
Slúðurpakki dagsins er veglegur í dag en félögin á Englandi vinna hörðum höndum að því að styrkja sig fyrir næstu leiktíð.
Real Madrid ætlar að reyna að veita Liverpool samkeppni um Florian Wirtz (22), leikmann Bayer Leverkusen, nú þegar Xabi Alonso hefur verið kynntur sem nýr þjálfari. Hann hefur hins vegar náð samkomulagi við Liverpool og mun líklega fara þangað. (AS)
Newcastle er reiðubúið að láta til skarar skríða á markaðnum en félagið ætlar að leggja fram tilboð í Marc Guehi (24), varnarmann Crystal Palace og Bryan Mbeumo (25), framherja Brentford (Telegraph)
Brentford hefur sett sig í samband við Liverpool vegna markvarðarins Caoimhin Kelleher (26). (Liverpool Echo)
Mark Flekken (31), markvörður Brentford, er á leið til Bayer Leverkusen og er því félagið í leit að öðrum markverði. (Independent)
Bayern München hefur áhuga á Cody Gakpo (26), sóknarmanni Liverpool, en tvö önnur félög eru í baráttunni um leikmanninn. (Florian Plettenberg)
Milos Kerkez (21), vinstri bakvörður Bournemouth, hefur þegar samþykkt að ganga í raðir Liverpool. (Fabrizio Romano)
Umboðsmaður Marcus Rashford (27), leikmanns Manchester United, hefur fundað með Deco, yfirmanni íþróttamála hjá Barcelona, en Rashford vill ólmur ganga í raðir spænsku meistarana. (Sport)
Arsenal ætlar að reyna fá Leroy Sane (29), vængmann Bayern München, en hann rennur út á samningi í næsta mánuði. (Times)
Newcastle er eitt af þeim félögum sem eru að vinna í því að fá Liam Delap (22), framherja Ipswich Town. Chelsea, Everton og Man Utd hafa einnig gert honum tilboð. (iPaper)
RB Leipzig hefur tjáð Arsenal að félagið þurfi að greiða 92,5 milljónir punda til að fá slóvenska framherjann Benjamin Sesko (21). Hann hefur einnig verið orðaður við Man Utd.
Enski miðjumaðurinn Jordan Henderson (34) gæti yfirgefið Ajax og snúið aftur heim til Sunderland. (Mirror)
Ítalska meistaraliðið Napoli ætlar að fá tvo leikmenn á frjálsri sölu í sumar. Kevin de Bruyne (33) er að koma frá Manchester City og þá er félagið einnig að reyna ganga frá viðræðum við kanadíska framherjann Jonathan David (25) sem kemur frá Lille. (Corriere dello Sport)
Roma er við það að ráða Gian Piero Gasperini í þjálfarastöðuna, en Ítalinn er að yfirgefa Atalanta eftir að hafa stýrt liðinu í níu farsæl ár. (Gazzetta dello Sport)
Athugasemdir