Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
Í BEINNI
Besta-deild karla
ÍA
LL 0
3
Stjarnan
ÍA
0
3
Stjarnan
0-1 Benedikt V. Warén '41
Baldvin Þór Berndsen '50 , sjálfsmark 0-2
0-3 Andri Rúnar Bjarnason '53
22.06.2025  -  19:30
ELKEM völlurinn
Besta-deild karla
Maður leiksins: Benedikt V. Warén
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall ('32)
5. Baldvin Þór Berndsen
9. Viktor Jónsson
13. Erik Tobias Sandberg
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f) ('88)
17. Gísli Laxdal Unnarsson ('65)
19. Marko Vardic ('88)
20. Ísak Máni Guðjónsson
22. Ómar Björn Stefánsson ('65)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Jón Sölvi Símonarson (m)
7. Haukur Andri Haraldsson ('65)
11. Brynjar Óðinn Atlason
15. Gabríel Snær Gunnarsson ('65)
18. Guðfinnur Þór Leósson ('88)
23. Robert Elli Vífilsson ('88)
33. Arnór Valur Ágústsson ('32)
77. Jón Viktor Hauksson
87. Styrmir Jóhann Ellertsson
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Stefán Þór Þórðarson
Teitur Pétursson
Dino Hodzic
Mario Majic
Logi Mar Hjaltested

Gul spjöld:
Rúnar Már S Sigurjónsson ('42)
Jón Gísli Eyland Gíslason ('59)
Marko Vardic ('76)

Rauð spjöld:
@ Alexander Tonini
Skýrslan: Stjarnan kláraði færin – ÍA ekki
Hvað réði úrslitum?
Gæðin í sóknarleik Stjörnumanna réðu úrslitum í leiknum. ÍA fékk vissulega sín færi, en tókst ekki að koma boltanum í netið. Bæði lið sköpuðu sér fjölda marktækifæra, þó Stjarnan hafi verið sterkari aðilinn heilt yfir. Það var hins vegar lokaafgreiðslan sem gerði útslagið og tryggði gestunum sigurinn í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Benedikt V. Warén
Hann var virkilega öflugur í kvöld á vinstri vængnum og skapaði stöðuga ógn við mark Skagamanna. Skoraði fyrsta mark leiksins og átti drjúgan þátt í öðru markinu, sem þó var skráð sem sjálfsmark – en það var engu að síður hans verk sem gerði út um leikinn.
2. Samúel Kári Friðjónsson
Hann stjórnaði vörninni eins og herforingi – með yfirvegun og stjórn á öllum aðstæðum, aldrei stressaður þrátt fyrir pressu. Auk þess átti hann fjölda langra og nákvæmra sendinga úr vörninni. Ein slík opnaði vörn heimamanna og sendi Benedikt Waren í gegn, sem skoraði fyrsta mark leiksins – og tímasetningin, rétt fyrir hálfleik, var frábær fyrir gestina.
Atvikið
Seinna mark Stjörnunnar kom eins og blaut tuska í andlitið á heimamönnum. Skagamenn mættu ákveðnir til leiks eftir hlé og sköpuðu sér tvö dauðafæri til að jafna, en tókst ekki að nýta þau. Til að bæta gráu ofan á svart var markið sem þeir fengu á sig bæði klaufalegt og beinlínis vandræðalegt – og tók allan vind úr seglum liðsins.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Lárus Orri er að taka við erfiðu búi sem situr þægilega í neðsta sæti Bestu deildarinnar, ekki endilega öfundsvert verkefni það. Á sama tíma heldur Stjarnan áfram á blússandi siglingu, fer tímabundið upp í 3. sæti og er nú orðin raunverulegur þátttakandi í toppbaráttunni. Stjarnan getur ekki endað neðar en í 4. sæti eftir fyrstu tólf umferðirnar.
Vondur dagur
Ég verð að veita dauðafærunum tveimur sem ÍA fékk í kvöld þennan óheiður – bæði atvikin voru mjög sambærileg og nýttust afar illa. Fyrra færið fékk Gísli Laxdal, einn og yfirgefinn með nægan tíma, en endaði með veiku skoti beint á Árna. Í seinna skiptið var það Rúnar Már sem komst einn á móti markverðinum, en maður fann varla fyrir neinni trú eða sannfæringu í því sem hann ætlaði sér – skotið beint á Árna, aftur.
Dómarinn - 5
Nokkur atvik sem ég var ekki sammála Gunnari Frey hér i kvöld. Fyrsta atvikið var þegar Gummi Kri hrindir Ómari sem var kominn framhjá honum og ekkert gult spjald. Seinna atvikið var þegar Marki Vardic átti hreinlega að fá rautt spjald þegar hann hreinlega gerir áras á Guðmund Baldvin í pirringskasti. Þessi tvö atvik lita svolítið frammistöðuna hér í kvöld en að öðru leyti vel dæmdur.
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson
5. Guðmundur Kristjánsson (f) ('45)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson ('88)
8. Jóhann Árni Gunnarsson ('73)
10. Samúel Kári Friðjónsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
23. Benedikt V. Warén ('73)
29. Alex Þór Hauksson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('73)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
11. Adolf Daði Birgisson ('73)
22. Emil Atlason
24. Sigurður Gunnar Jónsson ('88)
28. Baldur Logi Guðlaugsson ('73)
30. Kjartan Már Kjartansson
32. Örvar Logi Örvarsson ('45)
37. Haukur Örn Brink ('73)
43. Gísli Snær Weywadt Gíslason
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Rajko Stanisic
Þór Sigurðsson
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Aleksandar Cvetic

Gul spjöld:
Jóhann Árni Gunnarsson ('45)

Rauð spjöld: