Real Madrid skráir sig í baráttuna um Wirtz - Brentford í leit að markverði - Sane til Arsenal?
Þróttur R.
4
1
Völsungur
Aron Snær Ingason '14 1-0
1-1 Ismael Salmi Yagoub '17
Liam Daði Jeffs '21 2-1
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson '74 3-1
Viktor Andri Hafþórsson '82 4-1
29.05.2025  -  16:00
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: 10° og skýjað - fínustu aðstæður
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Maður leiksins: Aron Snær Ingason
Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (f)
4. Njörður Þórhallsson
19. Benóný Haraldsson ('59)
20. Viktor Steinarsson
21. Brynjar Gautur Harðarson ('85)
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason ('76)
33. Unnar Steinn Ingvarsson ('76)
80. Liam Daði Jeffs ('59)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson
6. Emil Skúli Einarsson ('85)
8. Baldur Hannes Stefánsson ('76)
9. Viktor Andri Hafþórsson ('76)
10. Jakob Gunnar Sigurðsson ('59)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('59)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Eiður Jack Erlingsson
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira

Gul spjöld:
Kári Kristjánsson ('67)
Jakob Gunnar Sigurðsson ('80)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sannfærandi sigur Þróttar! ÞÞÞ flautar til leiksloka. Heimamenn taka stigin þrjú í dag eftir fjörugan markaleik!

Takk fyrir samfylgdina.
92. mín
Hlynur Þórhalls á góða tilraun fyrir utan teig en Ívar ver frá honum.
90. mín
Klukkan slær 90 en ekkert skilti á loft.
85. mín
Inn:Gestur Aron Sörensson (Völsungur) Út:Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
85. mín
Inn:Emil Skúli Einarsson (Þróttur R.) Út:Brynjar Gautur Harðarson (Þróttur R.)
82. mín MARK!
Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Jakob Gunnar Sigurðsson
Þróttarar gera út af við leikinn! Góð sending í gegn sem endar hjá Jakob Gunnari sem kemst í frábæra stöðu inn á teignum en hann er óeigingjarn og rennir honum til hliðar á Viktor sem klárar!
81. mín
Inn:Elmar Örn Guðmundsson (Völsungur) Út:Ismael Salmi Yagoub (Völsungur)
81. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur) Út:Bjarki Baldvinsson (Völsungur)
Stálmúsin kemur inn á.
80. mín Gult spjald: Jakob Gunnar Sigurðsson (Þróttur R.)
Brýtur á Arnari Pálma.
76. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.) Út:Unnar Steinn Ingvarsson (Þróttur R.)
Tvöföld breyting.
76. mín
Inn:Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.) Út:Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
Aron verið frábær. Eiríkur lætur svo Baldur Hannes hafa fyrirliðabandið.
76. mín
Þórhallur Ísak liggur eftir samstuð við Elfar Árna.
74. mín MARK!
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Brynjar Gautur Harðarson
Þróttarar tvöfalda forystuna! Þvílíkt mark frá varamanninum! Brynjar gefur fína sendingu á Vilhjálm sem snýr með boltann og þrumar honum í netið rétt fyrir utan teig. Snyrtileg afgreiðsla og heimamenn að öllum líkindum að gera út af við leikinn.
72. mín Gult spjald: Ismael Salmi Yagoub (Völsungur)
70. mín
Inn:Davíð Örn Aðalsteinsson (Völsungur) Út:Rafnar Máni Gunnarsson (Völsungur)
Tvöföld skipting.
70. mín
Inn:Ólafur Jóhann Steingrímsson (Völsungur) Út:Gunnar Kjartan Torfason (Völsungur)
67. mín Gult spjald: Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
Brýtur af sér á miðsvæðinu.
66. mín Gult spjald: Xabier Cardenas Anorga (Völsungur)
Fer í svörtu bókina fyrir að ýta í bakið á Aroni Snæ.
65. mín
Fínn kafli núna hjá Völsungum og þeir sækja hornspyrnu.
64. mín
Liam Daði Jeffs sem var að fara út af, er búinn að smeygja sér í gult vesti og stendur vaktina í gæslunni.
59. mín
Inn:Jakob Gunnar Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
Hinn uppaldi Húsvíkingur, Jakob Gunnar, er kominn inn á. Liam hefur skilað góðu verki í dag.
59. mín
Inn:Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Benóný Haraldsson (Þróttur R.)
58. mín
Allar sóknarfærslur og sóknarleikur Völsungs fer í gegnum Ismael og Elfar Árna. Fyrir utan það verðum þeim lítið ágengt á síðasta þriðjungi vallarins.
56. mín
Það má vekja athygli á því að aðstoðarþjálfari ÍR er í stúkunni. En næsti leikur Þróttar er einmitt gegn ÍR-ingum.
53. mín
Heimamenn eru með tak á leiknum en þegar Völsungur kemst í skyndisókn, þá eru þeir mjög opnir til baka.
51. mín
Elfar Árni vinnur einvígi við Eirík og á svo góðan sprett upp kantinn. Hann gefur svo boltann til vinstri, þar sem Ismael er alveg einn en skotið frá honum æfingabolti fyrir Þórhall.
49. mín
Þetta byrjar rólega.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn leiða í hálfleik! ÞÞÞ flautar til hálfleiks. Þróttarar leiða með eins marks forystu í hálfleik og eiga það sannarlega skilið.
45. mín
Ekkert skilti á loft Klukkan slær 45 en ekkert skilti hefur farið á loft. Ímynda mér að uppbótartíminn sé a.m.k. fjórar mínútur, sem skýrist af aðhlynningu sem Bjarki Baldvinsson hlaut áðan.
44. mín
Enn og aftur ver Ívar! Liam kemst inn á teiginn og gefur boltann út á Kára en enn og aftur ver Ívar. Hann er að loka búrinu, eins og staðan er núna.
43. mín
Brynjar Gautur vinnur boltann á miðjunni og gefur frábæra stungusendingu í gegn á Liam en Ívar sér við honum.
41. mín
Dauðafæri! Ismael rennur boltanum til hægri á Elfar Árna inn á teignum sem fær frábært skotfæri en skotið fer rétt framhjá markinu. Fyrsta snertingin var ekki nægilega góð. Elfar Árni klárar þetta færi í 9/10 skiptum.
39. mín
Þróttarar eru að stýra leiknum frá A-Ö þessa stundina.
37. mín
Jakob Héðinn á góðan sprett upp völlinn og reynir skot sem fer í varnarmann og aftur fyrir endamörk.
36. mín
Bjarki Baldvinsson er kominn aftur inn á völlinn
36. mín Gult spjald: Gunnar Kjartan Torfason (Völsungur)
Brýtur á Aroni Snæ.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Bjarki Baldvinsson keyrir upp völlinn en dettur rétt fyrir utan teig Þróttara. Hann fær aðhlynningu.
26. mín
Aron Snær á góða fyrirgjöf sem Liam nær að skalla en Ívar grípur hana.
23. mín
Vörn Völsungs er í alls konar vandræðum með sóknir heimamanna og þurfa að vera þéttari til baka, ef þeir ætla að fá eitthvað út úr þessum leik.
21. mín MARK!
Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
Stoðsending: Aron Snær Ingason
Stórsókn Þróttara! Eiríkur á góðan sprett upp vinstri vænginn, gefur hann til hliðar á Aron Snær, sem er allt í öllu. Aron sendir svo boltann á Liam, sem er á óskiljanlegan hátt aleinn inn í teig og klárar snyrtilega í fjærhornið.
17. mín MARK!
Ismael Salmi Yagoub (Völsungur)
Það er stutt á milli í þessu!! Hlynur Þórhallsson lendir í bölvuðu brasi með boltann í öftustu línu og lætur einfaldlega hrifsa af sér boltann. Ismael refsar og setur hann í netið.
16. mín
Þróttarar næstum því búnir að tvöfalda forystuna! Þróttarar sækja að marki gestanna og Liam nær góðu skoti á markið, sem Ívar ver mjög vel. Óheppnir að vera ekki 2-0 yfir.
14. mín MARK!
Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
Stoðsending: Unnar Steinn Ingvarsson
Draumabyrjun! Unnar Steinn á frábæra sendingu yfir vörn Völsungs, þar sem Aron Snær stendur alveg einn og kemur hann yfir línuna.
13. mín
Leikurinn er mögulega að færast í eðlilegt horf. Þróttarar eru að reyna halda í boltann en gestirnir gefa lítil færi á sér og eru þéttir til baka.
7. mín
Benóný fellur við rétt fyrir utan teig og vill fá eitthvað fyrir sinn snúð en ÞÞÞ gefur ekkert fyrir það.
4. mín
Arnar Pálmi á góða fyrirgjöf, sem fer á fjærstöngina á Rafnar Mána en hann skýtur rétt yfir slánna. Fínt færi.
3. mín
Eiríkur með góða sendingu inn á teiginn, boltinn endar hjá Liam Daða Jeffs sem á skot sem Ívar ver.
2. mín
Kári Kristjánsson á skot langt fyrir utan teig en það fer rétt yfir.
1. mín
Leikur hafinn
Þórður Þorsteinn Þórðarson eða ÞÞÞ, eins og hann er jafnan kallaður flautar þennan leik af stað. Gestirnir hefja leikinn.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, er ekki vanur að breyta sigurliði og heldur liðinu óbreyttu frá seinasta leik, þar sem þeir unnu sterkt lið Fylkis.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Völsungs, var greinilega sáttur við frammistöðu sinna manna í síðasta leik, en þeir sigruðu þar Fjölnismenn á heimavelli. Gerir hann því engar breytingar á sínu liði. Af hverju að breyta sigurliði?
Fyrir leik
Livey sýnir alla leiki Lengjudeildarinnar í beinni Leikur Þróttar R gegn Völsungi verður í beinni útsendingu á Fótbolti.net í samstarfi við Livey hér fyrir neðan.

Hægt er að skrá sig í áskrift hér að neðan en lesendur Fótbolta.net geta nýtt sér kynningartilboð sem tryggir 30% afslátt af fyrstu þremur mánuðunum með kóðanum "Fotbolti.net" (án gæsalappa).

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Elfar Árni á eldi Elfar Árni sem kom frá KA til Völsungs fyrir tímabilið var valinn leikmaður umferðarinnar í seinustu umferð en hann gerði 2 mörk gegn Fjölni.
Leikmaður umferðarinnar
Fyrir leik
Völsungur Völsungur situr í 6. sæti eða einu sæti neðar en Þróttarar. Þeir byrjuðu mótið illa en hafa unnið seinustu tvo leiki gegn Fjölni og Selfossi. Bæði Þróttur og Völsungur hafa kannski komið mest á óvart í deildinni en gengi þeirra hefur að margra mati verið vonum framar í byrjun móts.
Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Fyrir leik
Þróttur Þróttarar úr Laugardalnum sitja í 5. sæti deildarinnar með 7 stig. Þeir sóttu sigur í Árbæinn í síðustu umferð þegar þeir lögðu Fylkismenn af velli, sem kom mörgum á óvart.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á AVIS völlinn! Verið hjartanlega velkomin í þráðbeint textalýsingu frá AVIS-vellinum frá leik Þróttar og Völsungs!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
4. Elvar Baldvinsson
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
6. Inigo Albizuri Arruti
9. Elfar Árni Aðalsteinsson ('85)
10. Bjarki Baldvinsson ('81)
11. Rafnar Máni Gunnarsson ('70)
14. Xabier Cardenas Anorga
16. Jakob Héðinn Róbertsson
21. Ismael Salmi Yagoub ('81)
39. Gunnar Kjartan Torfason ('70)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
88. Einar Ísfjörð Sigurpálsson (m)
7. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('81)
8. Ólafur Jóhann Steingrímsson ('70)
12. Gestur Aron Sörensson ('85)
17. Aron Bjarki Kristjánsson
23. Elmar Örn Guðmundsson ('81)
30. Davíð Örn Aðalsteinsson ('70)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Ármann Örn Gunnlaugsson
Róbert Ragnar Skarphéðinsson
Diljá Guðmundardóttir

Gul spjöld:
Gunnar Kjartan Torfason ('36)
Xabier Cardenas Anorga ('66)
Ismael Salmi Yagoub ('72)

Rauð spjöld: