Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
1. deild karla
Fjölnisvöllur
Fjölnir
Fjölnir
2 - 4
BÍ/Bolungarvík
BÍ/Bolungarvík
Illugi Þór Gunnarsson 11'1 - 01 - 142' Max Touloute1 - 254' Nigel Francis Quashie1 - 380' Nigel Francis QuashieJúlíus Orri Óskarsson 88'2 - 32 - 490' Ben J. EversonGuðmundur Karl Guðmundsson 90'
Dómari: Kristinn Jakobsson
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Fjölnis og BÍ/Bolungarvíkur í 5. umferð 1. deildar karla.

Fjölnir er í 8. sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig út úr fyrstu fjórum leikjunum.

Gestirnir í BÍ/Bolungarvík eru í heldur betri málum, í fjórða sæti með 9 stig og skáka toppliði Leiknis takist þeim að vinna í dag.
1. mín
Leikurinn er hafinn. Afar fáir áhorfendur eru mættir en einhverjir eru þó að mæta seint að íslenskum sið.
4. mín
Max Touloute kemst í færi eftir varnarmistök hjá Fjölni. Atli Már Þorbergsson fer aðeins í hann en ekkert er dæmt. Boltinn fer síðan út í teiginn á Gunnar Má Elíasson sem þrumar hátt yfir.
BÍ/Bolungarvík
10. mín
Gult spjald

Nigel Francis Quashie

Quaeshie fær fyrsta gula spjaldið fyrir brot á Ágústi
Fjölnir
11. mín
MAAAARK!

Illugi Þór Gunnarsson

Fjölnismenn komast yfir. Eftir stutta hornspyrnu átti Aron Sigurðarson skot fyrir utan teig sem Michael Abnett bjargaði á línu. Boltinn barst síðan út á vítateigslínu þar sem Illugi skoraði með fínu viðstöðulausu skoti.
22. mín
Rólegt yfir leiknum eftir markið. Fjölnismenn þó öllu líklegri til að bæta við ef eitthvað er.
31. mín
Guðmundur Karl Guðmundsson á skot sem er að sigla í fjærhornið þegar leikmenn BÍ/Bolungarvíkur bjarga. Ómar Hákonarson fær síðan boltann en Alejandro ver frá honum. Fín sókn hjá Fjölni.
40. mín
Fyrsta marktilraun skástriksins í langan tíma. Hafsteinn Rúnar Helgason með langskot sem er nær því að hitta markatöfluna en markið. Hafsteinn er góður skotmaður en hitti boltann illa þarna.
BÍ/Bolungarvík
42. mín
MAAAARK!

Max Touloute

Max Touloute skorar eftir góðan einleik í kjölfarið á skyndisókn. Þórður Ingason kom langt út á móti en Max var á undan í boltann skoraði framhjá honum. 1-1 og allt í járnum.
45. mín
Kristinn Jakobsson flautar til leikhlés. Nokkuð sanngjörn staða og spennandi síðari hálfleikur framundan.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn og liðin eru óbreytt.
Fjölnir
51. mín
Gult spjald

Guðmundur Böðvar Guðjónsson

Kristinn spjaldar Guðmund fyrir leikaraskap. Guðmundur féll í teignum eftir bárattu við Max Touloute og vildi fá vítaspyrnu en Kristinn var ekki á sama máli.
BÍ/Bolungarvík
54. mín
MAAAARK!

Nigel Francis Quashie

BÍ/Bolungarvík nær forystunni. Alexander Veigar Þórarinsson gerði vel á miðjunni og kom boltanum fram völlinn. Nigel Quashie fékk boltann við vítateigshornið og lék síðan inn á miðjuna þar sem hann skoraði með skoti fyrir utan vítateig. Þórður var í boltanum en það dugði ekki. Vel gert hjá Quashie.
59. mín
Ágúst Örn fær dauðafæri á fjærstönginni eftir fyrirgjöf frá hægri en Alejandro ver frábærlega. Ágúst nær frákastinu en skot hans fer framhjá úr þröngu færi.
Fjölnir
63. mín
InnGuðmundur Pétursson
ÚtAron Sigurðarson
Ágúst Þór Gylfason þjálfari Fjölnis gerir breytingu.
65. mín
Gunnar Már á hörkuskot fyrir BÍ/Bolungarvík en boltinn fer rétt yfir.
73. mín
Fjölnismenn eru ekki líklegir til að jafna þessa stundina. Stigin þrjú lílkega á leið á Vestfirðina.
74. mín
Eða hvað? Guðmundur Pétursson með þrumuskot sem Alejandro ver í horn.
BÍ/Bolungarvík
75. mín
InnMatthías Kroknes Jóhannsson
ÚtHafsteinn Rúnar Helgason
BÍ/Bolungarvík
78. mín
InnDaniel Osafo-Badu
ÚtMax Touloute
BÍ/Bolungarvík
80. mín
MAAAARK!

Nigel Francis Quashie

Nigel Quashie er að sigla stigunum í höfn fyrir BÍ/Bolungarvík. Quashie vinnur boltann af Illuga á miðjunni og hann og Ben Everson komast tveir á móti einum varnarmanni. Ben sendir á endanum boltann á Quashie sem skorar af yfirvegun.
Fjölnir
82. mín
InnHaukur Lárusson
ÚtHilmar Þór Hilmarsson
Rauði turninn Haukur Lárusson er miðvörður en nú er honum hent í fremstu víglínu. Hálfgerður Peter Crouch fílíngur.
Fjölnir
82. mín
InnJúlíus Orri Óskarsson
ÚtÁgúst Örn Arnarson
Fjölnir
88. mín
MAAAARK!

Júlíus Orri Óskarsson

Varamaðurinn Júlíus Orri minnkar muninn með þrumuskoti upp í bláhornið. Virkilega vel gert. 2-3 og spenna framundan síðustu mínúturnar.
89. mín
Fjölnismenn eru með fjóra menn í fremstu víglínu og freista þess að jafna.
90. mín
Matthías Kroknes kemst í fínt færi eftir góðan undirbúning Quashie en Þórður Ingason ver.
BÍ/Bolungarvík
90. mín
MAAAARK!

Ben J. Everson

Ben Everson vinnur boltann af Bergsveini og vippar síðan framhjá Þórði í markinu. Varnarleikur Fjölnis aftur slakur.
Fjölnir
90. mín
Rautt spjald

Guðmundur Karl Guðmundsson

Guðmundur Karl fær beint rautt spjald fyrir að brjóta á Daniel Badu á miðjunni. Annað rauða spjald Guðmundar í sumar og hann er á leið í tveggja leikja bann.
BÍ/Bolungarvík
90. mín
InnLoic Mbang Ondo
ÚtNigel Francis Quashie
Leik lokið!
Leik lokið með sigri BÍ/Bolungarvíkur þar sem tvö mörk Nigel Quashie skiptu miklu máli í síðari hálfleiknum. Nánari umfjöllun um leikinn kemur á Fótbolta.net innan tíðar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.