Leik lokið!
Sanngjarn sigur ÍBV í hræðilegu fótboltaveðri. KR stelpur náðu eiginlega ekki að skapa neina hættu og varla líklegar til að skora.
84. mín
Rakel með fyrirgjöf inn á teig ÍBV en boltinn dettur í gegnum allan pakkann og aftur fyrir.
83. mín
Anna María reynir skot af löngu fær en Guðný stóð nokkuð framarlega en hún náði að grípa boltann. Ekki vitlaus tilraun.
82. mín
Lina Berreh kemur með fyrirgjöf inn á teig ÍBV en þær ná að hreinsa í innkast.
79. mín
Góð sókn hjá KR. Anna María kemur með frábæra fyrirgjöf á Kötlu en hún nær ekki góðu skoti á markið.
77. mín
InnTanja Harðardóttir
ÚtAllison Grace Lowrey
77. mín
InnErla Hrönn Unnarsdóttir
ÚtAllison Patricia Clark
76. mín
ÍBV í færi!
Edda Dögg með lúmska sendingu í gegn á Allison Lowreyn en Helena gerir virkilega vel í marki KR og ÍBV fær horn.
75. mín
KR stelpur eiga í erfiðleikum með að komast upp völlinn og hvað þá að skapa sér eitthvað að ráði.
73. mín
InnEmilía Ingvadóttir
ÚtÍris Grétarsdóttir
73. mín
InnErna Sólveig Davíðsdóttir
ÚtSandra Voitane
73. mín
InnMagdalena Jónasdóttir
ÚtEmbla Harðardóttir
69. mín
Geggjað mark hjá Olgu!!
Olga Sevcova (stoðsending: Avery Mae Vanderven)
Avery á langa sendingu fram á Olgu. Hún nær að fara fram hjá Þórey Björk og tekur skotið og það smellur upp í vinsta horninu. Frábærlega gert hjá Olgu þarna og þetta virðist vera bara algjör einstefna.67. mín
ÍBV fæ horn
Vel spilað hjá Eyjakonum. Olga kemur með sendingu í gegn á Allison Lowrey sem kemur honum út í teiginn á Allisons Clark. Hún nær að fara upp að endalínu og reynir stutta fyrirfjöf á Viktoiju en Íris nær að koma boltanum í horn.
62. mín
InnRagna Sara Magnúsdóttir
ÚtHelena Hekla Hlynsdóttir
61. mín
Kara reynir sendingu í gegn á Kötlu en Guðný er vakandi og er fyrst á boltann.
60. mín
3-0!!
Allison Grace Lowrey (stoðsending: Olga Sevcova)
Olga með geggjaða hornspyrnu beint á Allison Lowrey sem er ein og óvölduð inn á teig KRinga og hún stangar boltann í netið yfir Helenu í marki KR.59. mín
InnKoldís María Eymundsdóttir
ÚtEva María Smáradóttir
58. mín
Allison Clark með flott sko utan að velli og það smellur í slánni og KR ná svo að koma boltanum í horn.
57. mín
ÍBV fær horn
Allison Lowrey með skotið en Þórey Björk nær að bjarga í horn.
54. mín
KR fær Horn
Kemur fyrirgjöf inn á teig ÍBV en þær ná að hreinsa í horn.
53. mín
InnRagnheiður Ríkharðsdóttir
ÚtHildur Björg Kristjánsdóttir
Hildur neyðist til að fara út af vegna meiðsla.
51. mín
Frábærlega gert hjá Allison Lowrey, sem fer fram hjá tveimur KRingum en svo þegar kom að sendingunni í gegn á Olgu þá er það bara alltof seint og hún er flögguð rangstæð.
45. mín
Þetta er farið í gang aftur. KR hefja leik.
45. mín
ÍBV leiða 2-0 í hálfleik og hafa verið mun beittari. Sjáum hvernig seinni hálfleikurinn verður þar sem KR verður með vindi þá.
45. mín
ÍBV komast í 2-0 rétt fyrir hálfleiksflautið
Avery Mae Vanderven
Hár bolti inn á teig KR og Helena með skelfileg mistök. Hún ætlaði að grípa boltann en missir hann nánast inn en Hildur kemur þá með frábæra björgun en boltinn fer í stöninga og aftur út. Þar er Avery mætt eins og gammur og setur boltann í netið. 2-0 fyrir ÍBV!!42. mín
Eyjakonur komnar yfir!!
Allison Grace Lowrey
Allison Lowrey Tekur frábærlega á móti boltanum og nær að snúa Þórey Björk af sér. Hún virtist vera búin að koma í sér i vonlaust fær en nær að koma boltanum yfir línuna.41. mín
ÍBV í sókn
Eyjakonur ná að spila boltanum á milli sín og endar hjá Avery sem tekur skotið fyrir utan teig en hann fer í slánna og yfir.
35. mín
ÍBV fær aukaspyrnu
Brotið á Olgu og ÍBV fæ aukaspyrnu á ágætis stað. Sandra með aukaspyrnuna en Helena grípur boltann örugglega.
31. mín
Allison Clark með frábæra sendingu í gegn á Olgu en Þórey Björk með algjörlega frábæran varnarleik gegn henni og færið rennur út í sandinn.
29. mín
ÍBV fær aukaspyrnu
Brotið á Avery. Hún kemur með langann bolta inná teig KR og boltinn dettur fyrir Olgu en skotið er slakt.
26. mín
Katla Guðmundsdóttir við það að sleppa í gegn en Avery nær að koma boltanum í burtu.
25. mín
Olga reynir sendinguna í gegn á Allison Lowreyn en Helena í marki KR er á undan í boltann.
23. mín
Eyjakonur eru töluvert sterkari hérna á upphafsmínútunum en hafa kannski náð að skapa sér eitt ágætt færi.
20. mín
KR fær aukaspyrnu
Sandra Voitane Togar í Linu Berrah. Sandra heppin að fá ekki spjald þarna.
16. mín
Vegna tæknilegra örðugleika er lýsingin að hefjast núna. Það er lítið sem ekkert búið að gerast og algjört leiðindaveður sem mun hafa mikil áhrif á leikinn.
1. mín


