Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
Fram
2
0
FH
Vuk Oskar Dimitrijevic '6 1-0
Sigurjón Rúnarsson '77 2-0
15.06.2025  -  19:15
Lambhagavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 589
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson ('78)
9. Róbert Hauksson ('91)
12. Simon Tibbling
16. Israel Garcia ('91)
19. Kennie Chopart (f)
23. Már Ægisson
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('67)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Bjarki Arnaldarson (m)
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson
7. Guðmundur Magnússon ('78)
10. Fred Saraiva ('67)
15. Jakob Byström ('91)
21. Óliver Elís Hlynsson ('91)
30. Kristófer Konráðsson
32. Hlynur Örn Andrason
33. Kajus Pauzuolis
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Magnús Birkir Hilmarsson
Gareth Thomas Owen
Friðgeir Bergsteinsson
Kirian Elvira Acosta

Gul spjöld:
Haraldur Einar Ásgrímsson ('42)
Kyle McLagan ('76)
Viktor Freyr Sigurðsson ('86)
Jakob Byström ('92)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er þessu lokið með 2-0 sigri á Lambhagavellinum! Nokkuð verðskuldaður 2-0 sigur Framara.

Viðtöl og skýrsla væntanleg. Takk fyrir.
92. mín Gult spjald: Jakob Byström (Fram)
91. mín
Inn:Óliver Elís Hlynsson (Fram) Út:Israel Garcia (Fram)
91. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Róbert Hauksson (Fram)
90. mín
Uppbótartíminn er fjórar mínútur hið minnsta
88. mín Gult spjald: Grétar Snær Gunnarsson (FH)
Brýtur á Fred.
87. mín
Stöngin Kjartan Kári á aftur skot fyrir utan teig en í þetta skiptið hafnar það í stönginni!
86. mín Gult spjald: Viktor Freyr Sigurðsson (Fram)
Helgi Mikael spjaldar hann fyrir leiktöf.
84. mín
Nú reynir Sigurður Bjartur skot en það fer framhjá.
84. mín
Kjartan Kári á þrumuskot fyrir utan teig en Viktor ver vel.
80. mín
Dauðafæri! Kjartan Kári teiknar frábæran bolta beint á pönnuna á Úlfi en Viktor ver vel frá honum!
78. mín
Inn:Bjarni Guðjón Brynjólfsson (FH) Út:Tómas Orri Róbertsson (FH)
78. mín
Inn:Guðmundur Magnússon (Fram) Út:Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram)
78. mín
Inn:Arngrímur Bjartur Guðmundsson (FH) Út:Birkir Valur Jónsson (FH)
78. mín
Inn:Ísak Óli Ólafsson (FH) Út:Ahmad Faqa (FH)
77. mín MARK!
Sigurjón Rúnarsson (Fram)
Eru Framarar að klára þetta?! Haraldur Einar á aukaspyrnu sem Rosenörn ver beint út í teiginn og þar stendur gamurinn, Sigurjón Rúnarsson, og setur boltann í opið markið.
77. mín
Framarar eiga aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Kennie og Haraldur standa yfir boltanum.
76. mín Gult spjald: Kyle McLagan (Fram)
Tuð.
76. mín Gult spjald: Ahmad Faqa (FH)
Brýtur á Róberti Haukssyni sem var kominn í góða stöðu.
72. mín Gult spjald: Einar Karl Ingvarsson (FH)
Brýtur á Kyle McLagan.
72. mín
Framarar eru allt annað en sáttir við Helga Mikael þessa stundina. Nú vilja þeir meina að Böðvar hafi brotið á Má.
71. mín
Stöngin! Eftir gott hlaup og tilþrif Más Ægissonar, fellur boltinn fyrir Kennie sem þrumar boltanum í stöngina! Nú vaknar stúkan.
69. mín
Fínn skalli Israel Garcia nær góðri fyrirgjöf inn á teig og Tibbling nær að skalla boltann en Rosenörn sér við honum.
67. mín
Inn:Fred Saraiva (Fram) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
Fred að spila sínar fyrstu mínútur síðan 10. maí.
65. mín
Það er hiti Kennie Chopart virðist hafa vippað boltanum í höndina á Bödda Löpp en Helgi Mikael segir nei. Þá tryllist stúka Framara og Rúnar Kristins sömuleiðis. Kjartan Kári komst í skyndisókn í kjölfarið af þessu og átti skot en það fór beint á Viktor.
63. mín
Róbert Hauksson á fasta sendingu inn á teiginn sem endar hjá Má Ægissyni en hann hittir boltann illa.
61. mín
Inn:Úlfur Ágúst Björnsson (FH) Út:Dagur Örn Fjeldsted (FH)
Hér kemur þessi tvöfalda breyting. Sjáum hvort hún skili einhverju.
61. mín
Inn:Einar Karl Ingvarsson (FH) Út:Baldur Kári Helgason (FH)
61. mín Gult spjald: Sigurður Bjartur Hallsson (FH)
Brýtur á Þorra.
60. mín
Mér sýnist Heimir Guðjónsson vera að undirbúa tvöfalda skiptingu.
58. mín
Kjartan Kári reynir skot langt utan af velli en það fer beint á Viktor.
57. mín Gult spjald: Dagur Örn Fjeldsted (FH)
Fer eitthvað í Kennie Chopart við litla hrifningu stuðningsmanna Fram.
55. mín
Nú sækja Framarar hornspyrnu. Ekkert varð úr henni.
53. mín
FH-ingar eru alveg að koma sér í álitlegar stöður á vellinum en það vantar alltaf eitthvað upp á. Kjartan Kári er að bera upp sóknarleikinn ásamt Birni Daníel, aðrir verða að stíga upp.
49. mín
Þetta fer rólega af stað. FH eru samt með stjórn á þessu þessa stundina en Framarar eru þéttir til baka.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað!
45. mín
Fyrri hálfleik lokið Helgi Mikael flautar og liðið ganga til búningsherbergja. Heimamenn hafa verið með yfirhöndina nánast allan fyrir hálfleikinn en FH hefur tekið aðeins við sér. Seinni hálfleikurinn gæti orðið skemmtilegur.
45. mín
Viktor Freyr og Grétar Snær lenda eitthvað saman eftir bolta inn á teiginn og nú liggur Grétar eftir.
45. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti ein mínúta
43. mín
Það er eins og FH vilji ráðast á Harald Einar í vinstri bakverðinum. Heimir Guðjóns hvetur Kjartan Kára í hvert einasta skipti að fara á hann einn á einn.
42. mín Gult spjald: Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram)
Fyrsta gula spjaldið á loft Stoppar skyndisókn.
41. mín
Már Ægisson liggur eftir baráttu við Grétar Snæ við litla hrifningu Grétars.
38. mín
Nú er eins og Kjartan Kári og Dagur Örn Fjeldsted séu búnir að skipta um kanta. Kjartan Kári þá kominn á hægri kantinn og Dagur á þann vinstri. Sjáum hvort það skili einhverju.
37. mín
Birkir Valur á fínustu fyrirgjöf á SIgurð Bjart sem skallar boltann en nær ekki að stýra boltanum á markið.
34. mín
Fín tilraun Kjartan Kári skýtur yfir vegginn en tiltölulega beint á Viktor sem ver boltann yfir markið.
33. mín
FH-ingar fá nú aukaspyrnu vel fyrir utan teig sem Kjartan Kári ætlar að taka.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Þvílíkt skot!! Kyle McLagan ákveður að þruma á markið lengst utan af velli og boltinn fer í utanverða stöngina. Þvílík tilraun hjá hafsentinum!
29. mín
Grétar Snær á mjög tæpa sendingu til baka á Rosenörn sem Róbert Hauksson er hársbreidd frá því að komast inn í. Þeir verða að passa þetta.
27. mín
Gestirnir eru trekk í trekk að eiga misheppnaðar sendingar úr vörninni. Pressan frá Fram er gera þeim mikinn óleik, eins og er.
25. mín
Fred á bekknum Fred Saraiva er kominn aftur í leikmannahóp Fram eftir að hafa verið frá vegna meiðsla. Hann lék síðast 10. maí.

„Það er gríðarlega mikilvægt að fá hann aftur inn í hópinn. Hann hefur misst af síðustu leikjum og það er skarð fyrir skildi. Hann er frábær leikmaður. Hann er tilbúinn í einhverjar mínútur hér í dag en ekkert alltof margar. Hann er búinn að taka tvær eða þrjár æfingar og við þurfum að fara varlega af stað með hann," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, í viðtali við Sýn fyrir leikinn.
Elvar Geir Magnússon
23. mín
Besta færi FH hingað til! Tómas Orri kemur boltanum á Björn Daníel, sem af einhverjum ástæðum stendur einn og ótruflaður við vítateigslínuna en Björn á hættulegt skot sem lekur rétt framhjá markinu.
22. mín
Heimamenn hafa verið sterkari aðilinn hér í upphafi leiks og eru miklu beinskeyttari en FH í öllum sínum aðgerðum.
21. mín
Það er Vuk enn og aftur sem þeytist upp kantinn og kemur sér í fína stöðu inn á teignum og nær lausu skoti en Rosenörn á ekki í erfiðleikum með það.
18. mín
Már Ægisson á góðan bolta inn á markteig en Róbert Hauksson nær ekki að komast í hann. FH-ingar heppnir þarna.
17. mín
Framarar mæta nokkuð vel í stúkuna í kvöld eftir landsleikjahlé. Það má segja að markið hafi kveikt í hörðustu stuðningsmönnum Framara á borð við Stefán Pálsson og Valtý Björn.
16. mín
Vuk er að ógna mikið og á í þetta skiptið skot fyrir utan teig sem Rosenörn ver framhjá. Horn.
11. mín
Þetta mark sem Vuk skoraði kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Liðin höfðu fram að þessu ekki náð að tengja saman margar sendingar sín á milli.
6. mín
Vuk Oskar er fyrrverandi leikmaður FH og vakti það athygli einhverra að hann fagnaði ekki markinu gegn sínum gömlu félögum.
6. mín MARK!
Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
Stoðsending: Róbert Hauksson
Það er búið að brjóta ísinn! Kennie Chopart vinnur boltann á miðsvæðinu af Baldri Kára og gefur hann svo á Róbert Hauksson sem kemur sér í góða fyrirgjafarstöðu og neglir boltanum á fjærstöngina, þar sem Vuk Oskar stendur og potar boltanum inn!
2. mín
Þetta er farið af stað aftur. Tibbling heldur áfram.
1. mín
Simon Tibbling liggur strax eftir við miðjubogann og virðist hafa fengið höfuðhögg. Hann fær aðhlynningu og virðist nú alveg geta haldið áfram.
1. mín
Leikur hafinn
Helgi Mikael er búinn að flauta leikinn í gang. Það eru heimamenn sem hefja leik.
Fyrir leik
Byrjunarlið FH
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leikmenn verða mögulega pínu ryðgaðir og lengi að finna taktinn í dag eftir 2 vikna pásu, 2 passífir þjálfarar sem vilja halda markinu sínu hreinu. Undir 3 á Epic er á 2.05, vel boðið.
Fyrir leik
Byrjunarlið Fram
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarliðin: Framarar hafa tapað tveimur leikjum í röð en liðið beið lægri hlut gegn Val 2-1 í síðustu umferð. Guðmundur Magnússon fyrirliði Fram byrjar á bekknum en Már Ægisson kemur inn í byrjunarliðið.

FH gerði markalaust jafntefli gegn Aftureldingu í síðasta leik fyrir landsleikjagluggann. Birkir Valur Jónsson og Björn Daníel Sverrisson koma inn í byrjunarliðið. Úlfur Ágúst Björnsson er meðal varamanna.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Dómarateymið Aðaldómari leiksins er Helgi Mikael Jónsson. Með honum til aðstoðar eru Egill Guðvarður Guðlaugsson og Guðmundur Ingi Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Liðin Liðin eru að koma til baka eftir landsleikjahlé og verður fróðlegt að sjá hvernig þau koma undan því.

Fram hefur tapað seinustu tveimur leikjum sínum í Bestu deildinni á móti Val og KA en þeir höfðu verið á fínu skriði fyrir það. Liðið situr í 8. sæti með 12 stig.

FH gerði markalaust jafntefli við Aftureldingu á heimavelli í síðustu umferð en töpuðu á Þórsvelli gegn ÍBV í umferðinni á undan því.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kíkt í kristalskúluna Hinrik Harðarson, sóknarmaður Odd í Noregi, spáði fyrir 11. umferð Bestu deildarinnar.

Fram 1 - 2 FH (19:15 á morgun)
Risinn er byrjaður að rumska við sér og einhvern tímann þá vaknar hann. Myndi setja sérsveitina í gæslu á þennan leik því það eru tveir úlfar á hliðarlínunni þarna. Ætli Halli og Laddi loki ekki þessum leik fyrir Fimleikafélagið? Síðan étur pabbi Heimi í skák enn eina ferðina eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá leik Fram og FH á Lambhagavellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
13. Mathias Rosenörn (m)
2. Birkir Valur Jónsson ('78)
4. Ahmad Faqa ('78)
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
17. Dagur Örn Fjeldsted ('61)
21. Böðvar Böðvarsson
23. Tómas Orri Róbertsson ('78)
37. Baldur Kári Helgason ('61)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('78)
18. Einar Karl Ingvarsson ('61)
22. Ísak Óli Ólafsson ('78)
27. Jóhann Ægir Arnarsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('61)
34. Óttar Uni Steinbjörnsson
35. Allan Purisevic
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson ('78)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Emil Pálsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Guðmundur Jón Viggósson
Andres Nieto Palma
Kjartan Henry Finnbogason
Benjamin Gordon Mackenzie

Gul spjöld:
Dagur Örn Fjeldsted ('57)
Sigurður Bjartur Hallsson ('61)
Einar Karl Ingvarsson ('72)
Ahmad Faqa ('76)
Grétar Snær Gunnarsson ('88)

Rauð spjöld: