Leik lokið!
Blendnar tilfinningar að loknum þessum leik sem endar með jafntefli. Gott að hafa náð að jafna úr þeirri erfiðu stöðu sem liðið var í en að sama skapi svekkjandi að hafa ekki hreinlega unnið þennan leik hér í restina.
Heilt yfir verður samt að segjast að þessi gluggi hefur verið vonbrigði hjá liðinu og 1 stig í pokanum eftir leiki gegn liðunum sem áttu að heita þau slökustu í riðlinum ekki það sem stefnt var að.
93. mín
Nömm bjargar Eistum
Benóný Breki í algjöru dauðafæri í teignum en Nömm með stórkostlega vörslu og boltinn í horn.
92. mín
Eggert með boltann fyrir frá vinstri. Benóný fyrstur á boltann en nær ekki góðum skalla sem svífur framhjá.
91. mín
Hinrik!
Með skot sem Nömm ver með herkjum.
Er frekari dramatík í vændum?
90. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti fimm mínútur
87. mín
Mark!
Benoný Breki Andrésson (stoðsending: Hlynur Freyr Karlsson)
Tómas Orri fer leið eitt og neglir boltanum fram völlinn. Hlynur Freyr kassar boltann laglega niður og finnur Benóný úti til vinstri í teignum. Hann dregur boltann með sér framhjá varnarmanni og skorar með góðu vinstri fótar skoti í hornið fjær.85. mín
Við vinnum boltann hátt á vellinum. Eggert Aron með boltann inn á teig Eista og finnur Benóný. Hann á hörkuskot sem fer því miður yfir markið.
82. mín
Egert Õunapuu er sloppinn í gegnum vörn Íslands. Lukas langt frá marki sínu og Eistinn ætlar að nýta sér það. Tilraunin sem betur fer ömurleg og víðsfjarri markinu.
Hann grefur andlitið í lófum sér og veit að hann átt að gera miklu miklu miklu betur.
79. mín
InnGaldur Guðmundsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
Kennir sér meins í kálfa og fer af vella.
76. mín
Ágúst hefur verið einn sá liflegasti á vellinum í dag. Vinnur horn.
Hlynur Freyr í hörkufæri eftir hornið en skallar boltann beint í hendurnar á Nömm.
75. mín
Ágúst Orri með ágætan sprett inn á völlinn frá hægri kantinum. Kemur sér inn á teiginn og rennir boltanum fyrir fætur Tómasar Orra sem á skotið en lyftir boltanum hátt yfir markið.
74. mín
Hinrik dansar með boltann inn á teig Eista og er hársbreidd frá því að vinna sig í skotfæri. Gerist þó brotlegur og ekkert verður úr.
73. mín
Inn Ramon Smirnov
ÚtSoufian Gouram
73. mín
InnEgert Õunapuu
Út Tony Varjund
71. mín
Skotið í vegginn og afturfyrir.
Ísland fær horn.
Heimamenn skalla frá.
70. mín
Gult spjald
Oscar Pihela
Bombar Ágúst Orra niður á svipuðum slóðum og Eistar gerðu mark sitt frá fyrr í leiknum.70. mín
Færumst nær
Fínt spil Íslands við teig Eista endar með skoti frá Helga Fróða úr teignum sem er þó ferkar beint á Nömm sem á ekki í vandræðum með að verja.
68. mín
Hlynur Freyr reynir skot en boltinn beint á Nömm í markinu.
67. mín
Ísland með aukaspyrnu í ágætri stöðu úti til vinstri. Einhver fyrirfram æfð útfærsla reynd sem heppnast engan veginn. Boltinn á fyrsta varnarmann.
65. mín
InnTómas Orri Róbertsson
ÚtJóhannes Kristinn Bjarnason
65. mín
InnHinrik Harðarson
ÚtHilmir Rafn Mikaelsson
65. mín
InnHelgi Fróði Ingason
ÚtKjartan Már Kjartansson
65. mín
Jói Bjarna með stórhættulegan bolta úr aukaspyrnu utan af væng en hún fer í gegnum allan pakkann.
62. mín
Kristofer Käit spilar hættulegan leik og setur hendina af krafti í brjóstkassa Hilmis sem liggur eftir. Ekkert dæmt þó og áfram með leikinn.
60. mín
InnMaksim Kalimullin
Út Tristan Pajo
60. mín
Inn Ramol Sillamaa
Út Kristjan Kriis
60. mín
Heimamenn við það að komast í hörkufæri en Logi Hrafn sterkur í teignum og ekkert verður úr.
57. mín
Eftir ansi rólegar síðustu mínútur vinnur Ísland horn.
Ekkert kemur upp úr því.
53. mín
Gult spjald
Benoný Breki Andrésson
Reynir að klæða markaskorara Eista úr treyjunni þegar heimamenn eru að spila sig út úr pressu.52. mín
Tony Varjund keyrir inn á teiginn og nær fínu skot. Logi Hrafn fyrir því og Ísland kemur boltanum frá.
51. mín
Þessi síðari hálfleikur hefst á keimlíkan hátt og sá fyrri. Ísland heldur boltanum en Eistar standa þétt.
Jóhannes Kristinn með boltann fyrir markið en skallinn frá Hilmi hittir ekki markið.
46. mín
Benóný meö hörkuskot á lofti úr teignum eftir langt innkast frá hægri en Nömm gerir vel og slær boltann frá.
Fínt að láta vita af okkur strax í byrjun.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Ísland sparkar okkur af stað á ný.
45. mín
Flautað til hálfleiks í Tallinn. Marki undir og manni færri lítur ekki vel út en líkt og Elvar Geir skrifaði hér áðan þá er þetta alls ekki búið.
45. mín
+2
Eggert Aron að koma sér í frábært færi í teignum. Tekur boltann með sér framhjá varnarmanni og nær skoti en því miður í varnarmann og þaðan í horn.
45. mín
+1
Uppbótartími fyrri hálfleiks er að lágmarki tvær mínútur.
45. mín
Jörundur Áki Sveinsson yfirmaður fótboltamála fylgist með úr stúkunni. Helvíti brött byrjun hjá íslenska liðinu í þessum riðli og stefnir í tvö töp gegn liðunum sem eiga að vera þau lökustu fyrirfram. Eistarnir hefðu hæglega getað verið búnir að skora fyrr í leiknum og varnarleikurinn okkar mjög brothættur á meðam fram á við skortir okkur hugmyndir og sköpunarmátt.
En þetta er ekki búið. Ég fullyrði að þetta eistneska lið er það slappt að við getum hæglega skorað tvö á það í seinni hálflei,. En þá verður liðið að kveikja miklu betur á sér. Það er klárlega pressa á Ólafi Inga Skúlasyni.
Elvar Geir skrifar frá Tallinn:

42. mín
Algjörar martraðarmínútur að baki fyrir lið Íslands. Ranglátt rautt spjald og mark í kjölfarið. Það verður varla verra.
39. mín
InnLogi Hrafn Róbertsson
ÚtRóbert Frosti Þorkelsson
Skipting eftir rauða spjaldið. Sóknarmanni fórnað fyrir fullmannaða vörn.
39. mín
Minnsti maður vallarins skorar úr aukaspyrnunni!
Tristan Pajo
161 cm á hæð en það skiptir engu. Lyftir boltanum yfir vegginn og í hornið nær. Lukas leit illa út í þessu marki og átti hreinlega að verja þetta.37. mín
Ekki tók það langan tíma að sækja annað
Júlíus Mar Júlíusson
Og við endursýningar er þetta bara gjörsamlega galið hjá Redder! Júlíus í baráttu við Varjund og við fyrstu sýn virtist hann vera of seinn í Eistann. Endursýningar sýna hins vegar að Júlíus kemur bara aldrei við hann, Ekkert VAR hér en það hefði engu breytt þar sem um seinna gula er að ræða.35. mín
Gult spjald
Júlíus Mar Júlíusson
Tekur á sig spjaldið gegn hinum nautsterka Tony Varjund. Keyrir hann snyrtilega í grasið.og uppsker gult.34. mín
Mikkel Redder danski dómari leiksins er greinilega ákveðinn persónuleiki. Hikar ekki við að láta menn aðeins heyra það og stoppa þá af.
33. mín
Benóný með fyrirgjöf frá vinstri inn á teiginn. Hilmir Rafn ætlar að ráðast á boltann en Robert Veering skallar frá.
31. mín
Baldur Kári í fínni stöðu eftir sendingu frá Róberti Frosta en finnur ekki samherja í teignum og ekkert verður úr.
30. mín
Gult spjald
Jani Sarajärvi
Eitthvað tuð hjá þjálfara Eista. Biður um gult spjald á Íslending með látbragði. Danski Redderinn biður hann að róa sig og spjaldar hann. Að biðja áberandi um gult er gult.25. mín
Kristjan Kriis hefur verið í færum fyrir heimamenn í leiknum í kvöld en ekki nýtt þau.
Hann minnir mig furðulega mikið á persónu Emils í Kattholti í gömlu barnamyndunum sem flestir hafa séð.
Vantar bara hattinn.
23. mín
Kristjan Kriis í enn meira dauðafæri
Sleppur einn innfyrir eftir snögga sókn Eista.
Lúkas mætir út úr markinu en hittir ekki boltann. Kriis með opið markið en setur boltann hárfrínt framhjá frá vinstra vítateigshorni.
Við erum heppnir að vera ekki undir!
22. mín
Benóný í dauðafæri!
Eggert Aron með frábæra sendingu inn á teiginn frá hægri beint á tærnar á Benóný. Hann tekur skotið í fyrsta en Nömm gerir vel í að vera fljótur niður og handsama boltann.
20. mín
Örlítill þungi færist í sóknarleik Íslands þegar við þrýstum heimamönnum fast niður við vítateig. Sóknin rennur þó út í sandinn þegar Ágúst Orri smellir boltanum fyrir markið beint í fang Nömm í marki Eista.
18. mín
Ísland verið meira með boltann þessar fyrstu mínútur en lítið sem ekkert skapað sér. Heimamenn átt svör við öllu því sem Ísland hefur boðið upp á til þessa.
14. mín
Róbert Frosti með hættulegan bolta fyrir markið úr aukaspyrnu frá hægri. Eistar koma boltanum frá.
10. mín
Gult spjald
Robert Veering
Alltof seinn í Ágúst Orra og uppsker réttilega gult spjald.9. mín
Ísland brunar upp og vinnur hornspyrnu.
9. mín
Kristjan Kriis í dauðafæri eftir frábært spil heimamanna sem tæta vörn Íslands í sig.
Sem betur fer hittir Kriis ekki á markið og við sleppum með skrekkinn.
7. mín
Hilmir Rafn beitir skrokknum í teignum og er hársbreidd frá því að vinna sig í fína stöðu.
Eistar koma boltanum frá.
2. mín
Íslenska liðið stendur hátt strax i upphafi og dagsskipunin virðist vera að pressa öftustu línu Eista stíft.
1. mín
Þetta er farið af stað í Tallinn. Það eru heimamenn sem eiga upphafsspyrnu leiksins.
0. mín
Elvar Geir skrifar frá Tallinn:
Hinn eistneski tvífari Gunnars Ormslev er vallarþulur kvöldsins og er búinn að kynna lið til leiks. Nú er verið að leika þjóðsöngvana. Allt klárt í blíðunni í Tallinn. Íslenska liðið er í hvítum treyjum í dag.

0. mín
Einhverjir Íslendingar myndu hneykslast á því sem á sér stað hér í Tallinn. Hér á vellinum er seldur bjór og áhorfendur mega njóta hans í sætunum sínum í stúkunni. Samt eru börn og allt hérna. En eins og við vitum þá er líklegt að allt muni á endanum sjóða upp úr....
Elvar Geir skrifar frá Tallinn:

0. mín
Íslenska liðið er mætt út á völlinn í upphitun og vallartaflan sýnir að það sé 27 gráðu hiti.
Það voru fáir leikmenn íslenska liðsins að finna sig í tapinu gegn Færeyjum og Ólafur Ingi gerir þrjár breytingar. Verður fróðlegt að sjá hvernig mennirnir sem koma inn standa sig.
Logi Hrafn var í miklum vandræðum í vörninni og Júlíus Mar tekur sæti hans. Breyting er í vinstri bakvarðarstöðunni og Róbert Frosti kemur einnig inn.
Svo verður að hrósa plötusnúðnum hér á vellinum. Shaggy og Shakira eru meðal þeirra sem fá að óma um þetta hverfi Tallinn sem völlurinn er staðsettur í.
Elvar Geir skrifar frá Tallinn:

0. mín
Byrjunarlið Íslands komið í hús
Ólafur Ingi Skúlason gerir þrjár breytingar á liðinu sem beið lægri hlut gegn Færeyjum á dögunum. Logi Hrafn Róbertsson, Nóel Atli Arnórsson og Helgi Fróði Ingason fá sér sæti á varamannabekknum. Inn í liðið i þeirra staða koma þeir Júlíus Mar Júlíusson, Baldur Kári Helgason og Róbert Frosti Þorkelsson.

0. mín
Dagurinn hefur verið sólríkur í hinni frábæru borg Tallinn og hitinn fór mest upp í einhverjar 27 gráður. Það verða um 23 gráður þegar flautað var til leiks. Ég rakst á Ólaf Inga Skúlason þjálfara og fleiri úr teyminu þegar þeir voru í göngutúr um hjarta gamla bæjarins í dag.
Leikvangurinn sem spilað er á er af gamla skólanum. Vallarflöturinn sjálfur er þó góður og það skiptir mestu máli. Búningsaðstaðan þykir minna á íþróttahús Fellaskóla. Þessi leikvangur var þjóðarleikvangur Eista í gamla daga, áður en landið var hernumið af Sovétríkjunum. Í dag er þetta helsti frjálsíþróttavöllur landsins.
Fróðir menn hér á svæðinu segja að það eigi að taka leikvanginn algjörlega í gegn á næsta ári, breyta og bæta. Ekki vanþörf á.
Elvar Geir skrifar frá Tallinn:

0. mín
Nóg af því sem liðið er. Eistland bíður.
Andstæðingur dagsins er Eistland. Þeir hafa þegar leikið tvo leiki í riðlunum og tapað þeim báðum.
Þeir hófu leik gegn Færeyjum á útivelli og máttu þar þola 2-1 tap gegn frændum okkar sem sitja nú á toppi riðilsins.
Eistar voru svo á ferðinni í Sviss um liðna helgi og mættu þar heimamönnum. Stigalausir héldu þeir heim til Tallinn eftir 2-0 tap en vonast eflaust eftir sínum fyrstu stigum gegn særðu Íslensku liði í dag.
0. mín
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net tók leikinn fyrir.
Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson stóðu vaktina í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-977 síðastliðin laugardag. Þar ræddu þeir um síðasta leik Íslands gegn Færeyjum og veittu lítinn afslátt af gagnrýni sinni.
07.09.2025 10:51
„Ef þú tapar fyrir Færeyjum ertu settur undir hita“
0. mín
Ísland þarf að svara.
Það má segja að fyrri leikur íslenska liðsins í þessum glugga hafi valdið miklum vonbrigðum. 2-1 tap á heimavelli gegn Færeyjum varð niðurstaðan síðastliðin fimmtudag.
04.09.2025 22:46
Vandræðalegt í Laugardalnum - Skákaðir af frændum okkar
04.09.2025 20:34
Ólafur Ingi eftir tap gegn Færeyjum: Áfall fyrir okkur að byrja svona
0. mín
Leikdagur í Tallinn
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Eistlands og Íslands í Undankeppni EM U21 árs liða.





