkert stórvægilegt. Vítaspyrnudómurinn hárréttur að mínu mati.



