SKÝRSLAN: Vestri kláraði dæmið í fyrri hálfleik
Hvað réði úrslitum?
Vestramenn bara miklu betri í fyrri hálfleik og kláruðu þetta bara í fyrri hálfleik og lokuðu svo markinu vel í stöðunni 2-0
Bestu leikmenn
1. Eiður Aron
Eiður á stóran þátt í báðum mörkum Vestra og var flottur varnarlega líka.
2. Benjamin Schubert
Varði vel þegar hann þurfti að verja og virkaði öruggur í marki Vestramanna í dag.
Atvikið
Fyrsta mark Vestra kláraði eiginlega þennan leik, Þórsarar voru eiginlega aldrei líklegir að koma tilbaka
Hvað þýða úrslitin?
Vestri eru komnir í undanúrslit í Mjólkurbikarnum og Þórsarar geta farið að einbeita sér að deildinni.
Vondur dagur
Þórsararnir í fyrri hálfleik, voru orkulitlir en komu sterkari út í seinni. Get ekki gefið neinum leikmanni þetta í dag en Þórsararnir fá þetta allir sem lið fyrir fyrri hálfleikinn
Dómarinn - 6
Hann var bara allt í lagi nokkur atvik sem ég set spurningamerki við en annað gerði hann bara vel.


