Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
KA
0
0
Valur
27.06.2025  -  18:30
Greifavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Dómarateymið Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður með flautuna hér í kvöld. Gylfi Már Sigurðsson og Bryngeir Valdimarsson verða honum til aðstoðar og Twana Khalid Ahmed er varadómari. Þóroddur Hjaltalín er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Styttist í markametið Liðin hafa haft misjöfnu gengi að fagna á þessu tímabili. KA hefur verið í miklum vandræðum en liðið er í næst neðsta sæti með tólf stig. Liðið hefur skorað tíu mörk og fengið á sig tuttugu. KA hefur skorað fæst mörk og í 3. sæti ásamt Stjörnunni yfir flest mörk fengin á sig. Ásgeir Sigurgeirsson er markahæsti leikmaður liðsins með fjögur mörk en aðrir hafa aðeins skorað eitt mark.

Valur er í 3. sæti fimm stigum á eftir toppliði Víkings. Liðið hefur skorað 30 mörk og fengið á sig sautján. Næst flest mörk skoruð og í 5. sæti yfir fæst mörk fengin á sig. Patrick Pedersen er markahæsti leikmaður deildarinnar með 12 mörk og hann nálgast markametið fræga. Hann þarf aðeins fjögur mörk til að jafna markamet Tryggva Guðmundssonar í efstu deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góða kvöldið Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og Vals í 13. umferð Bestu deildarinnar.
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: