
KR heldur áfram að skora vel í því að halda í boltann. Miðað við tölfræðina hefði liðið átt að fá fleiri stig úr síðustu leikjum en raun ber vitni.

Ótrúleg tölfræði gegn Stjörnunni hjá Víkingi. Fyrstu tölur frá Wyscout voru á þá leið að Víkingur hefði verið með 6,11 í xG en uppfærður útreikningur segir 5,26 - sem er áfram ótrúlega há tala. Víkingur skoraði tvö mörk gegn Stjörnunni.

Afturelding hefði átt að vera búin að skora mun fleiri mörk í sumar. Liðið á enn eftir að skora á útivelli.
Eftir sex umferðir voru fjórir tölfræðiþættir frá Wyscout sérstaklega skoðaðir í deildinni. Það var Possession, hversu mikið lið halda í boltann í leikjum, xG, eða vænt mörk skoruð, xGA, vænt mörk skoruð á móti og xPoints, eða áætluð stig reiknuð út frá xG og xGA í hverjum leik fyrir sig.
Þar vakti tölfræði Vestra og KR hvað mestu athyglina. Greinina má nálgast hér að neðan.
Þar vakti tölfræði Vestra og KR hvað mestu athyglina. Greinina má nálgast hér að neðan.
Fjórar umferðir eru liðnar frá þeirri samantekt og deildin er að fara aftur af stað eftir landsleikjafrí, fínn tími til að skoða gögnin aftur. Töflurnar, skjáskot, með þessum fjórum tölfræðiútreikningum má sjá neðst.
Possession
KR er áfram það lið sem heldur boltanum langmest, tölfræðin úr leiknum gegn Stjörnunni, þar sem KR hélt boltanum mjög mikið, blekkir aðeins, en Stjarnan var sátt með að KR væri mikið með boltann í stöðunni 3-0 yfir snemma leiks. Stjarnan á móti lækkar talsvert, en þar bætist líka við hálfleikur gegn KA þar sem liðið var manni færra. Fyrir utan hærri tölu hjá KR og lægri hjá Stjörnunni eru ekki miklar sveiflur í þessum flokki.
xG
Í síðustu fjórum leikjum hefur orðið mikil sveifla á færanýtingu Víkings, liðið var að skora fleiri mörk en tölfræðin gaf í skyn en það hefur breyst í að liðið hefur nú skorað tæplega þremur mörkum færra en útreiknaði xG. Liðið var með mjög hátt xG í leiknum gegn Stjörnunni, furðulega hátt segja einhverjir, en færanýtingin hefur allavega ekki verið frábær í síðustu fjórum leikjum.
Stjarnan og ÍBV hafa nýtt sín færi vel í síðustu leikjum en það er áframhald á því að Afturelding, liðið sem hefur skorað minnst í deildinni, ætti að vera komið með fleiri mörk. Afturelding hefur skorað átta mörk en ætti miðað við tölfræðina að vera með fimmtán skoruð.
xGA
Í síðustu fjórum leikjum hafa liðin, miðað við tölfræðina, nýtt sín færi gegn KR mjög vel. Liðið var eftir fyrstu sex leikina að fá á sig færri mörk en xGA sagði til um en fjórum leikjum seinna hefur KR fengið á sig um fimm mörkum meira en xGA segir til um. Eins og með Víking og xG liðsins, þá hefur xG tölfræði Víkings gegn Stjörnunni þau áhrif að Stjarnan er búin að fá á sig færri mörk en xGA segir til um.
Það er áframhald á því að Vestri hefur fengið á sig færri mörk en xGA segir til um, Vestri er með tíu mörkum færri mörk á sig en xGA segir til um, sjö mörk fengin á sig en xGA segir rúmlega 17.
xPoints
Eins og eftir sex umferðir þá er Valur efst í deildinni þegar kemur að xPoints. Víkingur er í 2. sæti og Breiðablik er í 4. sæti, Breiðablik heldur áfram að fá fleiri stig út úr sínum leikjum en tölfræðin segir til um. Í 3. sæti í xPoints er KR, liðið fékk þrjú stig út úr síðustu fjórum leikjum en hefði miðað við tölfræðina átt að fá sjö stig.
FH er að nálgast stigafjölda sinn miðað við xPoints útreikninga, en eftir fyrstu sex leikina var FH með fimm stigum minna en xPoints sagði til um. ÍBV hefur verið skilvirkt í síðustu fjórum leikjum, tekið sjö stig, en miðað við tölfræðina hefði liðið einungis átt að fá rúmlega þrjú stig. Botnliðið, ÍA, ætti að hafa tekið fleiri stig en þrjú út úr síðustu fjórum leikjum. KA liðið má vera svekkt með að hafa ekki fengið meira en sex stig úr sínum fjórum leikjum og þá er Vestri aðeins að nálgast xPoints töluna sína, eftir ótrúlega skilvirkni í byrjun tímabilsins, en liðið fékk mun fleiri stig úr fyrstu sex umferðunum en reiknuð voru á liðið út frá tölfræðinni.
Stöðutöfluna, tölfræðina sem öllu máli skiptir, má líka sjá hér að neðan
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 10 | 6 | 2 | 2 | 19 - 11 | +8 | 20 |
2. Breiðablik | 10 | 6 | 1 | 3 | 17 - 16 | +1 | 19 |
3. Valur | 11 | 5 | 3 | 3 | 24 - 16 | +8 | 18 |
4. Stjarnan | 11 | 5 | 2 | 4 | 20 - 20 | 0 | 17 |
5. Vestri | 10 | 5 | 1 | 4 | 12 - 7 | +5 | 16 |
6. ÍBV | 10 | 4 | 2 | 4 | 12 - 15 | -3 | 14 |
7. KR | 10 | 3 | 4 | 3 | 28 - 23 | +5 | 13 |
8. Fram | 10 | 4 | 0 | 6 | 16 - 17 | -1 | 12 |
9. KA | 10 | 3 | 3 | 4 | 10 - 17 | -7 | 12 |
10. FH | 10 | 3 | 2 | 5 | 15 - 14 | +1 | 11 |
11. Afturelding | 10 | 3 | 2 | 5 | 8 - 13 | -5 | 11 |
12. ÍA | 10 | 3 | 0 | 7 | 12 - 24 | -12 | 9 |
Athugasemdir