Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
Besta-deild karla
Afturelding
LL 4
1
ÍA
Besta-deild karla
Fram
LL 2
0
FH
Besta-deild karla
ÍBV
LL 0
2
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Stjarnan
LL 2
0
Þróttur R.
Vestri
1
0
KA
Diego Montiel '34 1-0
15.06.2025  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: 13 gráður smá vindur og sólin skín
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 315
Maður leiksins: Gunnar Jónas Hauksson
Byrjunarlið:
12. Guy Smit (m)
2. Morten Ohlsen Hansen
3. Anton Kralj ('84)
4. Fatai Gbadamosi
5. Thibang Phete
6. Gunnar Jónas Hauksson
8. Daði Berg Jónsson
10. Diego Montiel ('73)
22. Elmar Atli Garðarsson (f) ('62)
28. Jeppe Pedersen
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Benjamin Schubert (m)
15. Guðmundur Arnar Svavarsson ('84)
17. Guðmundur Páll Einarsson
19. Emmanuel Duah
23. Silas Songani ('73)
29. Kristoffer Grauberg
77. Sergine Fall ('62)
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jón Hálfdán Pétursson
Þorsteinn Goði Einarsson
Vladan Djogatovic
Vignir Snær Stefánsson
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson

Gul spjöld:
Eiður Aron Sigurbjörnsson ('45)
Thibang Phete ('86)
Fatai Gbadamosi ('90)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið góður sigur hjá vestra hér í dag!
90. mín Gult spjald: Fatai Gbadamosi (Vestri)
90. mín
Daði í góðu færi en William ver vel frá honum.
90. mín
Gunnar vinnur hér boltann af Hans Viktor og kemur boltanum á Daða sem nær ekki skoti.
90. mín
5 mínútum bætt við
86. mín Gult spjald: Thibang Phete (Vestri)
85. mín
Inn:Dagur Ingi Valsson (KA) Út:Jóan Símun Edmundsson (KA)
85. mín
Inn:Valdimar Logi Sævarsson (KA) Út:Bjarni Aðalsteinsson (KA)
85. mín
Marcel Römer með spyrnuna yfir vegginn og rétt framjá.
84. mín
Aukaspyrna á mjög góðum stað rétt fyrir utan teig fyrir KA.
84. mín
Inn:Guðmundur Arnar Svavarsson (Vestri) Út:Anton Kralj (Vestri)
Anton flottur hér í dag.
80. mín
Jeppe reynir skot frá miðju en það er lélegt og endar beint í fanginu á William í marki KA manna
79. mín
Jakob Snær með bolta fyrir sem endar á Hallgrími sem skýtur framhjá.
74. mín
Fall kemst fyrir fyrirgjöf og KA fær hornspyrnu og Fall liggur hér eftir.
73. mín
Inn:Silas Songani (Vestri) Út:Diego Montiel (Vestri)
Markaskorari Vestra kemur hér útaf flottur leikur hjá honum.
72. mín
Vestramenn vilja fá brot og mögulegt rautt spjald þá en það er flaggöð rangstæða.
69. mín
Spjald á bekkinn hjá KA líklegast markmannsþjálfarinn sem fær þetta spjald.
64. mín
Bjargað á línu Boltinn kemur inn á Birgi sem á skalla framhjá Guy í markinu og Eiður bjargar á línu.
62. mín
Inn:Jakob Snær Árnason (KA) Út:Rodrigo Gomes Mateo (KA)
Hef séð betri frammistöðu frá Rodri.
62. mín
Inn:Sergine Fall (Vestri) Út:Elmar Atli Garðarsson (Vestri)
Fín frammistaða hjá Elmari hér í dag.
60. mín
Lítið að gerast þessa stundina en KA menn byrja seinni hálfleikinn af meiri krafti.
55. mín
Daði með fínan snúning rétt fyrir utan teig, kemur með skot en það er framhjá.
52. mín
Hallgrímur í fínni stöðu rétt inní teig en skýtur framhjá.
51. mín Gult spjald: Rodrigo Gomes Mateo (KA)
Rodri fær gult spjald fyrir að brjóta á Jeppe Pedersen sem var á leiðinni í hraða sókn.
47. mín Gult spjald: Birgir Baldvinsson (KA)
Gult spjald fyrir peysutog.
46. mín
Seinni hálfleikur byrjaður það eru Vestramenn sem byrja með boltann.
46. mín
Inn:Ingimar Torbjörnsson Stöle (KA) Út:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (KA)
Skipting í hálfleik
45. mín
Hálfleikstölfræði Með boltann: 53% - 47%
Marktilraunir: 3-7
Skot á mark: 2-2
Horn: 1-3
Heppnaðar sendingar: 216-186
Elvar Geir Magnússon
45. mín
Hálfleikur
Hálfelikur, hiti í leiknum en ekkert búið að vera skemmtilegasti leikurinn. Vonandi fáum við opnari leik í seinni.
45. mín Gult spjald: Eiður Aron Sigurbjörnsson (Vestri)
Eiður gefur hér aukaspyrnu á hættulegum stað og fær síðan gult, held það sé frekar fyrir kjaft enn ekki brotið sjálft.
45. mín
Stutt horn hérna hjá KA mönnum sem endar hjá Viðari sem potar boltanum í stöngina.
45. mín
Bætt 8 mínútum við.
45. mín
Inn:Viðar Örn Kjartansson (KA) Út:Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Óska Ásgeiri góðs bata.
44. mín
Leikurinn stop hér, Fatai er tekinn niður hér og rekur fótinn í andlitið á Ásgeiri og kallað hér á börur. Ásgeir að ljúka leik hér í dag.
43. mín
Hallgrímur setur boltann framhjá markinu.
41. mín
Cafu Phete að brjóta hér á hættulegum stað, gott færi fyrir Hallgrím hérna!
37. mín
Áhorfendafjöldinn er 315 hér í dag.
34. mín MARK!
Diego Montiel (Vestri)
Stoðsending: Jeppe Pedersen
Jeppe vinnur hér boltann á miðjum vellinum og kemur boltanum út til vinstri á Diego Montiel sem kemur tekur eina gabbhreyfingu og rennir boltanum framhjá William í marki KA manna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Hornspyrna sem Hallgrímur tekur en boltinn fer yfir allann pakkann og endar í markspyrnu.
29. mín
Lítið að gerast þessa stundina.
22. mín
Hallgrímur með skot fyrir utan teig sem Guy Smit ver vel.
17. mín
Dauðafæri! Léleg sending hjá Guðjóni Erni rétt fyrir utan teig KA manna sem Gunnar Jónas kemst inní en nær ekki að koma boltanum fram hjá William í markinu.
16. mín
Marcel Römer með skot fyrir utan teig en það er framhjá.
10. mín
KA á aukaspyrnu hér á hættulegum stað sem Hallgrímur tekur, hann kemur með fyrirgjöf á Ívar sem skallar boltann yfir.
10. mín
Anton kralj vinnur hér boltann kemur honum á Montiel sem á skopt yfir markið.
8. mín
Rangstæða Vestri skorar hér en dæmd rangstæða!
7. mín
Hallgrímur reynir skot frá miðju en Guy Smit tekur boltann á kassann.
7. mín
lítið að gerast, liðin skiptast á að halda boltanum.
3. mín
fyrsta hornspyrna leiksins eftir gott spil hjá vestramönnum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!

KA byrjar með boltann, vonandi fáum við skemmtilegan leik hér í dag.
Fyrir leik
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Leikmenn að labba inn á völlinn!
Fyrir leik
Geggjað veður fyrir vestan, 13 gráður smá vindur og sólin skín.
Fyrir leik
2,80 á Vestra á epic á heimavelli, hvar er Auðunn Blöndal og upptökukrúið úr Tekinn?
Fyrir leik
Byrjunarlið KA
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið Vestra
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár Tveir leikmenn Vestra eru í leikbanni. Það eru þeir Vladimir Tufegdzic og Gustav Kjeldsen.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn KR. Fyrir þá Gustav og Túfa koma þeir Elmar Atli Garðarsson og Morten Hansen inn í liðið. Elmar Atli er að byrja sinn fyrsta leik eftir leikbannið, sem hann fékk vegna brota á veðmálareglum, sem hann afplánaði í byrjun móts.

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir eina breytingu á sínu liði frá jafnteflinu gegn Stjörnunni. Rodri kemur inn í liðið fyrir Jakob Snæ Árnason sem tekur sér sæti á bekknum. Viðar Örn Kjartansson, Kári Gautason og Dagur Ingi Valsson snúa aftur á bekkinn eftir meiðsli en þeir Hrannar Björn Steingrímsson og Steinþór Már Auðunsson eru ekki með. William Tönning stendur áfram vaktina í markinu.
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Tókum okkur saman í andlitinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ívar Örn Árnason, fyrirliði KA, ræddi breytinguna á KA liðinu í viðtali eftir leikinn gegn Stjörnunni. KA hefur tekið átta stig úr síðustu fjórum leikjum og allt annað að sjá liðið.

Eftir tapið á móti Fram í bikarnum, hvað gerðist?

„Við bara tókum okkur saman í andlitinu, þetta var ekki flóknara en það. Hver og einn leikmaður þurfti að líta í spegil og við fórum bara í grunninn. Við vorum byrjaðir að líta of stórt á okkur, örugglega svipað og mörg lið hafa lent í. Við erum bestir og svo erum við verstir þegar við erum sjálfum okkur verstir. Þetta er bara grunnvinnan, menn þurfa að hlaupa til baka, þurfa að sinna varnarvinnunni, ef við gerum það þá vinnum við boltann í betri stöðum, hærra á vellinum og þá skorum við fleiri mörk. Það bara segir sig sjálft. Við bara gleymdum þessu (grunngildunum), ætluðum að vera einhverjir lúxusleikmenn og KA er bara ekki þannig félag, við þurfum að leggja inn vinnuna," sagði fyrirliðinn.

KA er með tólf stig, sjö stigum meira en á sama tímapunkti í fyrra. Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var spurður út í stöðuna á liðinu eftir tíu umferðir.

„Ég er ánægður með stöðuna, ég sagði í mörgum viðtölum að veturinn var erfiður, vorum með 9-11 menn meidda, misstum góða leikmenn og áttum erfitt með að fá einhverja í staðinn. Við komum svolítið haltrandi inn í tímabilið og fengum skelli; áttum mikið af erfiðum liðum til að byrja með. Svo erum við búnir að vinna okkur vel út úr þessu. Nú erum við sjö stigum meira en í fyrra eftir jafnmarga leiki, það var ekki frábær staða. Deildin er bara að spilast allt öðruvísi, rosalega jöfn deild og allir virðast geta unnið alla, rosa mikið af heimasigrum. Við erum bara á ágætis stað og þurfum að halda áfram að bæta okkur," sagði Haddi.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
KA ósigrað í síðustu fjórum Stigin eru farin að malla inn hjá KA. Liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í síðustu umferð, áður en landsleikjaglugginn skall á. Hallgrímur Jónasson þjálfari liðsins hefur gert vel í að koma liðinu á ról eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Vestri hefur tapað þremur af síðustu fjórum Eftir stórkostlega byrjun á tímabilinu hefur hallað undan fæti hjá Vestra í síðustu leikjum. Liðið hefur tapað síðustu tveimur leikjum og þremur af síðustu fjórum leikjum. Liðið er í fimmta sæti sem stendur, fjórum stigum frá toppsætinu.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Staðan

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Tveir Vestramenn í banni Tveir leikmenn Vestra fengu sitt fjórða gula spjald í síðustu viku og verða því í banni gegn KA í dag. Það eru varnarmaðurinn Gustav Kjeldsen og sóknarmaðurinn Vladimir Tufegdzic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Umferðin hófst í gær Stjarnan vann 3-2 sigur gegn Val. Það eru fjórir leikir á dagskrá þennan sunnudaginn og umferðinni lýkur svo á morgun.

Stjarnan 3 - 2 Valur
1-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('17 )
1-1 Patrick Pedersen ('26 )
2-1 Emil Atlason ('62 )
3-1 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('68 )
3-2 Patrick Pedersen ('77 )
Rautt spjald: Bjarni Mark Antonsson, Valur ('78) Lestu um leikinn

sunnudagur 15. júní
14:00 Vestri-KA (Kerecisvöllurinn)
16:00 ÍBV-Breiðablik (Þórsvöllur Vey)
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)
19:15 Afturelding-ÍA (Malbikstöðin að Varmá)

mánudagur 16. júní
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Eysteinn Hrafnkelsson og Antoníus Bjarki Halldórsson. Fjórði dómari: Guðni Páll Kristjánsson.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Velkomin með okkur til Ísafjarðar! Hér verður bein textalýsing frá leik Vestra og KA í 11. umferð Bestu deildarinnar en flautað verður til leiks klukkan 14.

Mynd: Eyþór Bjarnason

Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
12. William Tönning (m)
2. Birgir Baldvinsson
4. Rodrigo Gomes Mateo ('62)
5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Jóan Símun Edmundsson ('85)
8. Marcel Ibsen Römer
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson ('45)
28. Hans Viktor Guðmundsson
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('46)
77. Bjarni Aðalsteinsson ('85)
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
99. Jóhann Mikael Ingólfsson (m)
3. Kári Gautason
9. Viðar Örn Kjartansson ('45)
14. Andri Fannar Stefánsson
21. Mikael Breki Þórðarson
25. Dagur Ingi Valsson ('85)
26. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('46)
29. Jakob Snær Árnason ('62)
44. Valdimar Logi Sævarsson ('85)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Steingrímur Örn Eiðsson
Michael Charpentier Kjeldsen
Tryggvi Björnsson
Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir

Gul spjöld:
Birgir Baldvinsson ('47)
Rodrigo Gomes Mateo ('51)

Rauð spjöld: