SKÝRSLAN: Fjörugt jafntefli fyrir norðan
Hvað réði úrslitum?
Menn segja að mörk breyta leikjum og það átti svo sannarlega við í dag. Leikurinn tók nýja stefnu við hvert skorað mark og úr varð hin mesta skemmtun.
Bestu leikmenn
1. Liam Daði Jeffs
Kom inná með látum í hálfleik og skoraði tvö góð mörk.
2. Gunnar Kjartan Torfason
Var alveg frábær í vörn Völsungs í dag og lagði upp fyrra mark heimamanna.
Atvikið
Jöfnunarmark Arnars Pálma. Markið kom eftir harða sókn heimamanna. Sigurvin þjálfari Þróttar var verulega ósáttur með að markið hafi fengið að standa.
Hvað þýða úrslitin?
Völsungur er enn í 7.sæti og Þróttur enn i 5.sæti. Semsagt það breyttist ekkert.
Vondur dagur
Ég bara hreinlega man ekki ekki eftir nokkrum sem átti eitthvað sérstaklega slæman dag.
Dómarinn - 7
Sá heilt yfir lítið athugavert við frammistöðu Sveins í dag.


