SKÝRSLAN: Breiðablik á toppinn
Hvað réði úrslitum?
Gestirnir mættu vel gíraðat til leiks og var eitt lið á vellinum fyrstu 70 minútur leiksins. Breiðablik komst í 2-0 í fyrri hálfleik og þá var löng leið fyrir Þór/KA til baka. Sonja Björg kom inn og kveikti lífi í heimakonur en þær náðu ekki að skora á Blikavörnina og 2-0 sigur Breiðablik staðreynd
Bestu leikmenn
1. Birta Georgsdóttir
Birta var frábær í sóknarleik Breiðablik, skoraði tvö og hefði geta skorað fleiri
2. Samantha Smith
Samantha lagði upp seinni markið og var lífleg á hægri væng Blika
Atvikið
Annað markið sem gerði þetta erfitt fyrir Þór/KA. Birta skoraði eftir frábæran undirbúning frá Samönthu
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik er komið á toppinn í Bestu deild kvenna.
Vondur dagur
Edith Kristín - Kom inn þegar korter var eftir og þurfti að fara meidd af velli 13 mínútum siðar.
Dómarinn - 8
Sveinn dæmdi þenann leik vel.




