Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Boginn
Þór/KA
Þór/KA
1 - 1
Fram
Fram
0 - 135' Lily Anna FarkasKaren María Sigurgeirsdóttir 58'1 - 1
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Áhorfendur: 112
Leik lokið!
ÓTRÚLEGT!
Rosalegur darraðadans inn á teignum. Þór/KA náði einhverjum þremur skotum á markið en varnarmenn Fram komust fyrir, sýndist sóknarmaður flækjast einu sinni fyrir. Þór/KA endar efst í neðri hlutanum, tveimur stigum á undan Fram. Þetta var eina jafntefli Þórs/KA á tímabilinu.
91. mín
Þremur mínútum bætt við.
90. mín
Vörn Þór/KA frekar opin. Eyrún Vala Harðardóttir í góðu færi en setur boltann framhjá.
87. mín
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir slæsar boltann framhjá. Boltinn barst til hennar eftiir að Ellie Rose Moreno var of lengi að athafna sig inn á teignum og skaut í varnarmann.
Fram
86. mín
InnThelma Lind Steinarsdóttir
ÚtUna Rós Unnarsdóttir
Fram
86. mín
InnÓlína Sif Hilmarsdóttir
ÚtLily Anna Farkas
Þór/KA
82. mín
InnEmelía Ósk Kruger
ÚtAmalía Árnadóttir
79. mín
Mackenzie Elyze Smith í dauðafæri á fjærstönginni eftir hornspyrnu en nær ekki að setja boltann á markið.
Fram
76. mín
InnSylvía Birgisdóttir
ÚtMurielle Tiernan
71. mín
Alda Ólafsdóttir komst í hörkufæri en Agnes Birta Stefánsdóttir með frábæra tæklingu.
Þór/KA
70. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Þór/KA
70. mín
InnÍsey Ragnarsdóttir
ÚtSonja Björg Sigurðardóttir
Þór/KA
70. mín
InnEllie Rose Moreno
ÚtKaren María Sigurgeirsdóttir
68. mín
Karen María reynir aftur skot en í þetta sinn fer boltinn yfir.
Fram
65. mín
InnEyrún Vala Harðardóttir
ÚtKatrín Erla Clausen
Þór/KA
58. mín
MAAAARK

Karen María Sigurgeirsdóttir

Karen María lætur vaða fyrir utan teiginn og boltinn svífur yfir Ashley og í netið. Ashley nagar sig í handabökin, hefði getað gert betur.
54. mín
Hulda Björg Hannesdóttir með sendingu fram völlinn. Amalía Árnadóttir kemst í boltann við endalínu og sendir fyrir en Ashley Brown Orkus bjargar í horn. Smá darraðadans inn á teignum eftir hornið en Ashley nær boltanum að lokum.
51. mín
Kamila Elise Pickett kemst í góða stöðu en hún skýtur í varnarmann og Jessica ver.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Una Rós sparkar þessu af stað.
45. mín
Hálfleikur
Flautað af um leið og klukkan slær 45. Bragðdaufur fyrri hálfleikur en við fengum eitt mark samt sem áður.
43. mín
Algjört miðjumoð eftir markið.
Fram
35. mín
MAAARK!

Lily Anna Farkas (stoðsending: Una Rós Unnarsdóttir)

Una Rós Unnarsdóttir leggur boltann til Lily sem er komin inn á teiginn og leggur boltann framhjá Jessicu.
34. mín
Karen María með skotið inn á vítateignum en boltinn rétt framhjá
24. mín
Fyrsta almennilega færi leiksins! Murielle Tiernan með boltann inn á teignum og nær að snúa en skotið beint á Jessicu Berlin. Murielle fær boltann aftur og sendir á Lily Anna Farkas en aftur er skotið beint á Jessicu.
16. mín
Hulda Ósk Jónsdóttir með boltann á vinstri kantinum. Fer inn á teiginn og fer auðveldlega framhjá vörn Fram en enginn á teignum til að taka á móti sendingunni.
12. mín
Þarna var tækifæri fyrir Þór/KA. Karen María með fyrirgjöf en boltinn of innarlega fyrir Sonju.
11. mín
Karen María Sigurgeirsdóttir með skot fyrir utan teiginn en það er ekki gott og boltinn fer hátt yfir.
10. mín
Fram verið í sókn undanfarnar mínútur en ekki náð að skapa sérr almennileg færi.
4. mín
Fram fær aukaspyrnu um miðjan vallarhelming KA. Sending meðfram jörðinni inn fyrir vörnina en rangstaða dæmd, klaufalegt.
3. mín
Þór/KA hefur tekið tvö löng innköst en ekki nýtt þau vel.
1. mín
Leikur hafinn
Heimakonur koma þessu af stað
Fyrir leik
Þór/ka er alltaf líklegar á heimavelli og er epic með stuðulinn 1.98 á sigur heimastúlkna
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það eru þrjár breytingar á liði Þór/KA sem vann FHL 3-2 í síðustu umferð. Jessica Berlin er í markinu og Harpa Jóhannsdóttir sest á bekkinn. Karen María Sigurgeirsdóttir og Sonja Björg Sigurðardóttir koma inn í liðið. Ellie Rose Moreno og Bríet Fjóla Bjarnadóttir setjast á bekkinn.

Olga Ingibjörg Einarsdóttir, Dominiqe Evangeline Bond-Flasza, Alda Ólafsdóttir og Lily Anna Farkas koma inn í lið Fram eftir 3-3 jafntefli gegn Tindastóli. Karítas María Arnardóttir, Freyja Dís Hreinsdóttir, Ólína Sif Hilmarsdóttir og Eyrún Vala Harðardóttir detta út úr liðinu.
Fyrir leik
FRÍTT Á LEIKINN Í KVÖLD
Þór/KA býður frítt á leikinn. Sláarkeppni í leikhléi, vegleg verðlaun í boði ELKO.

Fjölmennum og sýnum stelpunum okkar alvöru stuðning, klárum tímabilið með þeim af krafti.
Fyrir leik
Þrjú stig á hvort lið
Liðin mættust tvisvar í deildarkeppninni en útiliðið vann í bæði skiptin. Þór/KA vann fyrri leikinn fyrir sunnan 3-1 þar sem Sandra María Jessen skoraði m.a. tvennu en hún er farin til Köln í Þýskalandi. Fram kom síðan í Bogann og vann 2-1 þar sem Murielle Tiernan skoraði sigurmarkið í uppbótatíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Bergvin Fannar Gunnarsson er með flautuna í kvöld. Patrik Freyr Guðmundsson og Birkir Örn Pétursson eru honum til aðstoðar.
Aðalsteinn Tryggvason er varadómari og Sverrir Gunnar Pálmason eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
Fram
Fram hefur gert mjög vel sem nýliði í deildinni. Liðið hafnaði í 2. sæti í Lengjudeildinni í fyrra og hefur tryggt sér áframhaldandi veru í Bestu deildinni. Liðið er án taps í þremur leikjum í röð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Smári Haraldsson þjálfari Fram
Fyrir leik
Þór/KA
Tímabilið hefur verið vonbrigði hjá Þór/KA. Liðinu tókst alls ekki að byggja ofan á síðasta tímabil þar sem liðið hafnaði í 4. sæti. Liðið getur í besta falli náð 7. sæti í ár en liðið þarf að minnsta kosti stig í kvöld til að ná því en tveimur stigum munar á liðunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA
Fyrir leik
Góða kvöldið
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Fram í lokaumferð Bestu deildar kvenna. Liðin spila í neðri hlutanum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.