Fimmta umferð Lengjudeildar karla hefst í dag og má búast við stórskemmtilegri umferð.
Sævar Atli Magnússon, nýr leikmaður Brann í Noregi, er spámaður umferðarinnar. Þróttur og Völsungur mætast í fyrsta leiknum í dag, en hinir fjórir leikirnir eru spilaðir á morgun.
Sævar Atli Magnússon, nýr leikmaður Brann í Noregi, er spámaður umferðarinnar. Þróttur og Völsungur mætast í fyrsta leiknum í dag, en hinir fjórir leikirnir eru spilaðir á morgun.
Þróttur 3 - 1 Völsungur (16:00 í dag)
Ég skynja mikla ástríðu í þessum leik. Kári Kri ekki kominn á blað í ár en hann fær alvöru 'pepptalk' frá the 'real' BB king (Birki Bjöss) og setur eina slummu. Mikið af frábæru fólki líka sem vinnur í Þrótti þannig ég verð að spá þeim sigri þó að ég elska góða 'underdog story' þá eru Þróttarnir aðeins of stór biti fyrir Völlara.
Þór 3 - 3 Fylkir (18:00 á morgun)
Vá þetta er leikur! Siggi Hö vs Guðmar Gauti sem er litli frændi minn og geggjaður fótboltamaður þannig verð að spá markajafntefli hér.
Fjölnir 3 - 0 ÍR (18:30 á morgun)
Árni Elvar hefur ekki verið svona léttur á sér síðan hann fékk 'long covid' á Sams bar í Köben þeir vita sem vita og Máni Austmann nýkominn úr 'cutter' og ljósum. 'The game is over before it started'.
Keflavík 2 - 0 HK (19:15 á morgun)
Barátta, böðlast, vinnsla, orka, tæklingar, talandi. Svona verður leikurinn. Ernir Bjarnason skoraði i seinasta leik þannig hann er á eldi og setur 2 núna
Selfoss 1 - 2 Njarðvík (19:15 á morgun)
Svokallaður seinni bolta leikurinn. Oumar Diouck og ég tókum 2-3 skotæfingar saman þegar hann æfði með Leikni í smá tíma. Hann er góður að slumma þannig hann setur hann.
Leiknir 4 - 1 Grindavík (19:15 á morgun)
Sæll 'friday night' undir Æsufellinu. Daði Bærings setur hann en vonandi bara í rétt mark. Duracell Aron Einars klukkar 15 km og Sindri brýtur 6 sinnum af sér því hann er 14% fita en hann skorar líka með gullfallega skallanum sínum.
Fyrri spámenn:
Hrafnkell Freyr (4 réttir)
Júlíus Mar (4 réttir)
Bjarki Björn (3 réttir)
Elmar Kári (1 réttur)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir

