SKÝRSLAN: KR-ingar keyra fjörðin og eru í alvarlegri stöðu
Hvað réði úrslitum?
Skaginn lokaði bara á markið sitt. Mér leið einu sinni eins og KR var að fara að skora á Skagann og það var þegar Aron Sig fékk nokkra sénsa inni á teig ÍA en Árni varði bara trekk í trekk í því augnabliki.
Bestu leikmenn
1. Árni Marínó Einarsson
Var gjörsamlega stórkostlegur í dag. Greip allt sem hann þurfti að grípa, varði nokkrum sinnum frábærlega í sömu sókninni og var mjög öruggur í sínum aðgerðum í dag. Virkilega flottur.
2. Rúnar Már Sigurjónsson
Lagði upp sigurmarkið og var að stýra spilinu á miðsvæði Skagamanna. Frábær og sýndi hversu mikilvægur og góður hann er fyrir Skagaliðið.
Atvikið
Klárlega sigurmarkið sem varamaðurinn Ísak Máni skorar. Ólsarinn klobbaði Halldór í markinu eftir frábæra sendingu Rúnars Más Sigurjónssonar í gegnum varnarlínu KR.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn eru ekki lengir á botni deildarinnar og eru einungis einu stigi frá KR sem eru í 10. sætinu. Þetta er einnig fyrsta sinn í sumar sem það gerist að KR skorar ekki í leik. Staðan er hins vegar orðin alvarleg fyrir Vesturbæinga. Einu stigi frá falli og tveir tapleikir í röð gegn ÍA og KA sem eru neðstu tvö lið deildarinnar.
Vondur dagur
Mér fannst Gabríel Hrannar vera í veseni í dag. Hann fór illa með góðar stöður í fyrri hálfleiknum og svo fannst mér allt opnast á hans hlið í seinni hálfleiknum. Ómar Björn átti líka ekki góðan dag fyrir Skagann.
Dómarinn - 8
Ég sá ekkert að þessari dómgæslu hjá Helga í dag þannig. Auðvitað einn til tveir litlir dómar út á velli sem maður er ósammála en annars vel dæmt.




