
Arsenal, Manchester United og Cristiano Ronaldo koma fyrir í slúðurpakka dagsins sem er þokkalega veglegur í þetta sinn.
Arsenal hefur opnað viðræður við RB Leipzig um slóvenska framherjann Benjamin Sesko (21). Hann er með 67,4 milljóna punda klásúlu í samningi sínum. (Sky)
Manchester United opið fyrir tilboðum í enska miðjumanninn Kobbie Mainoo (20), jafnvel þó liðsfélagi hans, Bruno Fernandes (30) fari í sumar. (I Paper)
Sádi-arabíska félagið Al Hilal mun ráða Simone Inzaghi til starfa eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í dag. (Sky Sports)
Al Hilal hefur átt viðræður um að fá portúgalska sóknarmanninn Cristiano Ronaldo (40) í sumar ef hann ákveður að yfirgefa Al Nassr. (Sky Sports)
Ronaldo mun þó líklega vera áfram hjá Al Nassr, en talið er að hann hafi náð samkomulagi við félagið um nýjan samning. (Foot Mercato)
Chelsea ætlar að biðja Liam Delap (22) um að setja HM félagsliða í forgang fram yfir EM U21 ára landsliða, en hann er að ganga í raðir félagsins frá Ipswich. (Telegraph)
Al Hilal er í viðræðum við AC Milan um kaup á franska vinstri bakverðinum Theo Hernandez (27), en mörg félög munu horfa til hans í sumar. (Fabrizio Romano)
Stjórnarmenn Real Betis munu hitta stjórn Manchester United í næstu viku til að ræða framtíð brasilíska vængmannsins Antony (26). Ólíklegt er að United láni hann aftur út. (Marca)
Franski framherjinn Christopher Nkunku (27) mun yfirgefa Chelsea í sumar. Tottenham hefur þegar spurst fyrir um leikmanninn. (Talksport)
AC Milan ætlar ekki að gera skipti Kyle Walker (35) varanleg og mun hann því snúa aftur til Manchester City þegar lánssamningur hans rennur út í næsta mánuði. Walker á ekki heldur framtíð hjá City. (Fabrizio Romano)
Paris Saint-Germain er búið að blanda sér í baráttuna um Franco Mastantuono (17), leikmann River Plate í Argentínu, en Chelsea, Manchester United og Real Madrid vilja einnig fá hann. (Sky Sports)
Þýska félagið Bayern München hefur boðið Leroy Sane (29) nýtt og endurbætt samningstilboð. (Sky Sports)
Manchester United og Aston Villa hafa áhuga á Lucas Chevalier (23), markverði Lille í Frakklandi. (CaughtOffside)
Athugasemdir