SKÝRSLAN: Keflavík á meðal þeirra bestu á ný
Hvað réði úrslitum?
Lið Keflavíkur virtist bara vera mun tilbúnara í verkefnið í dag en mótherjar þeirra í HK. Þeir höfðu þetta extra þennan X faktor sem HK einfaldlega réði ekki við. Sigurinn var á allan hátt sanngjarn og ekki hægt að segja annað en að Keflavík hafi staðið HK framar á öllum sviðum fótbolta í da.
Bestu leikmenn
1. Muhamed Alghoul
Algjörlega frábær í dag. Þrjár stoðsendingar í fyrri hálfleik og var allt í öllu í sóknarleik Keflavíkur. Yfirvegaður á boltanum og gerði nánast allt rétt.
2. Viktor Elmar Gautason
Átt erfitt uppdráttar til þessa í treyju Keflavíkur en þegar mest var undir ákvað hann að skína skært. Tengdi vel við félaga sína í dag og var í sífelldum áætlunarferðum upp vinstri vænginn.
Atvikið
Þriðja mark Keflvíkinga drap alla von hjá HK. Að gamla brýnið Frans Elvarsson hafi skorað það gaf Keflvíkingum eitthvað aðeins auka leika. Hann fagnaði líka á glæsilegan hátt og sýndi það að þrátt fyrir að vera fæddur árið 1990 að þá er hann líklega í mun betra standi en flestir á vellinum.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík leikur í Bestu deildinni að ári eftir tveggja ára fjarveru. HK verður áfram í Lengjudeildinni að ári en lið mega vara sig því þeir verða væntanlega bara betri þá.
Vondur dagur
Það er ekki sanngjarnt að draga neinn út fyrir sviga hér. HK liðið sem heild var bara ekki á sínum degi og réðu ekki við verkefnið í þetta sinn.
Dómarinn - 10
Vilhjálmur og hans teymi voru með allt sitt í teskeið í dag. Það var mikið undir og menn létu alveg finna fyrir sér en teymið hafði gríðarlega góð tök á leiknum.


