Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mjólkurbikar kvenna
Boginn
Frábært veður bæði innan og utanhúss, svona er þetta alltaf fyrir norðan!
Þór/KA
Þór/KA
6 - 0
KR
KR
Sandra María Jessen 15'1 - 0Amalía Árnadóttir 27'2 - 0Sandra María Jessen 38'3 - 0Margrét Árnadóttir 54'4 - 0Emelía Ósk Kruger 64'5 - 0Bríet Fjóla Bjarnadóttir 87'6 - 0
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Skemmtileg nálgun en stórt tap

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA er miklu betra lið og það var vitað fyrir leikinn. KR reyndi að spila sinn leik og fékk það nokkrum sinnum í bakið þegar Bestu deildar liðið refsaði Lengjudeildarliðinu. Þór/KA fékk miklu fleiri hættuleg færi í leiknum og nokkuð sanngjarnar lokatölur. KR spilaði nokkuð djarft í dag og varð leikurinn skemmtilegri fyrir vikið, en það kostaði mörg mörk í andlitið.

Bestu leikmenn

1. Henríetta Ágústsdóttir

Fannst Henríetta frábær á miðsvæðinu í dag, góðar sendingar og var alltaf að leita fram á við. Lagði upp eitt mark og átti stóran þátt í miklu fleiri mörkum.

2. Hulda Ósk Jónsdóttir

Lagði upp öll þrjú mörkin í seinni hálfleiknum, nýtti sér að varnarlína KR var svolítið alls staðar og hvergi.

Atvikið

Fyrsta markið. Sandra María kom boltanum í netið og þá fannst mér heimakonur róast og taka leikinn alveg yfir.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA er komið í 8-liða úrslitin en KR einbeitir sér nú að því að festa sig í Lengjudeildinni.

Vondur dagur

Vörn KR fær þetta í dag, langaði að nota orðið varnarlína en þetta var of sjaldan í línu. Stundum náðist góð lína og þá fór flaggið á loft, en of oft sluppu öflugir leikmenn eins og Sandra María og Hulda Ósk of auðveldlega í góðar stöður. Góð æfing fyrir gestina að sjá hvað getur gerst ef allir eru ekki í 100% takti.

Dómarinn - 8

Ekkert brot sem átti að vera gult og eitt tilkall til vítaspyrnu sem mér fannst Elías lesa rétt. Ekki erfiður leikur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.