
Fjölnir
0
5
Þór

0-1
Ibrahima Balde
'6
0-2
Ibrahima Balde
'42
Snorri Þór Stefánsson
'62

0-3
Hermann Helgi Rúnarsson
'66
0-4
Ibrahima Balde
'78
0-5
Aron Ingi Magnússon
'84
27.06.2025 - 18:00
Fjölnisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Fjölnisvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
13. Snorri Þór Stefánsson (m)

3. Reynir Haraldsson (f)
4. Þengill Orrason
7. Óskar Dagur Jónasson

10. Kristófer Dagur Arnarsson
('55)

11. Bjarni Þór Hafstein
('78)

14. Daníel Ingvar Ingvarsson
('78)

16. Mikael Breki Jörgensson
('55)


23. Hilmar Elís Hilmarsson

26. Einar Örn Harðarson
('64)

45. Rafael Máni Þrastarson
- Meðalaldur 22 ár
Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
('64)

15. Fjölnir Sigurjónsson
('78)

18. Þorkell Kári Jóhannsson
('78)

20. Egill Otti Vilhjálmsson
('55)

21. Baltasar Þór Laufarsson
27. Sölvi Sigmarsson
('55)

77. Axel Freyr Ívarsson
- Meðalaldur 20 ár
Liðsstjórn:
Gunnar Már Guðmundsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Kristinn Þór Guðmundsson
Auðun Loki Kormáksson
Gul spjöld:
Óskar Dagur Jónasson ('17)
Mikael Breki Jörgensson ('55)
Hilmar Elís Hilmarsson ('74)
Rauð spjöld:
Snorri Þór Stefánsson ('62)
Skýrslan: Einstefna frá upphafi til enda – Þór gjörsigraði Fjölni
Hvað réði úrslitum?
Gestirnir mættu vel stemmdir til leiks, en heimamenn virtust hvergi vera. Fyrri hálfleikurinn reyndist heimamönnum erfiður, á meðan gestirnir frá Akureyri sýndu mikinn kraft og ákveðni. Leikurinn var algjör einstefna, og stundum virtist eins og liðin væru úr sitthvorri deildinni – svo mikill var munurinn á þeim.
Bestu leikmenn
1. Ibrahima Balde
Það sem kemur fyrst upp í huga er að Ibrahima var fullorðinn karlmaður að spila með táningum. Fjölnismenn réðu einfaldlega ekkert við hann og þó svo að hann hefði ekki skorað þrennu þá væri hann samt maður leiksins, slíkir voru yfirburðir hans hér í kvöld.
2. Aron Ingi Magnússon
Hann var virkilega flottur hér í kvöld og það var auðvelt að sjá hvers vegna hann hefur spilað með U-19 landsliðinu. Hann sýndi hæfileika sína vel – skoraði eitt mark og lagði upp tvö önnur. Fjöldi sókna Þórsara fór í gegnum hann.
Atvikið
Þar sem leikurinn var algjör einstefna, verð ég að nefna atvikið sem átti sér stað á 17. mínútu. Þá fór Óskar Dagur Jónasson í glórulausa tæklingu á Vilhelm Ottóssyni. Tæklingin hefði auðveldlega átt rautt spjald skilið, en Óskar fékk aðeins gult. Eftir leik sagði Siggi, þjálfari Þórs, mér að Vilhelm hefði verið svo kvalinn af sársauka að hann var næstum því búinn að kasta upp og verður frá í dágóðan tíma.
|
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Þórsarar eru komnir á flug – þeir hafa nú haldið hreinu í tveimur leikjum í röð og geta farið að huga að því að blanda sér í toppbaráttuna. Fyrir Fjölni er þetta hins vegar þungur skellur, sérstaklega í ljósi glæsilegs 4–1 sigurs í síðustu umferð. Nú gæti liðið endað á botni deildarinnar, allt eftir því hvernig leikur Selfyssinga fer. Þór lagar markatöluna verulega með þessum sigri, á meðan Fjölnir stendur eftir með skaddaða markatölu.
Vondur dagur
Vörnin hjá Fjölni fær þetta skuldlaust. Heilt yfir var varnarleikurinn einfaldlega skelfilegur. Það segir sitt að Ibrahima Balde, sem er um 190 cm á hæð og vegur um 120 kg, gleymdist ítrekað ódekkaður inni í teig heimamanna – hvernig sem það er mögulegt. Í öllum mörkunum voru varnarmistök Fjölnismanna bæði klaufaleg og dýrkeypt.
Dómarinn - 3
Það verður að segjast eins og er – dómgæslan í þessum leik var langt frá því að vera ásættanleg. Gunnar Oddur missti gjörsamlega tökin á leiknum. Fjölmörg gróf brot fóru óséð eða voru ekki metin rétt, þar sem bæði gul og jafnvel rauð spjöld hefðu átt að koma til. Línan í leiknum var óskýr og rangstöðudómar virtust handahófskenndir. Þetta var, að mínu mati, verst dæmdi leikurinn sem ég hef séð á þessu ári.
|
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
5. Yann Emmanuel Affi
6. Ibrahima Balde



7. Orri Sigurjónsson
('70)

9. Rafael Victor
('55)

10. Aron Ingi Magnússon

11. Clement Bayiha
('70)


18. Sverrir Páll Ingason
19. Ragnar Óli Ragnarsson
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
('18)

27. Atli Þór Sindrason
('55)
- Meðalaldur 25 ár


Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
('55)


8. Einar Freyr Halldórsson
('70)

16. Nökkvi Hjörvarsson
('55)

24. Ýmir Már Geirsson
('18)

30. Peter Ingi Helgason
('70)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Halldór Mar Einarsson
Gestur Örn Arason
Stefán Ingi Jóhannsson
Gul spjöld:
Atli Þór Sindrason ('24)
Clement Bayiha ('54)
Rauð spjöld: