Fotbolti.net
@fotboltinetSigurður Bibbi Sigurðarson
Lengjudeild karla
Boginn
Þór
Þór
2 - 4
Keflavík
Keflavík
0 - 15' Gabríel Aron Sævarsson0 - 222' Sindri Snær MagnússonSigfús Fannar Gunnarsson 27'1 - 21 - 330' Gabríel Aron Sævarsson1 - 443' Gabríel Aron SævarssonIngimar Arnar Kristjánsson 74'2 - 4
Dómari: Sveinn Arnarsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
2 - 4 sigur Keflavíkur sannfærandi
94. mín
Þung sókn
Þórsarar sækja þessar síðustu mínútur og eftir góða sókn þá náði Aron fínu skoti en framhjá.
90. mín
Viðbót
4 mínútum bætt við.
Keflavík
90. mín
Seinna gula - rautt

Frans Elvarsson

Frans fyrirliði fær gult fyrir að fara aftan í Aron Inga.
Þór
89. mín
InnPeter Ingi Helgason
ÚtJuan Guardia Hermida
Skipting
Varnarmaður út - sóknarmaður inn.. spurning hvort þetta sé ekki of seint.
84. mín
Aukaspyrna
Aukaspyrna frá vinstri sem endar framan við Balde sem nær ekki að pota boltanum inn. Stórhætta.
83. mín
Færi
Balde sendir Ingimar í gegn og hann kemst einn upp að vítateig þar sem hann ákveður að skjóta í stað þess að fara lengra. Skotið máttlaust og Sindri á ekki í vandræðum með það.
Þór
81. mín
Horn - Þór

Ingimar Arnar Kristjánsson

Aron Ingi tekur horn frá hægri beint á Ingimar sem skallar beint upp í loftið og í fangið á Sindra. Þegar Sindri ætlar að kasta fram nikkar Ingimar boltanum úr höndunum á honum og uppsker spjald.
Keflavík
80. mín
InnAri Steinn Guðmundsson
ÚtEiður Orri Ragnarsson
Skiptingar hjá Keflavík
Keflavík
80. mín
InnStefán Jón Friðriksson
ÚtGabríel Aron Sævarsson
Skiptingar hjá Keflavík
77. mín
Aukaspyrna.
Aron með aukaspyrnu inn í teig sem Keflavík skallar í burtu. Eftir liggur Eiður en stendur upp og hristir þetta af sér. Þarf samt að yfirgefa völlinn í smá tíma.
77. mín
Líf í heimamönnum
Skiptingar í seinni hálfleik hafa gert gagn því heimamenn eru hressari og ákafari.
75. mín
Dauðafæri
Aron Ingi sendir á Balde sem sendir strax aftur á Aron sem er kominn inn í teig. Aron leggur boltann fyrir sig og skýtur upp í vinstra hornið en Sindri vel á verði og ver.
Þór
74. mín
2 - 4

Ingimar Arnar Kristjánsson

Ingimar fær sendingu inn í teiginn og Sindri kemur á móti honum. Ingimar lyftir boltanum snyrtilega yfir hann og í netið. Vel gert.
Keflavík
73. mín
Góð sókn

Eiður Orri Ragnarsson

Keflavík pressar á Sverri sem sendir á Aron sem sendir á Einar sem á slæma sendingu sem Kefvíkingar nýta sér til að snúa vörn í sókn. Eiður er dæmdur rangstæður og er ósáttur og sendir boltann í burtu og fær spjald. Þarna skapaðist hætta og óþarfi hjá Eið að vera rangstæður.
71. mín
Færi
Ingimar og Sindri lenda í kapphlaupi og ná á sama tíma í boltann sem skrúfast upp úr návíginu í innkast.
Þór
71. mín
brot

Ýmir Már Geirsson

Ýmir fær spjald
70. mín
Hálffæri
Einar sendir Sigfús í gegn en Sindri sér við honum og ver niðri í fjærhorninu.
68. mín
Skiptingar
Bæði Keflavík og Þór reyna að hressa upp á leikinn með því að skipta inn á ferskum fótum.
Þór
68. mín
InnÝmir Már Geirsson
ÚtClement Bayiha
Keflavík
68. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtMuhamed Alghoul
Keflavík
68. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtSindri Snær Magnússon
Þór
68. mín
InnÝmir Már Geirsson
ÚtClement Bayiha
66. mín
Aukaspyrna - Þór
Þór fær aukaspyrnu rétt utan teigs. ARon og Balde stilla sér upp til að taka. 20 metrar. Balde skýtur rétt framhjá.
65. mín
Dauðafæri
Ingimar fær sendingu inn fyrir vörnina og rekur boltann inn í teig. Guðjón rennir sér fyrir skotið og ver. Mjög góð vörn.
Keflavík
63. mín
Brot

Frans Elvarsson

Frans fær gult fyrir að stöðva hraða sókn hjá Þór þar sem Balde var á skriði upp völlinn.
61. mín
Sigraðir!!?
Hálftími eftir og ákefðin í Þórsurum er lítil. Þeir þurfa þrjú mörk en virðast ekki ætla að sækja þau. Keflvíkingar sáttir að liggja til baka
60. mín
Horn
Hornið svífur yfir alla þvöguna og deyr út.
60. mín
Frábær sókn
Gabríel fær boltann upp í vinstra hornið og leggur hann vel fyrir Muhamed sem á gott skot en Aron ver í horn.
59. mín
Keflavík sækir
Keflavík er ekkert hætt að sækja og sækja upp vinstra megin. Ragnar hirðir boltann af þeim þar.
58. mín
Er líf eftir dauðann
Þórsarar eru brattari þessa stundina. Þeir hafa náð að pressa gestina aðeins en Sindri hirðir sem fyrr fyrirgjafir.
56. mín
Efnileg sókn Þórs
Þórsarar brunuðu upp vinstra megin þar sem Sigfús leggur hann út á Einar sem sendir aftur á Sigfrús, Aron Ingi skiptir yfir til hægri þar sem Balde sendir Clement í gegn en hann missir boltann aftur fyrir.
53. mín
Gott skot
Sigfús fer einn á einn á Axel vinstra megin og fer til hægri rétt við vítateiginn og snýr boltann í átt að markinu en rétt framhjá.
52. mín
Fyrirgjafir Þórs
Rétt eins og í upphafi fyrri hálfleiks enda allar fyrirgjafir Þórs í höndunum á Sindra. Þeir verða að gera betur ef það á að koma eitthvað út úr fyrirgjöfunum.
Þór
51. mín
Brot

Ibrahima Balde

Balde rífur aftan í leikmann Keflavíkur
48. mín
Horn
Þór fær horn fram vinstri og verða að gera eitthvað. Aron hittir á Clement en varnarmaður nær að skalla frá. Annað horn. Aftur Aron en nú skalla Keflvíkingar í burtu
Keflavík
47. mín
Brot

Sindri Snær Magnússon

Sindri fór aftan í Aron.
Þór
46. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtYann Emmanuel Affi
Þórsara gera tvöfalda skiptingu
Siggi nýtir hálfleikinn til að endurskipuleggja liðið og gerir tvær breytingar til að hressa upp á leikinn. Tveir ungir og hraðir koma inn á og það á að leggja allt undir.
Þór
46. mín
InnSverrir Páll Ingason
ÚtAtli Þór Sindrason
Þórsara gera tvöfalda skiptingu
Siggi nýtir hálfleikinn til að endurskipuleggja liðið og gerir tvær breytingar til að hressa upp á leikinn. Tveir ungir og hraðir koma inn á og það á að leggja allt undir.
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleikur hefur verið eign Keflvíkinga sem hafa staðið sig mjög vel. Þórsarar eru aftur á móti heillum horfnir og vita ekkert hvernig þeir eiga að sækja á Keflvíkinga sem eiga svör við öllum tilraunum heimamanna. Það verða mörk í seinni hálfleik.
Keflavík
43. mín
1 - 4

Gabríel Aron Sævarsson

Ásgeir Páll röltir upp völlinn með boltann, enginn fer í hann þannig að hann getur gert það sem hann vill. Laumar snilldarsendingu inn á Kára sem leggur boltann fyrir markið og aftur fær Gabríel góða sendingu á markteig og aftur skorar hann.
Keflavík
42. mín
InnGuðjón Pétur Stefánsson
ÚtGunnlaugur Fannar Guðmundsson
Keflavík gerir skiptingu
Gunnlaugur treystir sér ekki til að halda áfram og yfirgefur völlinn.
Þór
41. mín
Gult fyrir kjaft

Sigurður Heiðar Höskuldsson

Siggi biður eða krefst spjalds á Keflvíking og uppsker spjald, en fær það reyndar bara sjálfur.
40. mín
Báðir staðnir upp
Sem betur fer fór þetta betur en á horfði og eru báðir leikmenn staðnir upp.
38. mín
Alvarlegt samstuð - beðið eftir sjúkrabíl
Balde liggur óvígur eftir að hafa lent í samstuði við Gunnlaug Fannar. Kallað er eftir lækni eða hjúkrunarfræðingi á staðnum.
34. mín
Aukaspyrnan hættuleg
Aron tekur aukaspyrnuna inn í teig og þar er mikill barningur og nokkur hálffæri en að lokum er dæmd rangstaða.
Keflavík
33. mín
Meiðsl

Marin Brigic

Sigfús æðir upp völlinn, reynir að vippa boltanum inn á Balde en fær hann aftur og skallar boltann inn fyrir en er tekinn niður af Marin, sem fær gult spjald, og meiðist smá, en jafnar sig.
Keflavík
30. mín
Frábær sókn

Gabríel Aron Sævarsson

1 - 3 Frábær sókn upp vinstri kantinn þar sem Kári, Ásgeir og Muhamed léku vörn Þórs grátt. Muhamed laumaði svo boltanum inn Ásgeir sem renndi boltanum á Gabríel sem átti auðvelt með að skora annað mark sitt.
Þór
27. mín
1 - 2

Sigfús Fannar Gunnarsson

Balde kemst upp vinstra megin og leikur framhjá Axel. Kemur boltanum fyrir á Sigfús sem á skot sem Sindri ver en missir boltann út í teiginn þar sem Sigfús er fyrstur að átta sig og leggur boltann í markið. 1 - 2 og aftur leikur.
Keflavík
22. mín
0 - 2 Keflavík skorar aftur

Sindri Snær Magnússon

Eftir stórsókn Þórsara færa Keflvíkingar sig framar og Sindri Snær fær boltann inni í teig vinstra megin frá Eiði, sem er þá kominn með tvær stoðsendingar, og á laust skot sem virtist fjarri því að verða mark en boltinn endar í fjærhorninu. Þarna hefði Aron átt að gera betur, a.m.k. frá mér séð.
21. mín
Dauðafæri
Einar Freyr sendir á Clement á miðjunni og fær hann aftur við vítateiginn snýr á varnarmann og leggur boltann fyrir Sigfús sem þrumar yfir.
17. mín
Þór og þolinmæði
Þórsarar héldu boltanum í öftustu línu og létu hann ganga sín á milli þar en Keflvíkingar lokuðu vel á sendingar inn á miðjuna. Því lauk með langri sendingu sem endaði hjá Sindra. Þetta varð til þess að Keflvíkingar bökkuðu aðeins og Þórsarar færðu sig framar og náðu meiri stjórn á boltanum. Fá að halda honum töluvert en komast lítið áleiðis gegn skipulögðum Keflvíkingum. Balde fékk boltann upp í hægra hornið og leggur hann á Sigfús sem nær sendingu inn í teig en Aron setur boltann framhjá. Þarna loksins náði fyrirgjöf á samherja. Sindri hefur átt þær allar hingað til.
15. mín
Hætta - skot
Orri tekur illa á móti sendingu, sem hefði getað verið betri, og missir boltann Kára sem tekur á rás að marki og á skot sem Aron ver í horn. Það verður ekkert úr horninu.
11. mín
Pressa frá Keflavík
Þórsurum gengur erfiðlega að koma boltanum frá marki og á samherja. Það veldur því að Keflvíkingar vinna boltann á vallarhelmingi Þórs ítrekað og sækja strax að marki. Ef ekki á illa að fara þurfa Þórsarar að bæta sendingarnar og halda boltanum innan liðsins.
9. mín
Líf í Þórsurum
Sigfús vinnur boltann á miðjunni og sendir upp í horn hægramegin á Clement sem kemur honum fyrir en Sindri K. grípur boltann örugglega.
7. mín
Smá hætta
Axel Ingi fær sendingu upp í hægra hornið en varnarmenn Þórs koma fyrirgjöf aftur fyrir og í horn. Ekkert verður úr horninu.
Keflavík
5. mín
Mark

Gabríel Aron Sævarsson

Maður var varla búinn að senda síðustu færslu er Gabríel fær góða sendingu frá Eiði inn í teig og afgreiðir hana snyrtilega í netið. 0 - 1
4. mín
Rólegt
Leikurinn byrjar fremur rólega, barist um miðjuna en lítið að frétta fram á við. Keflavík örlítið meira með boltann en Þórsarar bíða og loka.
1. mín
Leikurinn er byrjaður.
Keflavík byrjar með boltann og smella honum upp í hornið og aftur fyrir
0. mín
Byrjunin
Þórsarar spila í átt að miðbæ Akureyrar - í suðurátt og Keflvíkingar þá væntanlega í hina áttina, það er betra, í áttina að Norðurtorgi
0. mín
Bikarinn
Bæði lið spiluðu í 16 liða úrslitum í bikarnum í síðasta mótsleik sínum. Bæði lið breyttu liðum sínum lítillega en komust upp með það og komust bæði lið áfram, Þór sótti sigur á Selfossi og Keflavík vann góðan heimasigur á Víkingunum frá Ólafsvík, sem komust þó lengra en nafnar þeirra úr Reykjavík þetta árið. Bæði lið fengu útileik í drættinum í 8 liða úrslitum. Þórsarar ferðast vestur á firði og etja kappi við Vestra en Keflavík þarf að taka Reykjanesbrautina í Garðabæinn og spila við Stjörnuna þar. Báðir leikirnir eru settir á 18. júní.
0. mín
Byrjunarliðin klár
Byrjunarliðin eru klár Þórsarar gera eina breytingu frá því þeir lögðu Leikni en Vilhelm Ottó fer út og inn kemur Yann Emmanuel Affi. Keflavík setur þá Gunnlaug Fannar og Frans fyrirliða Elvarsson inn frá en þeir sem detta út frá tapleiknum við Þrótti eru Ígnacio Heras Anglada og Ernir Bjarnason.
0. mín
Byrjunin á mótinu
Liðin hafa leikið tvo leiki hvort á mótinu hingað til. Keflavík hóf leiktíðina með því að vinna í Grafarvoginum er þeir heimsóttu Fjölni en töpuðu svo heima fyrir Þrótti. Niðurstaða 3 stig eftir tvo leiki Þórsarar aftur á móti tók á móti HK í sínum fyrsta leik og gerði jafntefli í Boganum. Í síðasta leik var haldið í Breiðholtið hið efra og þangað sóttu Þórsarar 3 stig. Niðurstaða 4 stig eftir tvo leiki. Það er því nokkuð undir í leiknum í dag því liðið sem sækir 3 stig í dag er komið á toppinn í deildinni. Það verður því hart barist og Þórsarar ætla örugglega að sækja þessi þrjú stig sem hafa verið torsótt síðustu ár á heimavelli gegn Keflavík
0. mín
Leikir liðanna
Þór og Keflavík hafa háð marga hildi í gegnum tíðina. Óhætt er að segja að Keflavík hafi vinninginn í innbyrðis viðureignum. Keflavík hefur unnið 8 leiki, jafntefli 4 sinnum og Þór hefur tvisvar landað sigri. Síðasti heimasigur Þórs gegn Keflavík var í júlí 2011. Eftir þann leik hafa liðin spila 6 leiki á Akureyri og fjórum sinnum enduðu þeir með jafntefli en tvisvar fóru Keflvíkingar sigri hrósandi suður með öll stigin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.