Fotbolti.net
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Lengjudeild kvenna
BIRTU völlurinn
Haukar
Haukar
2 - 3
KR
KR
0 - 120' Kara GuðmundsdóttirRakel Lilja Hjaltadóttir 41'1 - 11 - 246' Katla Guðmundsdóttir1 - 355' Kara GuðmundsdóttirElín Björg Norðfjörð Símonardóttir 70'2 - 3
Dómari: Ingibjartur Jónsson
Leik lokið!
Þetta er búið! KR-ingar vinna hér 3-2 sigur eftir fjörugan leik! Viðtöl koma inn seinna í kvöld. Takk fyrir samfylgdina!
97. mín
Stefnir allt í KR sigur.
Haukar
93. mín
Gult spjald

Kristín Erla Halldórsdóttir

Gult fyrir hendi.
92. mín
KR næstum búnar að klára þetta! Katla í dauðafæri ein á móti markmannien vel varið hjá Viktoríu.
91. mín
Haukar að vinna aukaspyrnu á hættulegum stað. Fáum við drama?! Flott vörn hjá KR og gestirnir hreinsa.
Haukar
88. mín
InnKristín Erla Halldórsdóttir
ÚtRut Sigurðardóttir
Tvöföld skipting hjá Haukum.
Haukar
88. mín
InnRagnheiður Tinna Hjaltalín
ÚtÁsdís Halla Jakobsdóttir
86. mín
Haukar að fá aukaspyrnu á vænlegum stað. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn. Kemur hættulegur bolti fyrir en sóknin rennur út í sandinn. Markspyrna frá marki KR.
83. mín
Sjö mínútur eftir af hefðbundnum leiktíma og Haukar í leit af jöfnunarmarki. Mikil spenna í þessu!
KR
79. mín
InnEmilía Ingvadóttir
ÚtMaya Camille Neal
Maya fer meidd útaf.
77. mín
Maya liggur eftir og þarfnast aðhlynningar. Virðist kvalin, vonandi ekkert alvarlegt.
76. mín
Framhjá
Katla í góðu færi en skýtur framhjá.
76. mín
Frábær fótboltaleikur og mikið fjör! Þetta mark Elínar búið að hleypa lífi í þennan leik
KR
74. mín
InnÞórey Björk Eyþórsdóttir
ÚtAnna Björk Kristjánsdóttir
Anna fer meidd útaf.
Haukar
73. mín
InnSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
ÚtKristín Magdalena Barboza
Haukar
70. mín
Geggjað mark!

Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir

Haukar að minnka munin! Elín á harðaspretti upp hægri kanntinn. Hún gerir stórvel og prjónar sig framhjá varnarmönnum KR. Kemur sér í skotfæri og klárar með glæsivel í hornið! KR-ingar verið með nærri öll völd á vellinum í þessum seinni hálfleik en Haukar rækilega búnar að koma sér inn í þenann leik! 3-2!
68. mín
Framhjá
Ásdís á flotta sendingu upp völlinn á Höllu sem er á hörkuspretti! Halla kemur sér í skotfæri en setur boltann framhjá fjærstönginni.
63. mín
Berglind vinnur boltann inni á sínum vallarhelming og á flottann sprett upp völlinn. Prjónar sig framhjá varnarmönnum KR en fær litla hjálp. Haukar uppskera hornspyrnu. Ekkert verður úr horninu.
KR
62. mín
InnAnna María Bergþórsdóttir
ÚtÓlöf Freyja Þorvaldsdóttir
Ólöf getur ekki haldið leik áfram.
61. mín
Ólöf Freyja er löggst í grasið og þarfnast aðhlynningar. Vonandi ekkert alvarlegt.
60. mín
Rétt framhjá!
Enn sækja gestirnir. Katla Guðmunds á skot sem sleikir stöngina og fer rétt framhjá.
Haukar
58. mín
InnGlódís María Gunnarsdóttir
ÚtRakel Lilja Hjaltadóttir
Fyrsta skipting leiksins er Haukamegin. Sjáum hvort Heimakonur geti rifið þennann seinni hálfleik sinn í gang.
57. mín
KR verið dómínerandi í þessum seinni hálfleik og halda áfram að ógna. Lina með góðan bolta inn á teig Hauka. Skallinn framhjá.
KR
55. mín
KR-ingar komnar í 3-1!

Kara Guðmundsdóttir

Gestirnir verið miklu sterkari í þessum seinni hálfleik. Haukar tapa boltanum í uppspili og berst á Köru. Hún á skot í átt að marki, á viðkomu í varnarmanni og í netið! KR komnar í 3-1!
52. mín
Hætta
Haukar komast í vænlega stöðu og eru 3 á móti 3. Berglind rekur boltann upp völlinn og ákveður að skjóta. Skotið fast en Helena ver.
50. mín
Darraðadans inni á teig heimakvenna. Rakel með boltann og á skot sem fer af varnarmanni til Viktoríu í marki Hauka.
47. mín
Rut vinnur boltann á miðjum velli og ætlar að gefa hann inn fyrir varnarlínu KR-inga en sendingin ekki nægilega góð. Boltinn endar í höndum Helenu.
KR
46. mín
Ekki lengi gert!

Katla Guðmundsdóttir

Seinni hálfleikurinn nýhafinn og KR-ingar strax komnar yfir. Heimakonur ekki mættar til leiks og Katla kemur KR-ingum yfir á ný!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
45. mín
Skemmtilegur hálfleikur að baki!
Fjörugur leikur hér í Hafnafirðinum. KR-ingar sterkari framan af en leikurinn jafnast út og staðan 1-1 er liðin ganga til búningsherbergja. Verið stuð í stúkunni sem er alltaf gaman að sjá! Fáum vonandi jafn fjörugan seinni hálfleik. Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn.
44. mín
Góður sprettur hjá Elínu sem gefur boltann inn á teig KR-inga en sóknin rennur út í sandinn.
Haukar
41. mín
ALLT ORÐIÐ JAFNT!

Rakel Lilja Hjaltadóttir (stoðsending: Rut Sigurðardóttir)

Sturlaður bolti inn fyrir vörn KR-inga frá Rut. Rakel gerir vel og skallar boltann framhjá Helenu í markinu! Smá rangstæðulykt af þessu en flaggið helst niðri og staðan 1-1!
39. mín
Hætta!
Góð skyndisókn hjá Haukum og berst boltinn á Berglindi sem tekur skot í fyrsta. Hún hittir boltann ekki vel og endar framhjá.
38. mín
Skemmtileg tilraun!
Maya gefur boltann inn á teig Hauka og Katla nær til boltanns. Katla kemur með skemmtilega tilraun og sparkar boltanum afturfyrir sig í átt að marki en Viktoría ver.
37. mín
Haukar vinna hornspyrnu sem Rut tekur. Góður bolti inn á teiginn en hann svífur yfir allan pakkann og aftur fyrir endamörk.
32. mín
Tvær hættulegar hornspyrnur frá Haukum. Þær verið að ógna síðastliðnar mínútur.
30. mín
Halla á hálfgerða skot/fyrirgjöf og Haukar uppskera horn. HÆTTA! Mikil hætta skapast eftir darraðadans inn á teig gestanna. Haukar fá annað horn.
27. mín
Haukar verið að leita af svari við marki gestanna en KR-ingar a' gera vel og ná að stöðva sóknir þeirra í fæðingu.
23. mín
Haukar að vinna hornspyrnu. Ekkert verður úr því og gestirnir hreinsa.
KR
20. mín
MARK!!!

Kara Guðmundsdóttir

Klúður í uppspili hjá Haukum. Viktoría gefur boltann beint á Köru sem er sultuslök og klárar laglega fram hjá henni í markinu. KR leiðir!
16. mín
Enn skjóta KR-ingar á mark Hauka. Kara á lúmskt skot meðfram jörðinni sem Viktoría gerir vel í að verja.
13. mín
Ólöf Freyja á skot á mark rétt fyrir utan d-bogann. Boltinn beint á Viktoríu sem ver.
12. mín
Leikurinn aðeins jafnast eftir hörku byrjun KR-inga. Heimakonur að vinna sig inn í þetta.
10. mín
Skot á mark
Flottur sprettur hjá Rakel upp hægri kantinn. Hún gefur á Köru sem á skot fyrir utan teig. Boltinn tiltölulega beint á Viktoríu sem ver.
8. mín
RÉTT FRAMHJÁ!
Rakel Lilja vinnur boltann fyrir Hauka og gefur hann á Höllu. Halla ein á móti markmanni og vippar honum hátt yfir Helenu. Boltinn sleikir stöngina og fer rétt framhjá. Dauðafæri!
8. mín
KR-ingar verið mun hættulegri hér í byrjun leiks.
7. mín
Víti?
Viktoría nær ekki að spila boltanum út og gefur boltann á KR-ing. sóknamaðurinn spörkuð niður inn í teig. Fannst þetta nú mega vera víti, en dómarinn segir nei.
6. mín
Fyrsta horn leiksins er KR-inga.
6. mín
Maya með bolta inn á teig Hauka en Viktoría kemur úr marki sínu og hrifsar til sín boltann.
3. mín
Mikil orka í báðum liðum fyrstu mínúturnar og læti í stúkunni. Gaman að sjá!
1. mín
Þetta er komið í gang!
KR-ingar rúlla þessu af stað.
0. mín
Þetta fer að byrja!
Liðin ganga nú inn á völlinn. Styttist í þetta.
0. mín
Fínustu aðstæður!
Styttist í upphafsflautið hér í Hafnarfirðinum. Hér eru 11°C, skýjað og gola. Fáum vonandi hörkuleik hér í kvöld!
0. mín
Staðan!
Svona lítur deildin út fyrir leiki kvöldsins: ÍBV - 16 stig Grindavík/Njarðvík - 16 stig HK - 15 stig Grótta - 12 stig KR - 10 stig Keflavík - 9 stig Haukar - 7 stig ÍA - 6 stig Fylkir - 6 stig Afturelding - 3 stig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Dómarateymið
Ingibjartur Jónsson er aðaldómari hér í kvöld. Honum til halds og trausts eru þeir Elías Baldvinsson og Hrannar Björn Arnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
KR
KR-ingum var fyrir tímabilið spáð 8. sæti Lengjudeildarinnar en þær eru eins og er í 5. sæti með tíu stig eftir fimm umferðir. KR tapaði gegn Gróttu í síðustu umferð en leikurinn fór 4-2. Anna María er markahæst í liði KR það sem af er sumri en hún er hingað til komin með fjögur mörk á tímabilinu.
Mynd: Mummi Lú
0. mín
Haukar
Heimakonur kvöldsins eru eins og er í 7. sæti Lengjudeildarinnar. Haukum var fyrir tímabilið spáð 9. sætinu af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar. Haukar tóku á móti ÍA í síðustu umferð þar sem leikar enduðu 1-1 en það var Halla Þórdís Svansdóttir sem var á skotskónum fyrir Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
0. mín
Hafnarfjörðurinn heilsar!
Komið þið sæl og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign Hauka og KR í Lengjudeild kvenna. Leikurinn fer fram á BIRTU vellinum og hefst klukkan 19:15
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.