SKÝRSLAN: Jafntefli í leik tveggja hálfleikja
Hvað réði úrslitum?
Vestramenn voru mun hættulegri í fyrri hálfleik. Afturelding var mjög mikið með boltann en gerðu lítið við hann á meðan skyndisóknir Vestra voru mjög góðar. Afturelding bætti svo sinn sóknarleik í seinni hálfleik og náðu að skapa fleiri færi, og uppskáru jöfnunarmarkið. Jafntefli sanngjörn niðurstaða af mínu mati.
Bestu leikmenn
1. Hrannar Snær Magnússon (Afturelding)
Erfitt að velja menn í þessa dálka í kvöld þar sem það voru margir sem áttu góðan leik, enginn sem átti framúrskarandi leik. Hrannar var allt í öllu í sóknaraðgerðum Aftureldingar og fiskaði vítið sem þeir skora úr.
2. Thipang Phete (Vestri)
Fyllir inn fyrir Eið Aron í vörninni og gerði það frábærlega. Cafu eins og hann er kallaður, stöðvaði ótal margar sóknir sem Afturelding fór í.
Atvikið
Á 88. mínútu er Afturelding grátlega nálægt því að skora sigur markið. Arnór Gauti fær boltann inn í teig og á laust skot á markið þar sem hann er í litlu jafnvægi. Eiður Aron er þá mjög vel staðsettur og nær að hreinsa, bókstaflega á línunni.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri heldur 6. sætinu og eru með 23 stig. Þeir eru núna sex stigum á undan fallsæti. Afturelding er í 8. sæti með 20 stig, þremur stigum frá bæði fallsæti og efri helmingnum.
Vondur dagur
Annar dálkur sem er erfitt að velja menn í. Diego Montiel gerði tilkall í að vera einn af betri leikmönnum vallarins, en hann braut einnig á sér í vítinu og verður pínu skúrkurinn eftir það.
Dómarinn - 7
Þó nokkur atvik í þessum leik og erfitt að segja hvort Vilhjálmur og hans teymi hafi gert rétt í. Vítið er hárrétt, það er spurning með markið sem þeir dæma af Vestra. Rangstaðan þar var mjög tæp, og ég get ómögulega séð á upptöku hvað er rétt. Þá var Magnús Már gríðarlega ósáttur með gula spjaldið sem Elmar Kári færi fyrir leikaraskap, og alveg hægt að skilja það. Heilt yfir vel dæmt, en eitthvað af vafa atriðum.




