Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Besta-deild karla
AVIS völlurinn
KR
KR
1 - 2
KA
KA
0 - 165' Hallgrímur Mar Steingrímsson0 - 269' Hallgrímur Mar SteingrímssonAron Sigurðarson 71'1 - 2
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Grímsi með sýningu – og KR lætur tækifærið renna sér úr greipum

Hvað réði úrslitum?

KA-menn voru beittari í sóknarleiknum og sköpuðu sér fleiri og betri marktækifæri en KR. Leikurinn var skemmtilegur og bæði lið áttu sín augnablik, en gestirnir voru heilt yfir sterkari og hefðu vel getað verið 2-0 yfir í hálfleik. Þá ber einnig að nefna Grímsa, sem átti stóran þátt í úrslitum dagsins

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Valið var mjög auðvelt í dag. Grímsi var langbesti maðurinn á vellinum – ekki bara vegna þeirra tveggja marka sem hann skoraði, framlagið hans í þessum leik var í sérflokki. Hann átti stóran þátt í spilinu, fiskaði fjölda aukaspyrna og stóð sig vel í varnarvinnunni

2. Ívar Örn Árnason

Það voru nokkrir leikmenn KA sem komu til greina sem næstbesti maður vallarins í dag. Ingimar Stöle, Rodrigo og Hans Viktor áttu allir góðan leik og lögðu sitt af mörkum. Þrátt fyrir það ætla ég að velja fyrirliðann sem næstbesta mann leiksins. Það er engin tilviljun að munurinn á varnarleik liðsins í dag og gegn Val í síðustu umferð var eins og svart og hvítt. Hann var einstaklega sterkur í loftinu í dag. Þess má einnig geta að Eiður Gauti sást lítið til í leiknum, sem segir allt sem segja þarf.

Atvikið

Það verður að vera 1–0 markið þegar Grímsi kemur KA yfir með glæsilegri aukaspyrnu. Hann fiskar sjálfur aukaspyrnuna– og fylgir því eftir með frábærri afgreiðslu í heimsklassa. Þetta var sannarlega augnablik sem setti tóninn fyrir framhaldið.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða heilmikið fyrir bæði þessi lið. KR missti af tækifæri til að tryggja sér í efri hluta deildarinnar með sigri. KA menn eru um stundar sakir hið minnsta komnir úr fallsæti og með aðstoð Sjörnumanna annað kvöld haldið sér þar. Það er ljóst að þessi þrjú stig geta skipt sköpum þegar líður á sumarið

Vondur dagur

Þennan titil fær Eiður Gauti Sæbjörnsson í dag enda gerði hann nánast ekkert í leiknum. Það eina sem situr eftir í minningunni er neikvætt atvik: þegar hann komst í álitlega stöðu rétt fyrir utan teig en átti afleita sendingu ætluð Ástbirni sem KA menn hreinsuðu burt. Hann vann engin einvígi, hélt illa í boltann og virtist aldrei finna taktinn í leiknum.

Dómarinn - 9

Það er gaman að geta sagt frá því loksins að dómari leiksins dæmdi leikinn frábærlega í dag. Ég gat ekki séð betur en að Elías Ingi dæmdi allt rétt og Gummi Ben við hliðina á mér upp í stúku var sammála.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.