Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetFannar Bjarki Pétursson
FHL
FHL
Besta-deild kvenna
Fjarðabyggðarhöllin
0 - 2
FH
FH
0 - 178' Elísa Lana Sigurjónsdóttir0 - 280' Elísa Lana Sigurjónsdóttir
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai

SKÝRSLAN: FH sótti 3 stig austur

Hvað réði úrslitum?

Gæðin í lokin, FHL áttu mjög fínan dag og munaði engu að þær kæmust í 1-0 rétt áður en FH komst yfir. Svo var það gott skot frá Elísu sem braut ísinn. FHL verða að fara nýta sína sénsa þegar þær fá þá.

Bestu leikmenn

1. Elísa Lana

Skorar bæði mörk FH og fyrra markið var af dýrari gerðinni, Þurfti einhvað svoleiðis til að brjóta ísinn, Flottur leikur hjá Elísu.

2. Andrea Rán

Hélt boltanum vel þegar hún fékk hann og reyndi að skapa fyrir liðsfélaga sína, Mjög góð á boltanum og sterk í návígum. Flott í dag.

Atvikið

Markið sem braut ísinn, Flott skot fyrir utan frá Elísu sem drap alla trú í heimakonum.

Hvað þýða úrslitin?

FHL ennþá stigalausar í deildinni , FH-ingar eru hinsvegar í 2.sæti deildarinnar og halda áfram að gera mjög flotta hluti í sumar.

Vondur dagur

FHL liðið barðist og barðist , En fá á sig tvö mörk seint í leiknum og ennþá með 0 stig. Hljóta að vera mjög sárar og svekktar inní klefa

Dómarinn - 8

Lét leikinn fljóta vel, Spurning um víti samt sem FHL hefðu átt að fá þegar boltinn fór í höndina á leikmanni FH.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.