Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
Keflavík
1
1
Fylkir
Muhamed Alghoul '4 1-0
1-1 Theodór Ingi Óskarsson '87
09.06.2025  -  19:15
HS Orku völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Maður leiksins: Muhamed Alghoul
Byrjunarlið:
21. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras
6. Sindri Snær Magnússon
7. Gabríel Aron Sævarsson ('64)
10. Stefan Ljubicic ('86)
11. Muhamed Alghoul ('79)
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
25. Frans Elvarsson (f)
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
5. Stefán Jón Friðriksson
8. Ari Steinn Guðmundsson
14. Marin Mudrazija ('86)
18. Ernir Bjarnason ('79)
19. Edon Osmani
23. Eiður Orri Ragnarsson ('64)
- Meðalaldur 28 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Luka Jagacic
Ásgeir Orri Magnússon
Guðmundur Árni Þórðarson
Óskar Ingi Víglundsson

Gul spjöld:
Marin Brigic ('78)
Sindri Kristinn Ólafsson ('89)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
1-1 loka niðurstaða hér í kvöld sem þýðir að Fylkir eru með 6 stig jafn mörg stig og Selfoss og eru í 10.sæti og Keflavík með 10 stig í 6.sæti. Skýrsla kemur inn seinna í kvöld.
91. mín
Fylkir nálægt því að stela þessu hér en Sindri gerir vel í markinu.
90. mín
Hornspyrna sem endar í annari hornspyrnu sem endar svo beint á Ólafi í markinu
89. mín
Fylkismenn miklu líklegri en Keflavik að stela þessum leik.
89. mín Gult spjald: Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Sparkar boltanum í burtu.
87. mín MARK!
Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir)
MAAARK! Fylkir að jafna hér sending frá hægri inn á teigin og Theodór potar boltanum inn!
86. mín
Inn:Marin Mudrazija (Keflavík) Út:Stefan Ljubicic (Keflavík)
85. mín
Hornspyrna hjá Fylki sem fer á nær en skallin er framhjá
79. mín
Fjöldi áhorfenda í Keflavík í kvöld er 350 segir vallarþulurinn.
79. mín
Inn:Ernir Bjarnason (Keflavík) Út:Muhamed Alghoul (Keflavík)
Flottur leikur hjá Muhamed hér í dag.
78. mín Gult spjald: Marin Brigic (Keflavík)
Seinn í tæklingu sanngjarnt gult
76. mín
Inn:Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir) Út:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
74. mín
Muhamed með skot rétt fyrir utan teig en Ólafur ver þetta nokkuð auðveldlega.
73. mín
Muhamed með boltann út á hægri á Kára sem kemur boltanum fyrir en Ólafur kemur út og grípur boltann.
68. mín
Muhamed með fyrirgjöf á fjær á Kára sem skallar boltann beint í fangið á Ólafi í marki Fylkismanna.
66. mín
Geggjuð varsla! Bjarki Steinsen með sendinguna fyrir og skorar næstum því en Sindri á tánum og nær að verja þetta mjög vel í horn sem verður ekkert úr.
64. mín
Inn:Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík) Út:Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
63. mín
Geggjuð sending! Pablo með frábæra sendingu inn á Theodór sem nær ekki að koma boltanum framhjá Sindra í markinu, mjög gott færi!
61. mín
Inn:Þóroddur Víkingsson (Fylkir) Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
Fínn leikur hjá Eyþóri hér í kvöld.
60. mín
Gott færi! Kári fær sendingu inn fyrir tekur boltann framhjá Ólafi í markinu en Arnór kemst fyrir boltann og Keflvíkingar fá hornspyrnu sem ekkert verður úr.
58. mín
Stefan Ljubicic fer á vinstri fótinn og á fínt skot rétt fyrir utan teig í hægra horninu en það fer rétt framhjá.
56. mín
Nacho með hlaup upp völlinn kemur boltanum á Axel sem kemur boltanum á Muhamed sem missir boltann í góðu færi.
54. mín
Nacho með flotta fyrirgjöf á Axel sem skallar boltann yfir markið, fínt færi hjá Keflavík.
52. mín
Fylkismenn með skot fyrir utan teig en það er beint á Sindra í markinu.
51. mín
Fylkismenn halda boltanum vel í byrjun seinni en lítið um færi.
49. mín
Fyrsta hornspyrna seinni hálfleiks sem Fylkir fær en Keflvíkingar koma boltanum í burtu.
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
1-0 í hálfleik Fylkismenn meira með boltann en liðin skiptast á að sækja.
45. mín
Fylkismenn í fínu færi en Birkir rennur og nær ekki að koma boltanum á markið.
38. mín
Benedikt keyrir hér upp kantinn, reynir skot en vel gert hjá Nacho að komast fyrir skotið.
34. mín
Inn:Bjarki Steinsen Arnarsson (Fylkir) Út:Orri Sveinn Segatta (Fylkir)
Orri biður hér um skiptingu vegna meiðsla, sýnist þetta vera nárinn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Sindri Snær skallar óvart boltann í gegn fyrir Fylki þar sem Pablo nær boltanum en skýtur rétt framhjá! Gott færi fyrir Fylkismenn.
25. mín
Vilja víti! Keflvíkingar vilja víti! Sýndist vera snerting þarna á Muhamed en Gunnar Freyr segir nei.
24. mín
Sláin!!! Pablo með góða fyrirgjöf sem Benedikt skallar í Slánna
22. mín
Fylkir með aukaspyrnu sem endar beint í fanginu hjá Sindra.
21. mín
Muhamed með boltann inn í teig þar sem Gabríel bíður en setur boltann hátt yfir.
18. mín
Hornspyrna Fyrsta hornspyrna leiksins sem Fylkir fær en kemur ekkert út úr henni.
15. mín
Axel Ingi með fyrirgjöf frá hægri og varnarmaður Fylkis kassar boltann tilbaka á Ólaf í markinu.
14. mín
Fínt færi fyrir Fylki boltinn kemur frá vinstri fyrirgjöf inn í teig sem endar hjá Eyþóri sem setur boltann yfir markið.
10. mín
Lítið að gerast Fylkismenn að halda boltanum og mikið af innköstum.
4. mín MARK!
Muhamed Alghoul (Keflavík)
Beint úr Aukaspyrnu!!! Aukaspyrna fyrir Keflavík rétt fyrir utan teig eftir frábært hlaup hjá Gabríel. Muhamed tekur spyrnuna sem fer í vegginn og lekur inn.
2. mín
Fyrsta skot leiksins komið, Theodór með skot yfir markið
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin að ganga á völlinn Þetta fer að fara af stað, geggjað veður sól og smá vindur og völlurinn vel vökvaður.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Árni Freyr þjálfari Fylkis gerir eina breytingu á sínu liði frá seinasta leik, Arnar Númi sest á bekkinn og inn í liðið kemur fyrirliðinn Ragnar Bragi Sveinsson.

Haraldur Freyr Þjálfari Keflavíkur gerir 2 breytingar á sínu liði frá 3-0 tapinu gegn HK í Síðasta leik. Eiður Orri Ragnarsson og Ernir Bjarnason fá sér sæti á bekknum, inn fyrir þá koma Stefan Alexander Ljubicic og fyrirliðinn Frans Elvarsson.
Fyrir leik
Staða liðanna Keflavík er í 7.sæti með 9 stig á meðan Fylkir er í 9.sæti með 5 stig. Fylkismenn eru búnir að tapa síðustu þremur leikjum.
Fyrir leik
Dómari leiksins er Gunnar Freyr Róbertsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leikurinn í beinni á Livey


Mate Dalmay
Fyrir leik
Velkomin til leiks! Keflavík og Fylkir mætast klukkan 19:15. Áhugaverður slagur í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
3. Arnór Breki Ásþórsson
5. Orri Sveinn Segatta ('34)
7. Tumi Fannar Gunnarsson
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Eyþór Aron Wöhler ('61)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('76)
11. Pablo Aguilera Simon
17. Birkir Eyþórsson
20. Theodór Ingi Óskarsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
14. Þóroddur Víkingsson ('61)
15. Axel Máni Guðbjörnsson
19. Arnar Númi Gíslason
34. Guðmar Gauti Sævarsson
70. Guðmundur Tyrfingsson ('76)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson ('34)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Daði Ólafsson
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Ólafur Engilbert Árnason

Gul spjöld:

Rauð spjöld: