Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
5 - 1
Tindastóll
Tindastóll
0 - 127' Makala WoodsBirna Kristín Björnsdóttir 47'1 - 1Ída Marín Hermannsdóttir 55'2 - 1Maya Lauren Hansen 67'3 - 1María Dögg Jóhannesdóttir (sjm) 72'4 - 1Ída Marín Hermannsdóttir 83'5 - 1
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH sneri leiknum við með látum

Hvað réði úrslitum?

Taktísk breyting í hálfleik hjá FH, meiri gæði og vilji og þær bókstaflega rúlluðu yfir Tindastól og setja 5 mörk í seinni hálfleik!

Bestu leikmenn

1. Ída Marín Hermannsdóttir

Var flott í dag, setti 2 mörk og átti raun assist fyrir sjálfsmark Maríu Daggar. Seinna markið var síðan magnað! Fær fyrirgjöf sem hún setur viðstöðulaust á lofti í markið

2. Maya Lauren Hansen

Margar hér sem gera tilkall! FH liðið í heild setti í 6 gír í seinni hálfleik! Set þetta hins vegar á Maya hún var mjög öflug í fremstu línu FH og stöðugt ógnandi

Atvikið

Fyrsta mark leiksins, þegar þær stöllur Elísa Bríet og Makala pressa Söndru markmann FH og hreinlega stela af henni boltanum svo Tindastóll kemst í 0-1 gegn gangi leiksins. FH liðið brotnar aðeins við þetta og Stólarstelpur óheppnar að ná ekki fleiri mörkum inn. Hitt atvikið verð ég að nefna taktískar breytingar og skiptingar hjá FH í hálfleik! Birna Kristín kemur inn og setur strax jöfnunarmark og FH skiptir algjörlega um gír!

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega það að FH heldur sér í toppbaráttunni og eru í 2. sæti með 22 stig líkt og Breiðablik og Þróttur. Tindastóll hins vegar áfram í 8. sæti með 7 stig

Vondur dagur

Tindastólsliðið í seinni hálfleik fær þennan titil, mættu varla til leiks eftir hlé! Voru undir í allri baráttu eftir flottan fyrri hálfleik.

Dómarinn - 8

Dómaratríóið stóð sig vel í dag, engar stórkostlegar ákvarðanir og leikurinn fékk að fljóta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.