SKÝRSLAN: Selfoss sækir þrjú mikilvæg stig í fallbaráttunni í Grafarvogi
Hvað réði úrslitum?
Úrslitin réðust á gæðum og þá sérstaklega gæðin hjá Frosta Brynjólfssyni í leiknum. Fjölnir var meira með boltann og sköpuðu sér nokkur færi en náðu ekki að nýta þau. Hinum megin á vellinum þá nýtti Selfoss tvö þeirra og í raun áttu Selfyssingar hættulegri færi heilt yfir og fara með sanngjarnan sigur austur fyrir fjall.
Bestu leikmenn
1. Frosti Brynólfsson
Var einfaldlega langbesti maðurinn á vellinum hér í kvöld. Lagði upp fyrsta markið, var óheppin þegar skallinn hans fór í stöngina og kórónaði frábæra frammistöðu sína með marki í loks leiks. Var allt í öllu í sóknarleiks Selfyssinga og átti nokkrar frábærar rispur. Engin vafi á manni leiksins hér í kvöld.
2. Alfredo Ivan Sanabria
Átti flottan leik í hægri bakverðinum og átti stoðseninguna á Frosta fyrir seinna markið. Var góður í vörn og sókn og myndaði flott teymi með Frosta hægra megin á vellinum þar sem 90% af sóknarleik Selfyssinga byrjaði.
Atvikið
Seinna mark Selfyssinga þegar Alfredo sendir langar bolta fram og vindurinn kæfir hann í fæðingu og ratar í fæturnar á Frosta rétt fyrir ofan miðju hægra megin. Þá var hins vegar nóg eftir og Frosti sprettur upp völlinn með Fjölnisvörnina í sér og leikur laglega á hana og kemur sér inn á miðjan teig og skýtur örugglega framhjá Snorra og klára leikinn fyrir Selfoss.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Selfossi lyftir sér úr fallbaráttunni, alla veganna tímabundið á meðan Fylkir á leik til góða. Að sama skapi er staðan orðin erfið hjá Fjölni sem situr í neðsta sæti Lengjudeildarinnar og er enn að leita að sínum fyrsta sigri. Á íslensku þá var þetta gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Selfoss og rosalega vont fyrir Fjölni að tapa.
Vondur dagur
Ég ætla að gefa sóknarlínu Fjölnis þennan óheiður í dag. Því miður fyrir heimamenn þá fóru þeir illa með færin sín í leiknum og virkuðu þreyttir á lokasprettinum, hvort sem það var lokasendingin eða hreinlega loka afgreiðslan. Á öðrum degi hefði Fjölnir sennilega skorað í leiknum en það var ekki tilfellið hér í kvöld. Það sást gæðamunur á sóknarlínu Selfyssinga og Fjölnismanna hér í kvöld, og ég get ekki ímyndað mér að Gunnar Már sé sáttur með sína sóknarmenn hér í kvöld.
Dómarinn - 9
Það var fenginn alvöru dómari fyrir þenna leik og Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var ekki í neinum vandræðum með að stjórna leiknum. Gaf gult þegar það átti við og einnig rautt. Ekkert út á dómgæsluna að setja.


