Fotbolti.net
Besta deildin
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild karla - Efri hluti
Kópavogsvöllur
3 - 1
Fram
Fram
Kyle Douglas Mc Lagan (sjm) 4'1 - 0Höskuldur Gunnlaugsson 22'2 - 02 - 140' Jakob ByströmKristinn Jónsson 45'3 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Sannfærandi sigur Breiðabliks á Kópavogsvelli

Hvað réði úrslitum?

Blikar voru miklu aggressívari og orkumeiri. Framarar voru ólíkir sjálfum sér og bara ósannfærandi í sínum aðgerðum. Það er spurning hvað olli því en það má auðvitað nefna að Framarar hafa í rauninni engu að keppa, á meðan heimamenn eiga enn tölfræðilegan möguleika á evrópusæti. Fyrri hálfleikur Breiðabliks er með því betra sem hefur sést frá liðinu á þessu tímabili. Þeir voru skeinuhættari og mikið beinskeyttari en oft áður í sóknarleiknum.

Bestu leikmenn

1. Kristinn Jónsson

Kristinn Jónsson bjó til fyrsta markið þegar fyrirgjöfin fór í Kyle og skorar svo þriðja markið. Hann er virkilega sprækur í bakverðinum og eðlilega mikill munur á Blikaliðinu þegar hann er með þeim.

2. Höskuldur Gunnlaugsson

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var einnig mjög sprækur á miðsvæðinu í dag. Hann var alltaf hættulegur og markið hans ansi snyrtilegt.

Atvikið

Atvikið var klárlega fyrsta mark Framara. Það var eins mikið þvert gegn gangi leiksins og hugsast gat. Það var einnig mjög áhugavert í því marki hvernig Jakob Byström náði að troða sér á milli Damir og Viktors og afgreiða boltann í netið.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Breiðablik kemst í 39 stig en þeir eru þá tveimur stigum á eftir Stjörnunni sem eru í þriðja sætinu. Þeir eiga því enn raunhæfan möguleika á evrópusæti og mæta Stjörnunni í lokaumferð en það gæti atvikast þannig að liðin muni spila hreinan úrslitaleik um evrópusæti. Framarar geta komið sér upp í fimmta sætið en þeir eru jafnir að stigum við FH. Hins vegar glötuðu þeir möguleika sínum á fjórða sætinu í kvöld.

Vondur dagur

Þetta finnst mér skrifast á varnarlínu Fram en ef það þarf að velja einn, þá er það Kyle McLagan. Hann átti erfitt uppdráttar í leiknum og skorar sjálfsmark. Hann var óstöðugri en oft áður og gaf stundum boltann klaufalega frá sér, eins og fleiri í varnarlínu Fram.

Dómarinn - 8

Dómari leiksins, Ívar Orri Kristjánsson, steig ekki feilspor í leiknum en þetta var svo sem ekkert mjög erfiður leikur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.