Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 10:26
Brynjar Ingi Erluson
Guehi gæti verið áfram hjá Palace - McTominay er ekki til sölu
Powerade
Marc Guehi gæti verið áfram hjá Palace
Marc Guehi gæti verið áfram hjá Palace
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Napoli ætlar ekki að selja Scott McTominay
Napoli ætlar ekki að selja Scott McTominay
Mynd: EPA
Rodrygo er með háar launakröfur
Rodrygo er með háar launakröfur
Mynd: EPA
Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins en það eru margir áhugaverðir molar að þessu sinni.

Marc Guehi (24), skotmark Liverpool, er reiðubúinn að klára samning sinn hjá Crystal Palace ef hann fær ekki rétta tilboðið í sumar. Palace vill selja hann í sumar til að eiga ekki í hættu á að missa hann frítt. (Guardian)

Ítalíumeistarar Napoli hafa blandað sér í baráttuna við Interum Rasmus Höjlund (22), framherja Manchester United, en Ruben Amorim, stjóri United, er sagður opinn fyrir því að selja leikmanninn. (Gazzetta dello Sport)

Launapakki brasilíska leikmannsins Rodrygo (24), sem er á mála hjá Real Madrid, gæti verið hindrun fyrir Arsenal sem hefur mikinn áhuga á að fá hann. Rodrygo þénar um 10,2 milljónir punda í árslaun. (AS)

Sádi-arabíska félagið Al Hilal hefur spurst fyrir um Scott McTominay (28), miðjumann Napoli, en ítalska félagið hefur engan áhuga á að fara viðræður. (Football Italia)

Chelsea er opið fyrir því að selja senegalska framherjann Nicolas Jackson (24). Juventus og Napoli hafa bæði áhuga. (Gianluca Di Marzio)

Arsenal vill halda áfram að styrkja miðsvæðið og gæti félagið nú fengið Christian Norgaard (31) frá Brentford. (Mirror)

Andre Onana (29), markvörður Manchester United, vill vera áfram hjá félaginu og berjast fyrir sæti sínu. Mónakó hefur sýnt honum áhuga síðustu daga. (Guardian)

Bayern München heldur enn í vonina um að fá Nico Williams (22) frá Athletic Bilbao, þó hann hafi þegar náð samkomulagi við Barcelona. (Mundo Deportivo)

Marcus Rashford (27), framherji Manchester United, vonast enn til að komast til Barcelona þó félagið sé við það að landa Nico Williams. (Times)

Paris Saint-Germain er áfram í viðræðum við Bournemouth um úkraínska miðvörðinn Illia Zabarnyi (22). (L'Equipe)

Jadon Sancho (25), vængmaður Manchester United, vill heldur fara til Napoli en Juventus. (Sky Sports)

Atlético Madríd fylgist náið með stöðu Emiliano Martínez (32) hjá Aston Villa. Spænska félagið gæti reynt við argentínska landsliðsmarkvörðinn ef Jan Oblak (32) fer frá félaginu í sumar. (Telegraph)
Athugasemdir
banner
banner