SKÝRSLAN: Fjórði sigur ÍA en KR ennþá í fallsæti
Hvað réði úrslitum?
ÍA taka hörku þrjú stig með flottum mörkum og flottum varnarleik. Halda KR í skefjum en fá á sig kolvitlausan vítadóm.
Bestu leikmenn
1. Viktor Jónsson
Mark og stoðsending, fór lítið fyrir honum þangað til ALLT GAKK UPP. Það er hægt að stóla á Viktor, þrjú mörk í þremur síðustu leikjum ÍA.
2. Jón Gísli
Föstu leikatriðin voru hans, frábær hornspyrna og tók innkastið sem hann notaði svo til að koma ÍA yfir í 1-0.
Atvikið
Vítadómurinn verður umdeildur og líklegast það atvik að KR eru í veseni á töflunni.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA með enn einn sigurinn og komnir með 28 stig og eftir umferðina með að minnsta kosti þriggja stiga mun á liðunum í fallsætinu.
KR að tapa sínum þriðja í röð og komnir í hrikalega brekku fyrir síðustu þrjár umferðir. Eru þremur stigum frá Vestra sem spila á morgun.
Vondur dagur
Það verður ekki bjartara í Vesturbænum í þessari umferð. Fengu gefins víti til að komast aftur í leikinn en gátu alls ekki gengið á lagið. Næst neðsta sæti og þurfa svo sannarlega að vonast eftir Vestra tapi á morgun. En framundan eru tveir heimaleikir og það verður allt gefið í þá.
Dómarinn - 4
Kolvitlaus vítadómur sem hleypti KR aftur í leikinn og mikill pirringur frá báðum liðum á vellinum út í flautuna í dag.



