SKÝRSLAN: Gríðarlega mikilvægur sigur Leiknis
Hvað réði úrslitum?
Í grunninn fannst mér leikurinn vera kaflaskiptur. Bæði lið sköpuðu sér ágætlega mikið af færum og svo endar þetta með sturluðu marki sem vann þennan leik fyrir Leikni
Bestu leikmenn
1. Axel Freyr Harðarson
Hljóp eins og brjálæðingur allan leik og skapaði mörg færi
2. Haukur Óli Jónsson
Haukur spilaði vel í þessum leik og átti nokkrar mikilvægar vörslur en var óheppinn að ná að verja ekki seinna mark Leiknis
Atvikið
Klárlega markið hjá Aroni á 94 mínútu. Virðist vera að það hafi verið hrint leikmanni Fjölnis og Aron ákveður að láta vaða vinstra megin hjá bekk Leiknis sem fer í fallegum boga yfir Hauk Óla og inn.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknir halda sér uppi í Lengjudeildinni og enda tímabilið í 9. sæti.
Fjölnir kveðja því miður Lengjudeildina og spila í 2. deild að ári í fyrsta sinn síðan 2003.
Vondur dagur
Það var enginn sem átti neinn vondan dag, leikmenn beggja liða stóðu sig vel í þessum leik.
Dómarinn - 8
Mjög vel dæmt hjá Gunnari í dag.



