Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
Vestri
0
0
Þór
18.06.2025  -  17:30
Kerecisvöllurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Besta vs Lengjan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári Lamude hefur verið að gera frábæra hluti með Vestra en liðið situr í þriðja sæti Bestu deildarinnar. Liðið vann KA 1-0 í síðustu umferð. Sigurður Heiðar Höskuldsson og lærisveinar í Þór eru án sigurs í síðustu þremur leikjum í Lengjudeildinni en þar situr liðið í sjöunda sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Leið liðanna í 8-liða úrslitin 2. umferð:
Þór 7-0 Magni

32-liða úrslit:
Vestri 3-3 HK (5-4 í vítakeppni)
Þór 3-1 ÍR

16-liða úrslit:
Breiðablik 1-2 Vestri
Selfoss 1-4 Þór

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Í banni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrír leikmenn taka út leikbann í þessum leik. Jeppe Pedersen í Vestra er í banni og tveir leikmenn Þórs; Aron Ingi Magnússon og Ibrahima Balde.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Bikar Baddi spáir vítakeppni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net í bikarnum og hann spáir í leikina.

Vestri 1 - 1 Þór (Þór í vító)
Þó Ibrahima Balde sé í banni þá smitar hann orku í liðsfélaga sína í aðdraganda leiksins, þessi leikur verður engin flugeldasýning en Þórsarar komast yfir með marki frá Ragnari Óla, Vestramenn stíga þá á bensíngjöfina í sóknarleiknum og finna jöfnunarmark fyrir leikslok, framlengingin verður eins og að horfa á málningu þorna en Þórsarar koma á óvart og klára Vestramenn í vító.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Þriðja liðið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er með flautuna. Gylfi Már Sigurðsson og Ragnar Þór Bender verða aðstoðardómarar leiksins og Gunnar Freyr Róbertsson fjórði dómari.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
8-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hér fylgjumst við með leik Vestra og Þórs í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Það eru áhugaverðir leikir framundan og spennandi að sjá hvað fjögur lið komast í undanúrslitin.

miðvikudagur 18. júní
17:30 Vestri-Þór (Kerecisvöllurinn)
20:00 Stjarnan-Keflavík (Samsungvöllurinn)

fimmtudagur 19. júní
17:30 ÍBV-Valur (Þórsvöllur Vey)
20:00 Afturelding-Fram (Malbikstöðin að Varmá)
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: