Fotbolti.net
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Lengjudeild kvenna
BIRTU völlurinn
Sól og 12 stiga hiti
Haukar
Haukar
1 - 2
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir 27'1 - 01 - 164' Brookelynn Paige Entz (víti)1 - 269' Brookelynn Paige Entz
Dómari: Bjarni Víðir Pálmason

SKÝRSLAN: Brookelynn Entz kláraði leikinn fyrir Grindavík/Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Mikill baráttuleikur í dag og bæði lið áttu sín færi. Brookelynn Paige átti hins vegar fábæran leik í dag og setti bæði mörk gestanna sem skilaði Grindavík/Njarðvík sigrinum.

Bestu leikmenn

1. Brookelynn Paige Entz

Átti mjög góðan leik í dag, var sífellt ógnandi með boltann og vinnusöm. Setti svo bæði mörk gestanna, öruggt úr víti og annað stórkostlegt mark beint úr efstu hillu!

2. Danai Kaldaridou

Var mjög góð á miðjunni hjá gestunum í dag, nautsterk og góð á boltanum

Atvikið

Grindavík/Njarðvík fá vítaspyrnu sem Brookelynn Entz skorar öruggt úr og jafnar þar með leikinn. Gaf gestunum heldur betur byr undir báða vængi

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík/Njarðvík með sigrinum klifra upp töfluna og eru nú í 3. sæti með 10 stig, jafnmörg stig og KR en með betri markatölu. Haukarnir sitja eftir leikinn í 7. sæti með 6 stig.

Vondur dagur

Engin hér í dag með sérstaklega lélegan leik. Baráttuleikur um allan völl.

Dómarinn - 7

Dómaratríóið var solid í dag og ekkert út á dómgæslunna að setja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.