Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetGuðmundur Jónasson
Vestri
Vestri
Besta-deild karla
Kerecisvöllurinn
0 - 2
Valur
Valur
0 - 118' Tryggvi Hrafn Haraldsson0 - 278' Patrick Pedersen (víti)
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Sterkur sigur hjá Valsmönnum.

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn voru betri í fyrri hálfleik og náðu inn marki snemma leiks og fá svo víti í lok leiks sem klára þetta fyrir þá!

Bestu leikmenn

1. Tryggvi Hrafn

Tryggvi var öflugur, skoraði gott mark og gerði vel þegar hann fékk boltann

2. Patrick Pedersen

Var bara flottur í dag, fiskaði víti og skoraði úr því

Atvikið

Brotið á Cafu Photo inn í teig Valsmanna í stöðunni 1-0 en ekkert dæmt. Hefði Vestri fengið víti hefðu þeir getað jafnað leikinn og það hefði mögulega breytt öllu

Hvað þýða úrslitin?

Valur komnir í 2.sæti og Vestri ennþá í 6.sæti

Vondur dagur

Gunnar Oddur var ekki góður, dæmdi á mörg soft brot út á velli og klikkaði svo á stórum dóm í stöðunni 1-0 fyrir Val, Vestri hefðu átt að fá víti en hann dæmir aukaspyrnu fyrir Val.

Dómarinn - 4

Mér fannst hann frekar slakur í dag, var að dæma á mikið út á velli og klikkaði á stóru atviki að mínu mati!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.