SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Fjölnis í 284 daga
Hvað réði úrslitum?
Fjölnismenn skoruðu tvö mörk á tveimur mínútum í fyrri hálfleik sem setti tóninn út leikinn. Fjölnismenn þurftu sigurinn meira en Þróttur og vildu hann meira. Meiri stemning í Grafarvogsbúum sem gerðu mjög vel að vinna stórt í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Reynir Haraldsson
Fékk bandið í dag og stóð fyrir sínu. Lagði upp fyrsta markið á Hilmar Elís sem var sömuleiðis frábær í dag. Mikil ógn sem skapaðist á vinstri vængnum hjá Fjölni og sömuleiðis lítil hætta á hægri væng Þróttara. Einn af reynsluboltunum í þessu Fjölnisliði sem er mjög ungt lið. Fyrirliðinn skilaði sínu í kvöld.
2. Bjarni Þór Hafstein
Leggur upp eitt, skorar eitt og lagði líf og sál í leikinn. Það var kveikt á Bjarna í dag sem er mikilvægt fyrir Fjölni. Þegar hann er on it er sóknarleikur Fjölnis oft mjög góður. Mikil hætta sem skapaðist þegar hann var á boltanum og frábær afgreiðsla hjá honum í öðru markinu.
Atvikið
Annað mark Fjölnis setti tóninn út leikinn og stemningin var mikil í Fjölnisliðinu eftir það mark sem var ákveðinn vendipunktur í leiknum. Þróttarar gátu lítið sem ekkert eftir 2-0 markið.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn vinna sinn fyrsta sigur í sumar og fyrsta sigur í 284 daga, eða þegar þeir unnu Aftureldingu 8. september í fyrra. Þróttarar eru áfram í 4. sætinu.
Vondur dagur
Mér fannst Þórhallur í marki Þróttara vera dapur í dag. Fannst hann virka óöruggur og hann er núna búinn að fá á sig 12 mörk í 5 heimaleikjum í sumar.
Dómarinn - 6
Vel dæmdur leikur hjá Sveini og félögum en það er dýrt fyrir Fjölni að missa Árna í bann í næsta leik. Það var mjög lítið í þessu og ekki nógu mikið til að vera annað gula og rautt. Annars dæmdu þeir þetta ágætlega í kvöld.



