Fotbolti.net
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Selfoss
Selfoss
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
0 - 1
ÍR
ÍR
0 - 119' Guðjón Máni Magnússon
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: ÍR með iðnaðarsigur austur fyrir fjall - Selfoss klaufar fyrir fram markið

Hvað réði úrslitum?

Úrslitin réðust á einu marki – Guðjón Máni skoraði á 19. mínútu eftir klaufagang í vörn Selfyssinga. ÍR skapaði sér fjölda bæði hálffæra og dauðafæra, en Robert Blakala stóð vaktina með glæsibrag og átti stórleik. Selfyssingar fengu einnig sín tækifæri, en tókst ítrekað að klúðra þeim áður en þau þróuðust í raunveruleg dauðafæri

Bestu leikmenn

1. Robert Blakala

Átti stórleik hér í dag og varði þrisvar sinnum einn á móti sóknarmanni ÍR. Gat ekkert gert í markinu en hann hélt sínum mönnum inni í leiknum engin spurning. Var líka flottur í spilinu og öryggi uppmálað

2. Guðjón Máni Magnússon

Skoraði gott mark sem skildu liðinn að, en annars var enginn annar í leiknum sem stóð upp úr. ÍR fékk fjölda færa, en Robert Blakala stóð vaktina vel og varði allt sem á markið kom fyrir utan þetta eina auðvitað.

Atvikið

Raúl kórónaði slaka frammistöðu sína á 70. mínútu þegar hann fór illa með sitt fjórða dauðafæri í leiknum. Þulirnir uppi í stúku gátu lítið annað en hrist höfuðið – orð vantaði yfir annað eins klúður.

Hvað þýða úrslitin?

ÍR fer aftur á topp Lengjudeildarinnar með vinnusigri í kvöld og er nú einu stigi á undan Njarðvík. Selfyssingum tekst ekki að skapa sér svigrúm frá fallbaráttunni og geta þakkað fyrir að Völsungur jafnaði í blálokin – það tryggði að Fjölnir næði þeim ekki að stigum að sinni

Vondur dagur

Þetta var því miður fyrir Raúl Tanque alls ekki erfið ákvörðun í dag. Hann fékk ófá dauðafæri, en annað hvort rann hann, hitti ekki boltann eða var allt of lengi að taka ákvörðun. Virkaði hægur líka almennt í leiknum. Selfyssingar bíða sárt eftir endurkomu Jóns Daða – hann hefði varla farið svona illa með færin.

Dómarinn - 8

Góð frammistaða hjá Arnar Þór og hans teymi. Í fljótu bragði kemur ekkert sérstakt upp í hugann sem vert er að gagnrýna. Hann gaf gult spjald þegar tilefni var til og leyfði leiknum að flæða – meira er vart hægt að biðja um
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.