Fotbolti.net
Anton Ingi Leifsson
1. deild karla
Grindavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
4 - 2
Völsungur
Völsungur
0 - 134' Hafþór Mar Aðalgeirsson 0 - 243' Hafþór Mar Aðalgeirsson Daníel Leó Grétarsson 55'1 - 2Denis Sytnik 74'2 - 2Stefán Þór Pálsson 76'3 - 2Stefán Þór Pálsson 79'4 - 2
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkominn í þessa beinu textalýsingu frá Grindavíkurvelli.

Hér er Völsungur í heimsókn í leit að sínum fyrsta sigri í 1. deildinni. Leikurinn hefst klukkan 16:00, en innan skamms birtast byrjunarliðin hér til hliðanna.
Fyrir leik
Eins og fyrr segir er Völsungur enn í leit að sínum fyrsta sigri og situr á botninum með eitt stig. Staðan er hins vegar mun betri hjá Grindavík sem hafa verið að spila vel og eru í öðru sæti með níu stig, og geta með sigri tyllt sér á toppinn.
Fyrir leik
Grindavík hefur skorað flest mörk í deildinni eða tólf talsins en Völsungur fæst, einungis tvö mörk.
Fyrir leik
Dómari í dag er Guðmundur Ársæll Guðmundsson. Honum til aðstoðar eru þeir Andri Vigfússon og Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson. Eftirlitsdómari er Ingi Jónsson.
Fyrir leik
Liðin eru kominn út á völl og fer leikurinn senn að hefjast.
1. mín
Leikurinn er hafinn.
2. mín
Grindvíkingar byrja þetta af krafti. Stefán Þór með hörkuskot, Sveinbjörn í smá vandræðum en nær að verja.
13. mín
Völsungar áttu skemmtilega sókn rétt áðan, en Sigvaldi Þór gaf skelfilega sendingu fyrir markið.

Lítið sem ekkert um færi samt.
17. mín
Óli Baldur í færi, en Sveinbjörn með svakalegt úthlaup og nær að bjarga.
19. mín
Jósef Kristinn með hörkuskot sem Sveinbjörn nær að verja, en boltinn beint út í teiginn og Péter Odrobéna nær að koma boltanum frá.
22. mín
Flott sókn hjá Vösungi, en léleg fyrsta snerting hjá Halldóri Orra og Óskar nær að grípa knöttinn.
27. mín
Ekki komið eitt færi í þennan leik. Þá meina ég alvöru færi, ekki hálffæri. Alltaf þegar ég hef komið í Grindavíkina á þessu tímabili hefur verið fullt af mörkum. Vonandi fara þau að koma á færibandi!
Völsungur
34. mín
MAAAARK!

Hafþór Mar Aðalgeirsson

MARK! Völsungur komið yfir. Eftir mikla þvögu eftir hornspyrnu, datt boltinn fyrir Hafþór Mar sem þrumaði boltanum í netið!
41. mín
Alexander Magnússon með skot/fyrirgjöf sem endar í slánni! Þarna skall hurð nærri hælum.
43. mín
Eftir fína sókn fékk Scott Ramsay ágætis færi, en þrumaði boltanum yfir markið.
Völsungur
43. mín
MAAAARK!

Hafþór Mar Aðalgeirsson

ÞAÐ HELD ÉG NÚ! 2-0. Hafþór Mar fékk stoðsendingu inn fyrir og afgreiddi það meistaralega framhjá Óskari í markinu.
45. mín
Kominn hálfleikur í Grindavík! Óvænt tíðindi í hálfleik að minnsta kosti, en allur síðari hálfleikurinn er eftir. Sjáumst eftir 15 mínútur!
Grindavík
46. mín
InnDenis Sytnik
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Grindavík
46. mín
InnDaníel Leó Grétarsson
ÚtÓli Baldur Bjarnason
Tvöföld skipting í hálfleik.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn.
Völsungur
51. mín
Gult spjald

Guðmundur Óli Steingrímsson

Fyrir peysutog.
52. mín
Grindvíkingar vildu fá víti þegar Juraj Grizelj var felldur í teignum, en Guðmundur Ársæll dæmir ekkert.
Völsungur
54. mín
Gult spjald

Péter Odrobéna

Fyrir ljótt brot á Daníel Leó.
Grindavík
55. mín
MAAAARK!

Daníel Leó Grétarsson

MARK! Þvílíkt hörkuskot frá Daníel Leó og Sveinbjörn réð ekkert við skotið!
57. mín
Juraj Grizelj með skot úr aukaspyrnu sem Sveinbjörn ver vel.
63. mín
Stefán Þór Pálsson í kjör stöðu á fjærstönginni eftir hornspyrnu, en skýtur boltanum yfir markið.
Völsungur
65. mín
InnPétur Ásbjörn Sæmundsson
ÚtPéter Odrobéna
Sonur Siggu Kling er kominn inná!
Grindavík
74. mín
MAAAARK!

Denis Sytnik

MARK! Grindavík er búið að jafna metinn. Eftir ágætis útfærða sókn upp vinstri kantinn kom fyrirgjöf þar sem Grindvíkingur skallaði boltann í stöngina, boltinn útí teiginn þar sem Sytnik var og kláraði færið.
Grindavík
76. mín
MAAAARK!

Stefán Þór Pálsson (stoðsending: Juraj Grizelj)

JÆJA! Grindavík komið yfir! Eftir magnaðan undirbúning frá Juraj kláraði Stefán færið frábærlega.
Völsungur
78. mín
InnÁsgeir Sigurgeirsson
ÚtArnþór Hermannsson
Grindavík
79. mín
MAAAARK!

Stefán Þór Pálsson (stoðsending: Juraj Grizelj)

Hvað er að gerast! Copy/Paste. Juraj áfram með frábærar fyrirgjafir og nú skallar Stefán boltann í netið.
Völsungur
82. mín
Gult spjald

Hafþór Mar Aðalgeirsson

85. mín
Ásgeir Sigurgeirsson í dauðafæri, en skýtur framhjá!
Grindavík
87. mín
InnHafþór Ægir Vilhjálmsson
ÚtJuraj Grizelj
Habbó inn! Juraj af velli eftir frábæra frammistöðu, þá sérstaklega í síðari hálfleik.
90. mín
Leik lokið. Takk fyrir mig!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.