SKÝRSLAN: Rautt spjald sem hafði gríðarlega mikil áhrif
Hvað réði úrslitum?
Afturelding byrjaði leikinn gríðarlega vel og voru ofan á í nánast allan fyrri hálfleikinn. Á 40. mínútu gerist það hinsvegar að Axel Óskar hendir sér í glórulausa tæklingu og fær sitt annað gula spjald og var sendur í sturtu. Stjarnan kom með hærra orkustig inn í síðari hálfleikinn og gékk frá leiknum með fjórum góðum mörkum.
Bestu leikmenn
1. Benedikt V. Warén (Stjarnan)
Benedikt Warén var gríðarlega öflugur í seinni hálfleiknum. Fór fyrir sóknarleik Stjörnunnar í seinni hálfleik. Kom sér í færi og skapaði færi. Benedikt skoraði og átti eina stóðsendingu í kvöld.
2. Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Andri Rúnar er gríðarlega öflugur sem fremsti maður hjá Stjörnnuni. Andri Rúnar skoraði mark og hefði geta skorað fleiri. Jóhann Árni var einnig mjög góður inn á miðsvæðinu hjá heimamönnum. Hjá Gestunum var Hrannar Snær gríðarlega kraftmikill en hraði hans ógnaði oft varnarmönnum Stjörnunnar í fyrri hálfleiknum þegar jafnt var í liðum.
Atvikið
Rauða spjaldið - Axel Óskar á gulu spjaldi hendir sér í glórulausa tæklingu á Alex Þór og það er atvik sem litaði leikinn gríðarlega mikið.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan eru komið aftur á sigurbraut en liðið situr í fimmta sæti deildarinnar með 24.stig. Afturelding situr í því sjöunda með 19.stig.
Vondur dagur
Axel Óskar - Þetta er rosalega auðvelt val. Má alveg segja að hann hafi kostað sínu liði en þetta rauða spjald hafði gríðarleg áhrif á leikinn.
Dómarinn - 7
Sigurður Hjörtur og hans menn voru fínir í dag. Rauða spjaldið var hárrétt en Sigurður Hjörtur var rosalega spjalda glaður í kvöld.




