ÍBV
0
0
Valur

19.06.2025 - 17:30
Þórsvöllur Vey
Mjólkurbikar karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Þórsvöllur Vey
Mjólkurbikar karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
Láki: Gríðarleg pressa svífur yfir leikmönnum og þjálfurum Vals
„Við erum mjög vel stemmdir, það eru fá lið eftir í keppninni og við erum búnir að vera sterkt bikarlið, slegið út bæði KR og Víking. Okkur finnst gott að mæla okkur við bestu liðin. Breiðablik, sem við mættum á sunnudag, er með sterka einstaklinga í sínu liðið og það var gaman að spila við þá. Við erum með ungan hóp af leikmönnum sem mér finnst vera að bæta sig mikið og þá langar að spila við bestu leikmennina," segir Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV.
„Valur er með marga góða leikmenn, misstigu sig náttúrulega á laugardaginn, og fyrir vikið er eflaust töluverð pressa á þeim í þessum leik. Maður sér að það svífur yfir gríðarleg pressa á leikmönnum og þjálfurum liðsins. Við búumst bara við svipuðum leik og gegn Breiðabliki, teljum að Valur muni líka fara í að beita löngum sendingum fram völlinn og reyna vinna seinni boltann. Ég held að liðin séu að lesa þetta þannig að liðin þurfi að breyta leik sínum þegar þau spila á grasi."
„Valur er með marga mjög góða fótboltamenn, en okkar reynsla er - út frá Breiðabliki sem er málsvari stuttra sendinga og leikstílsins að ná yfirmönnun á miðjunni - þegar þannig lið er farið að beita þessum leikstíl þá teljum við að liðin séu að lesa þetta þannig að þau þurfi að gera það á þessum velli. Við þurfum að vera viðbúnir því."
„Að því sögðu er Valur með marga hrikalega góða leikmenn. Það getur verið að þeir treysti sér í að spila eins og þeir myndu gera á gervigrasi."
Hjörvar Daði Arnarsson hefur spilað bikarleikina til þessa en Marcel Zapytowski hefur verið í markinu í deildinni. Ertu búinn að taka ákvörðun hvort Marcel eða Hjörvar Daði verði í markinu?
„Nei, við erum að skoða núna hverjir eru klárir í að spila, eru leikhæfir. Það er endurheimt í dag (mánudag) og svo tökum við ákvörðun um markmannsstöðuna og aðrar stöður á miðvikudaginn," sagði Láki í viðtali í vikunni.

Leið liðanna í 8-liða úrslit
32-liða úrslit:
ÍBV 3-0 Víkingur
Grindavík 1-3 Valur
16-liða úrslit:
KR 2-4 ÍBV
Valur 2-1 Þróttur
ÍBV 3-0 Víkingur
Grindavík 1-3 Valur
16-liða úrslit:
KR 2-4 ÍBV
Valur 2-1 Þróttur

Fyrir leik
Bikar Baddi spáir fjöri
Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net í bikarnum og hann spáir í leikina.
ÍBV 2 - 3 Valur
Bikar-Láki er að gera magnaða hluti þarna í Eyjum og er farinn að sjá fyrir sér titil, því miður lenda Eyjamenn bara í Bjarna Mark hakkavélinni sem fær ekki rautt í þetta skiptið heldur skorar, leggur upp og bjargar á línu, þetta verður leikur umferðarinnar og mikil skemmtun fyrir alla áhorfendur, Sverrir Hjaltested setur einn rýting í gömlu félagana en Patrick Pedersen skorar í leiknum og fagnar með því að benda á TG9 í textalýsingarboxinu.

Kúrdíski pylsusalinn dæmir
Twana Khalid Ahmed dæmir leikinn. Guðmundur Ingi Bjarnason og Þórður Arnar Árnason eru aðstoðardómarar og Gunnar Oddur Hafliðason er fjórði dómari.