Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 0
1
Fram
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 1
4
Fjölnir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
LL 0
1
Valur
Lengjudeild kvenna
Haukar
LL 2
3
KR
Afturelding
0
1
Fram
0-1 Freyr Sigurðsson '68
19.06.2025  -  20:00
Malbikstöðin að Varmá
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: RIgning á köflum
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 662
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
4. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
8. Aron Jónsson
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
19. Sævar Atli Hugason ('76)
20. Benjamin Stokke
21. Þórður Gunnar Hafþórsson ('74)
30. Oliver Sigurjónsson ('63)
77. Hrannar Snær Magnússon
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
7. Aron Jóhannsson ('63)
9. Andri Freyr Jónasson ('74)
11. Arnór Gauti Ragnarsson
22. Rikharður Smári Gröndal
24. Sölvi Geir Hjartarson
25. Georg Bjarnason
27. Enes Þór Enesson Cogic ('76)
79. Róbert Agnar Daðason
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Sigurpáll Melberg Pálsson
Heiðar Númi Hrafnsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Þórður Ingason

Gul spjöld:
Bjartur Bjarmi Barkarson ('40)
Aron Elí Sævarsson ('42)
Aron Jóhannsson ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Framarar vinna hér sterkan sigur sem var í raun aldrei í hættu eftir að markið kom. Afturelding voru aldrei líklegir til að jafna þennan leik eftir að hafa lent undir og því ljóst að Fram spilar til undanúrslita i bikarnum.
93. mín Gult spjald: Aron Jóhannsson (Afturelding)
Harkalegt brot á miðjum velli.
92. mín
Framarar eyða bara tíma í horninu þessa stundina.
90. mín
Sex mínútum bætt við.
90. mín
Frábært skot hjá Simon Tibbling og enn betri varsla frá Jökli. Ekki við Jökul að sakast í dag.
90. mín
Skapa ekkert úr þessu, dapurt hjá Aftureldingu frá því að Fram komst yfir.
89. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á hættulegum stað, nú er tækifærið.
86. mín
Inn:Þorri Stefán Þorbjörnsson (Fram) Út:Fred Saraiva (Fram)
Þetta skot hjá Fred var það síðasta hjá honum í dag.
85. mín
Fast skot utan af velli frá Fred sem fer langt yfir.
81. mín
Hvorugt liðið ógnað almennilega síðan markið kom.
76. mín
Inn:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding) Út:Sævar Atli Hugason (Afturelding)
Sævar Atli að kveinka sér og lýkur leik.
74. mín
Inn:Magnús Þórðarson (Fram) Út:Róbert Hauksson (Fram)
74. mín
Inn:Andri Freyr Jónasson (Afturelding) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Afturelding)
68. mín MARK!
Freyr Sigurðsson (Fram)
Stoðsending: Vuk Oskar Dimitrijevic
Fyrsta markið er komið! Vuk með flotta fyrirgjöf fyrir á varamanninn Frey sem er kominn í dauðafæri og getur ekki annað gert en að skalla þetta inn!

Hleypir þetta lífi í heimamenn?
67. mín Gult spjald: Sigurjón Rúnarsson (Fram)
Stoppar hraða sókn.
63. mín
Inn:Aron Jóhannsson (Afturelding) Út:Oliver Sigurjónsson (Afturelding)
63. mín
Hvernig endar þetta ekki inni? Kennie með frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Vuk er mættur og á að pota þessu inn en Bjarni Páll sýnist mér nær að pota þessu í burtu.
61. mín
Fram byrjaði seinni hálfleik betur en nú hefur leikurinn róast.
55. mín
Inn:Freyr Sigurðsson (Fram) Út:Már Ægisson (Fram)
Fyrsta skipting leiksins er gestanna.
54. mín
Róbert Hauksson hér í dauðafæri eftir fyrirgjöf frá Má en skallinn rétt yfir.
48. mín
Virkilega vel varið! Kennie Chopart með fyrirgjöf sem fer að varnarmanni og er á leið í netið en Jökull vel á verði og heldur boltanum frá marki
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Heimamenn hefja leik að nýju.
45. mín
Hálfleikur
Og í þann mund sem boltinn skellur í slánni flautar Ívar til hálfleiks. Nokkuð rólegt hér í fyrri hálfleik en nóg eftir.
45. mín
Sláin! Bjarni Páll hér í góðu færi inn á teignum og setur hann í slánna!

Það næsta sem liðin hafa komist að því að skora.
42. mín Gult spjald: Aron Elí Sævarsson (Afturelding)
Groddaralegt.
40. mín Gult spjald: Bjartur Bjarmi Barkarson (Afturelding)
Stoppar hraða sókn.
37. mín
Bjarni Páll hérna með stórkostlegan bolta á Stokke sem er í dauðafæri á fjær en Viktor ver mjög vel. Ívar flautar samt aukaspyrnu og bakhrindingu á Stokke.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Már Ægisson hér á hættulegum stað og reynir að renna honum í gegn á Vuk en Bjarni Páll nær að pota þessu í horn.
26. mín
Þórður Gunnar með frábæran bolta inn á teiginn þar sem Stokke nær ekki alveg nægilega góðum skalla og boltinn framhjá.
21. mín
Frábær varsla! Vuk Óskar fær hér boltann á vallarhelmingi heimamanna, keyrir í átt að marki og hamrar honum í átt að marki en Jökull ver frábærlega í horn.
18. mín
Þórður Gunnar tók spyrnuna og Sævar skallaði boltann fyrir markið á Bjarna Pál sem var í afar þröngu færi og setur hann framhjá.
17. mín
Afturelding fær hér aukaspyrnu á álitlegum stað fyrir fyrirgjöf
11. mín
Hrannar hérna með skemmtilegan sprett og góðan bolta á Sævar Atla sem nær ekki að gera nægilega vel hér í góðri stöðu.
9. mín
Framarar fá hér þrjú horn með stuttu millibili en ná ekki að skapa sér neitt marktækt.
7. mín
Boltinn dettur vel fyrir Oliver Sigurjóns sem á þrumuskot sem að Viktor gerir vel í að handsama.
5. mín
Ekkert kemur úr horninu.
4. mín
Gestirnir fá fyrsta horn leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Fram hefur leik.
Fyrir leik
Það er ljóst að Afturelding forgangsraðar deildinni fram yfir Bikarkeppnina og það er vatn á myllu Frammara. Fyrir þá sem fara varfærnislega þá er Fram sem sigurvegari einvígs er 1.72 á Epic. Fyrir þá hörðustu þá er Fram sigur á 2,35.
Mate Dalmay
Fyrir leik
Byrjunarliðin Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá sigrinum á ÍA. Axel Óskar Andrésson, Aron Jóhannsson, Sigurpáll Melberg Pálsson og Elmar Kári Enesson Cogic fara út úr liðinu en Bjarni Páll Linnet Runólfsson, Aron Jónsson, Sævar Atli Hugason og Þórður Gunnar Hafþórsson koma inn þeirra í stað.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir eina breytingu frá sigrinum á FH. Þorri Stefán Þorbjörnsson fær sér sæti á bekknum og Fred kemur inn í hans stað en Fred hefur ekki byrjað leik síðan í byrjun maímánaðar vegna meiðsla.
Fyrir leik
Mosfellsbær í fyrsta sinn í 8-liða úrslitum Eldingin hefur aldrei áður komist í 8-liða úrslit í bikarkeppninni. Það má því búast við því að Mosfellingar fjölmenni á völlinn í kvöld. Hér er um að ræða stystu leiðina í Evrópu og Afturelding aldrei verið færri leikjum frá stórum titli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Bikar Baddi spáir markaleik og framlengingu Baldvin Már Borgarsson spáði í spilin fyrir 8-liða úrslitin en hann von á markaleik hér í Mosfellsbænum.

Afturelding 2 - 2 Fram (Afturelding í framlenginu 4-2)
Slagurinn um Úlfarsfellið verður spennandi, Mosfellingar komast yfir en Vuk Oskar hefur verið sjóðandi og kemur Fram í 1-2, Benjamin Stokke jafnar leikinn seint í seinni hálfleik. Í framlengingu lenda Framarar í Hrannari Snæ sem er eins og vélmenni, Hrannar skorar seiglumark með hraða sínum og krafti og lokar svo leiknum með því að sækja víti sem Stokke klárar, Gísli Elvar, Biggi smiður, Svanni fasteignasali og allt þetta fríða föruneyti heldur áfram að syngja, tralla og telja seðla þarna í Mosfellsbænum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiðin í 8-liða úrslitin Afturelding tryggði sig í 8-liða úrslitin með því að leggja af velli ÍA á Skipaskaga í 16-liða úrslitum 1-0 með marki frá Aroni Jóhannssyni. Þar áður hafði Afturelding slátrað Hetti/Huginn í 16-liða úrslitum 5-0.

Fram vann einnig sterkan útisigur í 16-liða úrslitum þegar liðið heimsótti KA-menn fyrir norðan og sótti sterkan 4-2 sigur. Fram fékk einnig krefjandi drátt í 32-liða úrslitum þegar liðið vann sterkan 1-0 sigur á FH með marki Más Ægissonar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkominn í Mosfellsbæinn, hér á Malbiksstöðinni að Varmá fer fram leikur Aftureldingar og Fram í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson ('74)
10. Fred Saraiva ('86)
12. Simon Tibbling
16. Israel Garcia
19. Kennie Chopart (f)
23. Már Ægisson ('55)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Bjarki Arnaldarson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson ('86)
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson
6. Tryggvi Snær Geirsson
11. Magnús Þórðarson ('74)
15. Jakob Byström
21. Óliver Elís Hlynsson
25. Freyr Sigurðsson ('55)
32. Hlynur Örn Andrason
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Hlynur Jónsson
Gareth Thomas Owen
Friðgeir Bergsteinsson
Kirian Elvira Acosta

Gul spjöld:
Sigurjón Rúnarsson ('67)

Rauð spjöld: