Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 08:40
Elvar Geir Magnússon
Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi
Powerade
Eberechi Eze í leik með enska landsliðinu.
Eberechi Eze í leik með enska landsliðinu.
Mynd: EPA
Guehi er orðaður við Liverpool.
Guehi er orðaður við Liverpool.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Riðlakeppni HM félagsliða er að baki og 16-liða úrslitin hefjast á morgun. Hér er slúðurpakki dagsins í boði Powerade. BBC tók saman það helsta sem er í umræðunni.

Arsenal mun mæta erkifjendunum í Tottenham í baráttunni um Eberechi Eze (26) leikmann Crystal Palace og enska landsliðsins. Hann er verðlagður á 68 milljónir punda. (Sun)

Arsenal mun reyna við Eze, sem væri ódýrari kostur en brasilíski framherjinn Rodrygo (24) hjá Real Madrid. (Talksport)

Liverpool hefur hafið viðræður við Crystal Palace um kaup á varnarmanninum Marc Guehi (24) sem er sagður vilja fara á Anfield í sumar. (Teamtalk)

Napoli og Juventus eru tilbúin að greiða Manchester United 25 milljónir punda fyrir Jadon Sancho (25) en geta ekki boðið honum 250.000 punda vikulaun sín áfram. (Metro)

Manchester United er að kanna möguleika á að fá Warren Zaire-Emery (19) miðjumann Paris Saint-Germain og franska landsliðsins en hann er í miklum metum. (Teamtalk)

Fulham hefur engan áhuga á að selja brasilíska framherjann Rodrigo Muniz (24) þrátt fyrir áhuga frá Leeds. (Sky Sports)

Tottenham metur argentínska miðvörðinn Cristian Romero (27) á yfir 60 milljónir punda og er ekki tilbúið að selja hann til Atletico Madrid fyrir lægra verð. (Telegraph)

Newcastle hefur gert tilboð í brasilíska framherjann Joao Pedro (23) hjá Brighton, enska markvörðinn James Trafford (22) hjá Burnley og sænska kantmanninn Anthony Elanga (23) hjá Nottingham Forest. (Telegraph)

Trafford hefur komist að samkomulagi við Newcastle og viðræður milli félaganna eru í gangi. (Fabrizio Romano)

Manchester United er aftur í fremstu röð um að semja við framherjann Victor Gyökeres (27) hjá Sporting en hann er sagður tilbúinn að vinna aftur með Rúben Amorim. (Mirror)

Fulham hefur áhuga á brasilíska framherjanum Romulo (23) sem skoraði 17 mörk í 33 leikjum fyrir tyrkneska félagið Göztepe á síðasta tímabili. (Athletic)

West Ham er að berjast við Wolves um að fá framherjann Evann Guessand (23) frá Nice en Fílabeinsstrendingurinn er metinn á 25 milljónir punda. (Mail)

Brentford hefur náð samkomulagi við Feyenoord um sóknarmiðjumanninn Antoni Milambo (20) sem er hollenskur U21 landsliðsmaður. (Mirror)
Athugasemdir