Sancho á leið til Ítalíu - Bayern í viðræðum við Chelsea - Arsenal og Man Utd á eftir leikmanni PSG
Í BEINNI
Besta-deild karla
Breiðablik
LL 4
5
FH
Njarðvík
2
3
Þróttur R.
Sigurjón Már Markússon '12 1-0
1-1 Kári Kristjánsson '42
1-2 Aron Snær Ingason '43
Freysteinn Ingi Guðnason '46 2-2
2-3 Viktor Andri Hafþórsson '48
Arnar Freyr Smárason '86
17.08.2025  -  14:00
JBÓ völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Skýjað en viðrar vel til fótbolta
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Maður leiksins: Kári Kristjánsson
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Davíð Helgi Aronsson
3. Sigurjón Már Markússon
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Joao Ananias ('79)
9. Oumar Diouck
10. Valdimar Jóhannsson ('68)
11. Freysteinn Ingi Guðnason ('61)
13. Dominik Radic ('79)
16. Svavar Örn Þórðarson ('68)
19. Tómas Bjarki Jónsson (f)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Daði Fannar Reinhardsson (m)
5. Arnar Helgi Magnússon
8. Kenneth Hogg ('79)
17. Símon Logi Thasaphong ('79)
18. Björn Aron Björnsson ('68)
21. Viggó Valgeirsson ('68)
29. Ali Basem Almosawe ('61)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Arnar Freyr Smárason
Sigurður Már Birnisson
Viktor Þórir Einarsson
Jaizkibel Roa Argote
Gabríel Sindri Möller

Gul spjöld:
Oumar Diouck ('8)
Davíð Helgi Aronsson ('37)

Rauð spjöld:
Arnar Freyr Smárason ('86)
Leik lokið!
Þróttarar eru fyrstir til að vinna Njarðvíkinga í sumar! Þróttarar hleypa titilbaráttunni upp í háaloft og galopna hana!

Fyrsta tap Njarðvíkinga staðreynd í sumar.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Rétt framhjá! Almo með tilraun rétt framhjá markinu!

Þetta er að fjara undan Njarðvíkingum og Þróttarar virðast vera taka öll stigin hérna.
93. mín
Þetta var tækifæri!! Arnleifur Hjörleifsson með langan bolta fram og Oumar Diouck kemur sér fram fyrir og kemur með bakfallspyrnu rétt framhjá markinu!

Jaaahérna!
92. mín
DAUÐAFÆRI!! Oumar Diouck fær boltann á fær eftir hornspyrnu en skóflar honum yfir!
91. mín
Fáum við dramatík í þetta?
89. mín
Inn:Kolbeinn Nói Guðbergsson (Þróttur R.) Út:Hrafn Tómasson (Þróttur R.)
88. mín
Njarðvíkingar með þunga pressu að marki Þróttara en vörn Þróttara heldur.
86. mín Rautt spjald: Arnar Freyr Smárason (Njarðvík)
Aðstoðarþjálfari Njarðvíkur fær að líta rauða spjaldið Allt annað en sáttur þegar virtist brotið á Almo við varamannabekk Njarðvíkinga en ekkert dæmt.


Fær að líta rautt.
83. mín
Inn:Viktor Steinarsson (Þróttur R.) Út:Unnar Steinn Ingvarsson (Þróttur R.)
83. mín
Inn:Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
82. mín
Njarðvíkingar eru að leita af jöfnunarmarkinu. Eru að pressa vel.
79. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík) Út:Dominik Radic (Njarðvík)
79. mín
Inn:Kenneth Hogg (Njarðvík) Út:Joao Ananias (Njarðvík)
75. mín
Viktor Andri með skemmtilega takta en skotið beint á Aron Snær Friðriksson.
71. mín
Njarðvíkingar eru í allskyns vandræðum varnarlega.
68. mín
Inn:Viggó Valgeirsson (Njarðvík) Út:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík)
68. mín
Inn:Björn Aron Björnsson (Njarðvík) Út:Svavar Örn Þórðarson (Njarðvík)
67. mín
Þróttur að sleppa í gegn en flaggið á loft við litla hrifningu gestana.
64. mín
Viktor Andri með skot beint á Aron Snær Friðriksson.
63. mín
Varsla! Allskonar bras í vörn Njarðvíkinga og Kári Kristjáns fær gott skot inni í vítaveig Njarðvíkinga en Aron Snær Friðriksson ver þetta virkilega vel!
61. mín
Inn:Ali Basem Almosawe (Njarðvík) Út:Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík)
60. mín
Njarðvíkingar að koma sér í fína stöðu en Davíð Helgi dæmdur brotlegur.
57. mín
Bras í öftustu línu Njarðvíkinga en þeir sleppa með það.
55. mín
Njarðvíkingar vilja víti Tomas Bjarki fer niður í teignum og heldur um höfuðið!

Jóhann Ingi stoppar leikinn en hann dæmir þó ekki víti.
53. mín
Freysteinn Ingi lyftir boltanum inn á teig og Valdimar Jóhannsson nær að flikka honum en í gegnum allan pakkann.
51. mín
Varsla! Frábær sókn hjá Njarðvíkingum og Oumar Diouck í flottu færi en Þórhallur Ísak sér við honum!

Það er hasar í upphafi seinni!
48. mín MARK!
Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.)
Þróttarar svara strax! Sækja upp vinstri vænginn og og boltinn berst á Viktor Andra sem lætur bara vaða í fjærhornið og sækir forystuna aftur fyrir Þróttara!

ÞRÓTTARAR LEIÐA AFTUR!
46. mín MARK!
Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík)
Stoðsending: Oumar Diouck
ÞVÍLÍK BYRJUN! Njarðvíkingar koma boltanum út á Oumar Diouck og hann á frábæran bolta fyrir markið beint í hættusvæðið þar sem Freysteinn Ingi Guðnason mætti og stangaði boltann í netið!

ALLT JAFNT!
46. mín
Njarðvíkingar sparka þessu af stað aftur
46. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.) Út:Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
Breyting í hálfleik hjá Þrótti
45. mín
Hálfleikur
Gunni Helga klárar þetta! 3-1!

45. mín
Hálfleikur
Teitur klikkar! Beint á markið og er gripið!
45. mín
Hálfleikur
Gunni Helga skorar! Tekur skemmtilegt tilhlaup og setur hann öruggan í hornið uppi!
45. mín
Hálfleikur
Teitur Örlygs svarar! 1-1
45. mín
Hálfleikur
Gunnar Helgason skorar! Alveg út við stöng!

45. mín
Hálfleikur
Vítaspyrnukeppni að hefjast Teitur Örlygs mætir Gunnari Helgasyni í vítaspyrnukeppni.

Gunni Helga byrjar..
45. mín
Hálfleikur
Þróttur leiða í hálfleik eftir tvö mörk á rúmlega mínútu.

Verða áhugaverðar 45 mínútur í seinni hálfleiknum.
43. mín MARK!
Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
Þróttur skora aftur! Svipuð uppskrift og í fyrra markinu nema núna er það Aron Snær Ingason sem í stað þess að koma með boltann fyrir þá köttar hann inn og læggur hann í fjær!

ÞRÓTTARAR BÚNIR AÐ SNÚA ÞESSU!
42. mín MARK!
Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
Þróttur jafna! Sækja upp hægri og koma boltanum fyrir markið þar sem Kári Kristjánsson hamrar boltanum svo í netið úr miklu kraðaki í teignum!

ALLT JAFNT!
40. mín
Færi! Þróttarar hættulegir eftir horn og ná að koma boltanum fyrir aftur á fjær þar sem Kári Kristjánsson mætti og hamraði boltanum í hliðarnetið!
37. mín Gult spjald: Davíð Helgi Aronsson (Njarðvík)
Sparkar boltanum burt eftir flaut.. Ódýrt spjald að fá
34. mín
Freysteinn Ingi með frábæran snúning og reynir skot sem Þróttarar ná að henda sér fyrir en boltinn berst á Tómas Bjarka og hann kemur sér í gott skotfæri og á skot sem fer af varnarmanni og framhjá.
32. mín
Hætta í teignum hjá Njarðvík eftir hornspyrnu en Njarðvíkingar koma þessu frá.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Aron Snær Ingason reynir skot en Sigurjón Már nær að vera fyrir.
26. mín
Þróttarar reyna að finna plás á bakvið vörn Njarðvíkinga fyrir Liam Daða Jeffs til að hlaupa í.
22. mín
Njarðvíkingar vinna boltann hátt uppi og Dominik Radic veður af stað og fer svo niður í baráttunni við Bald Hannes en ekkert dæmt.
20. mín
Varsla! Þróttarar sækja hratt og Kári Kristjáns á gott skot sem Aron Snær Friðriksson ver vel.

Flaggið svo á loft en hvort það sé á frákastið eða sóknina er ég ekki viss.
18. mín
Njarðvíkingar verið hættulegir hér í upphafi leiks.
17. mín
Njarðvíkingar sækja hratt og Dominik Radic með skot sem Eiríkur Þorsteinsson Blöndal kemst fyrir og Njarðvíkingar fá horn.
15. mín
Hættuleg fyrirgjöf fyrir mark Njarðvíkinga en Aron Snær Friðriksson markvörður Njarðvíkur kemst á milli.
12. mín MARK!
Sigurjón Már Markússon (Njarðvík)
Stoðsending: Arnleifur Hjörleifsson
Njarðvíkingar komnir yfir! Arnleifur Hjörleifsson með frábæra hornspyrnu og Sigurjón Már Markússon rís þar hæst í teignum og nær frábærum skalla í færhornið!

NJARÐVÍKINGAR LEIÐA!!
8. mín Gult spjald: Oumar Diouck (Njarðvík)
Brotlegur í baráttu við Unnar Stein.
5. mín
Kári Kristjánsson með aukaspyrnu inn á teig sem ratar á Liam Daða Jeffs á fjær en hann nær engri stjórn á boltanum og boltinn hátt yfir.
2. mín
Njarðvíkingar fá fyrsta horn leiksins Dominik Radic sækir það.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta farið af stað! Það eru gestirnir sem eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Allir leikirnir í Lengjudeildinni eru á Livey


Fyrir leik
Vítakeppni í hálfleik sem verður að sjálfsögðu textalýst!
Fyrir leik
Spámaðurinn Guðmundur Magnússon, nýr sóknarmaður Breiðabliks, spáir í leikina sem eru framundan.

Mynd: Breiðablik


Njarðvík 2 - 2 Þróttur R.
Njarðvíkur herinn virðist ekki geta tapað og það verður engin breyting á því. Þróttur er með skemmtilegt lið og mikill uppgangur hjá þeim sem ber að hrósa. Markajafntefli sem breytir þó engu, Njarðvík er að fara vinna þessa deild. Jeffsie jr. heldur áfram að skora og Njarðvík skorar úr víti!


Fyrir leik
Njarðvík Njarðvíkingar hafa átt frábært sumar og leiða deildina með fjögura stiga mun. Þeir gætu með góðum úrslitum í dag og hagstæðum úrslitum á öðrum völlum endað daginn með sex stiga forskot þegar lítið er eftir af deildinni.

Njarðvíkingar mega þó ekki sofna á verðinum því það er stutt í næstu lið ef þeir fara að misstíga sig. Njarðvíkingar eru efstir með 37 stig og hafa skorað 40 mörk. Þessi mörk hafa raðast niður á:

Oumar Diouck - 11 mörk
Dominik Radic - 10 mörk
Valdimar Jóhannsson - 3 mörk
Tómas Bjarki Jónsson - 3 mörk
Arnleifur Hjörleifsson - 2 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þróttur Þróttarar unnu frábæran sigur á ÍR í síðustu umferð og stimpluðu sig um leið inn í toppbaráttuna að alvöru. Þeir eru fimm stigum frá toppnum og fá tækifærið í dag þegar þeir mæta einmitt toppliðinu til þess að saxa það forskot niður í tvö stig þegar stutt er eftir af mótinu.

Þróttur sitja í 4.sæti deildarinnar með 32 stig og hafa skorað 33 mörk. Þessi mörk hafa raðast niður á:

Liam Daði Jeffs - 8 mörk
Aron Snær Ingason - 5 mörk
Viktor Andri Hafþórsson - 4 mörk
Kári Kristjánsson - 4 mörk
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson - 3 mörk
Eiríkur Þorsteinsson Blöndal - 3 mörk
*Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið í dag Jóhann Ingi Jónsson heldur utan um flautuna hér í dag og honum til aðstoðar verða Þórður Arnar Árnason og Andri Vigfússon.
Eftirlitsmaður KSÍ er Sigurður G Friðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á JBÓ Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem heimamenn taka á móti Þrótti Reykjavík í átjándu umferð Lengjudeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
4. Njörður Þórhallsson
7. Hrafn Tómasson ('89)
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason ('83)
33. Unnar Steinn Ingvarsson ('83)
80. Liam Daði Jeffs ('46)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson ('89)
6. Emil Skúli Einarsson
9. Viktor Andri Hafþórsson ('46)
19. Benóný Haraldsson
20. Viktor Steinarsson ('83)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('83)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira
Örn Þór Karlsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: