Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
Fjölnir
0
3
ÍR
0-1 Arnór Sölvi Harðarson '10
0-2 Sigurður Karl Gunnarsson '16
0-2 Renato Punyed Dubon '44 , misnotað víti
0-3 Renato Punyed Dubon '45
30.05.2025  -  18:30
Fjölnisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Maður leiksins: Sigurður Karl Gunnarsson - ÍR
Byrjunarlið:
13. Snorri Þór Stefánsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson (f)
3. Reynir Haraldsson
6. Árni Elvar Árnason ('76)
8. Orri Þórhallsson ('52)
9. Árni Steinn Sigursteinsson ('76)
10. Máni Austmann Hilmarsson ('76)
14. Daníel Ingvar Ingvarsson
23. Hilmar Elís Hilmarsson
45. Rafael Máni Þrastarson
88. Kristófer Dagur Arnarsson ('67)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
4. Þengill Orrason ('76)
7. Óskar Dagur Jónasson ('67)
15. Fjölnir Sigurjónsson ('76)
16. Mikael Breki Jörgensson ('52)
18. Þorkell Kári Jóhannsson
77. Axel Freyr Ívarsson ('76)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Már Guðmundsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Einar Hermannsson
Kári Arnórsson
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Kristinn Þór Guðmundsson
Egill Atlason

Gul spjöld:
Orri Þórhallsson ('32)
Brynjar Gauti Guðjónsson ('44)
Árni Elvar Árnason ('51)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Palli flautar þessar þjáningar af, verðskuldaður sigur hjá gestunum!
93. mín
Fjölnir fær horn, ná þeir sárabótarmarki?

Reynir sendir fyrir og svarið er nei.
93. mín
Gestirnir eru bara gjörsamlega að myrða þennan leik og njóta þess.
90. mín
Smári aðstoðardómari gefur skilaboð um fjórar mínútur í viðbót af þessari veislu sem seinni hálfleikur hefur verið.
87. mín
Fjölnismenn með góða sókn upp vinstra megin, Axel fær boltann í svæði og kemur sér að teignum, leggur boltann á Rafael sem skýtur með vinstri en skotið laust, lélegt og beint á Villa.
85. mín
Loksins færi! Langur bolti upp völlinn, Óskar Dagur gerir hrikalega vel í að flikka boltanum í gegn á Rafael sem sleppur innfyrir en tekur hörmulegt skot yfir markið úr besta færi Fjölnis í leiknum.
83. mín
Fjölnismenn reyna og reyna en ÍR-ingar eru þéttir svo það er eiginlega ekkert að gerast hérna.
82. mín
Inn:Ísak Daði Ívarsson (ÍR) Út:Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
79. mín
Reynir Haralds sendir hornspyrnu inn á teiginn og Palli dæmir aukaspyrnu, Gunni fer enn og aftur á stjá að kvarta undan dómgæslunni, þarna var Fjölnismaður hreinlega seinn í Kalla sem skallaði frá.
76. mín
Inn:Gundur Ellingsgaard Petersen (ÍR) Út:Breki Hólm Baldursson (ÍR)
76. mín
Inn:Axel Freyr Ívarsson (Fjölnir) Út:Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir)
76. mín
Inn:Fjölnir Sigurjónsson (Fjölnir) Út:Árni Elvar Árnason (Fjölnir)
76. mín
Inn:Þengill Orrason (Fjölnir) Út:Máni Austmann Hilmarsson (Fjölnir)
73. mín
Ágúst Unnar sendir sturlaðan bolta inn á teiginn en Bergvin Fannar skóstærð frá því að ná þessu og skora sennilega.
71. mín
Kristján Atli og Árni Steinn lenda saman í skallabolta og Kristján fellur við, Palli flautar og áfram heldur Gunni Már að brjálast.
68. mín
Fjölnir fær aukaspyrnu úti vinstra megin sem er flott fyrirgjafarstaða en Máni Austmann tekur skot framhjá.
67. mín
Inn:Óskar Dagur Jónasson (Fjölnir) Út:Kristófer Dagur Arnarsson (Fjölnir)
65. mín
Óliver reynir fyrirgjöf frá hægri sem fer af Reyni og í horn.

Alli Kostic mætir á stjá og sendir fyrir en Fjölnismenn ná að hreinsa.
64. mín
Inn:Óliver Andri Einarsson (ÍR) Út:Arnór Sölvi Harðarson (ÍR)
64. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
62. mín
Færi! Brynjar Gauti setur einn diagonal inn á teig þar sem Daníel Ingvar skallar boltann þvert fyrir markið og þar er Máni aleinn en skalla einhvernveginn í öxlina á sér og boltinn upp í loft og Villi grípur svo.

Þarna var séns fyrir Fjölni að gera leik úr þessu.
60. mín
Reynir hleður í einn hættulegan kross inn á teiginn sem Kalli hreinsar á síðustu stundu, það vantar samt fleiri menn og meiri grimmd hjá Fjölnismönnum til að nýta þetta, þarna er fjærhafsentinn að hreinsa og enginn Fjölnismaður að vinna fyrir framan hann.
57. mín
Reynir með kunnulega takta, sendir beint á ÍR-ing á miðjunni sem reynir sendingu í gegn á Bergvin en Snorri sópar upp.
55. mín
Bergvin fær boltann upp að endalínu og Brynjar Gauti kemur boltanum í horn.

Breki með fína spyrnu sem Fjölnismenn koma í horn hinumegin, Snorri slær þá spyrnu frá.
52. mín
Inn:Mikael Breki Jörgensson (Fjölnir) Út:Orri Þórhallsson (Fjölnir)
51. mín Gult spjald: Árni Elvar Árnason (Fjölnir)
Árni fer harkalega í Alla Kostic og uppsker gult, enn kvartar Gunni Már og spyr Smára aðstoðardómara afhverju þetta sé leyft í hina áttina.
50. mín
Arnór Sölvi með sprett upp hægri kantinn og sendkr fyrir, Snorri öskrar en Brynjar treystir honum ekki og flikkar boltanum yfir hann en engin hætta á ferðum.
46. mín
Árni Steinn kemur boltanum upp vinstra megin á Kristófer Dag sem sendir fyrir, boltinn dettur útúr teignum og Orri lætur vaða í varnarmann og í horn.

Fjölnismenn gera sér engan mat úr þeirri spyrnu.
46. mín
Inn:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR) Út:Renato Punyed Dubon (ÍR)
46. mín
ÍR-ingar setja leikinn aftur í gang, Renato er hvergi sjáanlegur.
45. mín
Hálfleikur
Palli flautar til hálfleiks! Það er allt í gangi hérna, Fjölnismenn ganga trylltir til búningsklefa en ÍR-ingar mjög sáttir.

Spurning hvort Renato komi út í seinni eftir þessi meiðsli.
45. mín MARK!
Renato Punyed Dubon (ÍR)
SENUR! Renato klúðraði vítinu, setur boltann í stöng, stöng, hælana á Snorra og skorar svo úr frákastinu.

Fjölnismenn tryllast gjörsamlega og vilja að markið sé dæmt af þar sem sami leikmaður og tekur vítið má ekki snerta boltann aftur nema annar leikmaður snerti boltann í millitíðinni, sem gerðist en Fjölnismenn annaðhvort sáu það ekki eða þykjast hafa ekki séð það. Renato meiðist svo í návíginu við Snorra og haltrar utan vallar.
44. mín Misnotað víti!
Renato Punyed Dubon (ÍR)
Renato setur boltann í báðar stangirnar!
44. mín Gult spjald: Brynjar Gauti Guðjónsson (Fjölnir)
Víti! Bergvin Fannar fer niður í návígi við Brynjar Gauta og Palli dæmir víti, það brjálast allt og Fjölnismenn kalla eftir dýfu, Brynjar fær spjald fyrir mótmæli frekar en brotið held ég.
44. mín
Orri Júra með gæða sendingu! Krullar boltann innanfótar í gegn á Árna Stein sem tekur skot í varnarmann.
41. mín
Fyrirgjafahríð að marki ÍR! Fjölnir er að reyna og reyna en koma ekki endahnútum á þetta.

Eftir svona 7 fyrirgjafir nær Árni Steinn svo skoti beint á Villa.
39. mín
Rafael tekur fyrirgjöf frá hægri og Kristófer nær skallanum en yfir markið.

Þetta er miklu skárra hjá Fjölni síðasta korterið sirka.
36. mín
Fjölnir með sóknarlotu! Ná að þrýsta gestunum niður og sækja af krafti, endar með lélegri hreinsun og Orri mætir á ferðinni en hamrar boltanum yfir markið.

Fjölnir fær svo hornspyrnu sem er tekin út á teiginn á Reyni sem gerir agalega illa og ÍR keyrir 3v1 þar sem Renato finnur Ágúst Unnar til vinstri, hann gerir þetta samt næstum verr en Reynir, hleypir varnarmanni fyrir sig og tekur ömurlegt skot sem Snorri ver, þarna er eiginlega krafa að skora.
33. mín
Gunni er að tryllast! Sé ekki hvort það var Orri eða Máni sem fer niður fyrir framan teiginn eftir návígi við varnarmann ÍR og þeir heimta aukaspyrnu sem ekki er dæmd og Gunni mótmælir mikið, “hvaða bull er þetta?” heyrist frá honum.
32. mín Gult spjald: Orri Þórhallsson (Fjölnir)
Orri Júra fer í harða tæklingu á Bergvin og tekur boltann fyrst en Palli flautar og spjaldar Orra við litla kátínu Fjölnismanna og Gunni Már næstum brjálast, óskar svo aftur eftir flauti í báðar áttir eftir að Renato er búinn að skjóta ömurlegri aukaspyrnuútfærslu af 30 metrum framhjá.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Kristófer er í lagi og leikurinn fer af stað, Kristófer skokkar fljótlega inná aftur.
28. mín
Fjölnismenn auka hættuna! Máni fær boltann inná teiginn, nær að snúa og láta vaða en Kalli með geggjaða tæklingu og hendir sér fyrir, boltinn af Kalla og yfir markið.

Reynir smellir spyrnunni fyrir sem Villi grípur en Kristófer lendir á stönginni og sjúkraþjálfarinn samstundis kallaður inn!
26. mín
Fyrsta álitlega upphlaup Fjölnis í leiknum kemur eftir stundarfjórðung þar sem Reynir Haralds spólar upp vinstri kantinn en missir boltann aðeins of langt frá sér og Marc Ausland tekur frábæra tæklingu í Reyni og afturfyrir, markspyrna.

Ekki fengu Fjölnismenn mikið úr þessu.
23. mín
Renato fær langan bolta upp vinstri kantinn sem Hilmar Elís týnir í loftinu og lendir á eftir Renato sem fer á hægri fótinn en þrumar þessum bolta sennilega í garðinn hjá Pablo bróður sínum sem býr einhvern kílómeter í burtu eða rúmlega það.

Fljótlega eftir er Renato svo dæmdur brotlegur við mikil mótmæli gestanna.
21. mín
Jón Þór mættur á völlinn! Mögulega að leita að næsta leikmanni til að versla af Fjölni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

19. mín
Gunni Már ósáttur! Fjölnir fær dæmda á sig aukaspyrnu á miðjum vellinum og Gunni tekur hina klassísku “farðu að flauta í báðar áttir þá” setningu og setur aftur á sig sólgleraugun.
16. mín MARK!
Sigurður Karl Gunnarsson (ÍR)
Stoðsending: Breki Hólm Baldursson
Þeir hætta ekki að skora úr föstum leikatriðum! Breki Hólm tekur spyrnuna og finnur ennið á Kalla sem stangar boltann í grasið og inn!

Þetta lærði Kalli á síðasta tímabili og tekur með sér upp í Lengjudeildina.
15. mín
Varsla! Marc Ausland henti í geðveika sendingu meðfram grasinu, eitthvað svona Thiago Alcantara stuff á Ágúst Unnar sem bombar á markið og Snorri ver mjög vel í horn!
13. mín
Alli Kostic reynir skot af svona 25 metrum sem fer naumlega yfir markið, gestirnir ætla klárlega að láta reyna á Snorra í dag.
12. mín
Vandræði! Snorri með ömurlega sendingu frá markinu beint á Arnór Sölva sem keyrir af stað inn á teiginn en Brynjar Gauti bjargar honum og verst vel.
10. mín MARK!
Arnór Sölvi Harðarson (ÍR)
ÍR-ingar komast yfir! Langur bolti upp völlinn þar sem varnarlína Fjölnis lendir í alvöru vandræðum, boltinn lekur í gegnum hana og Arnór Sölvi fljótastur að átta sig og sennilega fljótastur að hlaupa af þessum mönnum líka, fer framhjá Snorra í markinu og setur boltann í markið!
7. mín
Dauðafæri! Frábært spil ÍR-inga þar sem Renato fær boltann úti vinstra megin, fer inn á völlinn og sendir á Alla Kostic sem lyftir boltanum aftur út til vinstri á Breka Hólm sem þrumar boltanum inn á teiginn á Renato sem stýrir boltanum hárfínt framhjá markinu.

Renato ósáttur með sjálfan sig að skora ekki þarna!
6. mín
Fjölnismönnum gengur illa að koma boltanum upp völlinn og nú var Hilmar Elís að smella boltanum í innkast fyrir ÍR-inga.
2. mín
Breki Hólm sækir fyrstu hornspyrnu leiksins og Gunni Már skipar gæslunni að fjarlægja upphitunarmark sem gleymdist við endalínuna.

Alli Kostic tekur spyrnuna á markið og Snorri kýlir í annað horn sem Fjölnismenn hreinsa.
1. mín
Leikur hafinn
Kristmundur Axel lýkur sér af í græjunum með hið frábæra lag “Fjölnir á leikinn”.

Spurning hvort það verði þannig í dag, kemur í ljós.

Fjölnismenn setja leikinn af stað og sækja í átt að kirkjugarðinum!
Fyrir leik
Fína og fræga fólkið lætur sig ekki vanta! Besti íþróttaljósmyndari landsins, Hafliði “Giroud” Breiðfjörð er mættur með myndavélina!

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Liðin hafa lokið upphitun! Leiknum verður textalýst í gegnum síma svo ég biðst fyrirfram velvirðingar á stafsetningavillum, ég mun reyna að laga þær eftir besta móti.

Annars er veðrið frábært hérna í Grafarvoginum og ekkert því til fyrirstöðu að kíkja á völlinn.

Meðal manna sem eru mættir eru Legan og JonniBanan, svo er Bogi Berndsen eldri að sjálfssögðu mættur með myndavélina og Gummi Kalli, fyrrum fyrirliði Fjölnis einnig að spóka sig í sólinni.
Fyrir leik
Bein útsending hér fyrir neðan - Minnum á kóðann "Fotbolti.net"


Mate Dalmay
Fyrir leik
ÍR á flugi en Fjölnir tapaði í uppbótartíma ÍR er með átta stig eftir fjóra leiki og er annað af tveimur ósigruðu liðum Lengjudeildarinnar eftir fjóra leiki. ÍR situr sem stendur í 4. sæti, með markatöluna 5:2. ÍR vann 2-0 sigur á Selfossi í síðustu umferð.

Fjölnir heimsótti Húsavík í síðustu umferð og fengu þar á sig mark í blálokin og fóru því án stiga heim í Grafarvoginn. Fjölnir er með tvö stig eftir fjórar umferðir og markatalan er 6:9.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Dómaratríóið Guðmundur Páll Friðbertsson er með flautuna í dag. Þeir Smári Stefánsson og Andri Vigfússon eru aðstoðardómarar. Skúli Freyr Brynjólfsson er svo eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Páll
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Sævar spáir heimasigri Leiknismaðurinn Sævar Atli Magnússon er spámaður umferðarinnar. Hann spáir öruggum heimasigri.

Fjölnir 3 - 0 ÍR
Árni Elvar hefur ekki verið svona léttur á sér síðan hann fékk 'long covid' á Sams bar í Köben þeir vita sem vita og Máni Austmann nýkominn úr 'cutter' og ljósum. 'The game is over before it started'.

Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Velkomin á Fjölnisvöllinn Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá Fjölnisvellinum þar sem heimamenn taka á móti ÍR í 5. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:30.
Mynd: Brynjar Óli Ágústsson
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Breki Hólm Baldursson ('76)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
6. Kristján Atli Marteinsson
8. Alexander Kostic
9. Bergvin Fannar Helgason ('82)
13. Marc Mcausland (f)
16. Emil Nói Sigurhjartarson ('64)
23. Ágúst Unnar Kristinsson
30. Renato Punyed Dubon ('46)
44. Arnór Sölvi Harðarson ('64)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
5. Hrafn Hallgrímsson
14. Víðir Freyr Ívarsson ('64)
17. Óliver Andri Einarsson ('64)
19. Hákon Dagur Matthíasson ('46)
20. Ísak Daði Ívarsson ('82)
21. Sigurður Orri Ingimarsson
25. Gundur Ellingsgaard Petersen ('76)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Ómar Atli Sigurðsson
Andri Magnús Eysteinsson
Sölvi Haraldsson
Davíð Örvar Ólafsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: