Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild kvenna
AVIS völlurinn
Sól og blýða með smá vind, mjög fín aðstæða
Grótta
Grótta
2 - 1
ÍA
ÍA
0 - 14' Elizabeth BueckersHulda Ösp Ágústsdóttir 67'1 - 1Rebekka Sif Brynjarsdóttir (víti) 93'2 - 1
Dómari: Tomasz Piotr Zietal
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Sextán ára Rebekka Sif hetja Gróttu

Hvað réði úrslitum?

ÍA átti góðan fyrri hálfleik og voru marki yfir. Eftir að lentu þær undir sótti Grótta af jöfnunarmarkið. Þær voru betri í seinni hálfleik og það slökknaði líka á ÍA. Þetta leit allt út fyrir að enda sem jafntefli eftir að Grótta jafna, en þær fá svo víti 93. mínútu og taka öll þrjú stigin.

Bestu leikmenn

1. Rebekka Sif Brynjarsdóttir

Var mjög öflug á miðjunni hjá Gróttu og var ég alltaf að fara velja hana sem efstu tvem leikmenn leiksins. En hún slúttar góðri frammistöðu með að skora úr víti.

2. Hulda Ösp Ágústsdóttir

Hulda átti mjög góðan leik, sérstaklega eftir markið hennar. Hún skapaði mikla hættu fyrir Gróttu og var nálægt því að fá nokkrar stoðsendingar og annað mark.

Atvikið

Það var lítið sem gerðist í þessum leik en aðal atvik leiksins var að sjálfsögðu vítið sem Grótta fékk í lok leiksins og kræktu í öll þrjú stigin.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta fer upp í 5. sæti deildarinnar eftir sigurinn og ÍA fer niður um eitt sæti niður í næst neðsta.

Vondur dagur

Leikmenn ÍA áttu alls ekki góðan seinni hálfleik. Þær misstu tökin á leiknum eftir þær skoruðu snemma fyrri hálfleiks og voru alls ekki líklegar með að komast aftur yfir eftir að Grótta jafnar. Þær missa mikið boltann í miðjunni og nýtuðu ekki færin sín vel þegar þær náðu að komast að teignum.

Dómarinn - 8

Tomasz og teymið stóðu sig vel í dag. Það var lítið sem gerðist, nema vítið í lokinn sem að mínu mati var rétt dæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.