Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 08:00
Elvar Geir Magnússon
Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Arsenal ekki búið að bjóða í Sesko
Powerade
Heung-Min Son.
Heung-Min Son.
Mynd: EPA
Kaoru Mitoma.
Kaoru Mitoma.
Mynd: EPA
Á hverjum degi þá skoðum við helsta slúðrið úr enska boltanum og víðar. BBC tekur saman. Í pakka dagsins er meðal annars fjallað um áhuga á Son Heung-min og Sancho er á óskalista Napoli.

Sádi-arabísku félögin Al-Ahli, Al-Nassr og Al-Qadsiah hafa lýst yfir áhuga á framherjanum Son Heung-min (32) hjá Tottenham Hotspur. Félögin eru tilbúin að borga 34 milljónir punda leikmanninn. (TalkSport)

Bayern München hefur áhuga á Kaoru Mitoma (28) hjá Brighton og og Cody Gakpo (26) hjá Liverpool ef félagið nær ekki að krækja í Nico Williams (22) frá Athletic Bilbao. (Sky Þýskalandi)

Arsenal hefur enn ekki gert formlegt tilboð í Benjamin Sesko (22) en félaginu finnst verðmiði RB Leipzig á slóvenska framherjanum vera of hár. (Florian Plettenberg)

Hægri bakvörðurinn Max Aarons (25) hjá Bournemouth er á óskalista skoska félagsins Rangers. Bournemouth vill freka selja hann en lána. (Daily Record)

Enski vinstri bakvörðurinn Zak Sturge (21) hjá Chelsea er á barmi þess að ganga til liðs við Millwall til frambúðar eftir að hafa staðið sig vel hjá félaginu á láni síðasta tímabil. (Daily Express)

Trabzonspor er að reyna að fá varnarmanninn Axel Tuanzebe (27) frá Ipswich Town. (Takvim)

AC Milan hefur fundað með umboðsmönnum svissneska miðjumannsins Granit Xhaka (32) hjá Bayer Leverkusen. (Football Italia)

Napoli er að reyna að fá vængmanninn Jadon Sancho (25) frá Manchester United. Sancho átti misheppnaða lánsdvöl hjá Chelsea á síðasta tímabili. (Gianluca di Marzio)

Nottingham Forest hefur áhuga á miðjumanninum Richard Rios (25) hjá Palmeiras en samningur hans við brasilíska félagið inniheldur 85 milljóna punda riftunarákvæði. (Give Me Sport)

Leeds United og Aston Villa hafa áhuga á senegalska miðjumanninum Habib Diarra (21) hjá Strassborg. (Sports Mole)

Manchester United hefur gert nýjan eins árs samning við enska markvörðinn Tom Heaton (39). (Fabrizio Romano)
Athugasemdir