SKÝRSLAN: FH tryggði 2. sætið með endurkomusigri
Hvað réði úrslitum?
Þetta var mjög kaflaskiptur leikur sem hefði geta farið báðar áttir. Fyrri hálfleikur var eins jafn og hann gat verið. FH byrjuðu þeim seinni mjög vel, en fáránlegur vítadómur hjá Twana komu Víkingi inn í leikinn og skoruðu tvö mörk. FH sigraði þó leikinn með flottri endurkomu og sigruðu leikinn.
Bestu leikmenn
1. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Mark og stoðsending í þessum leik. Ótrúlega fallegt mark sem kom beint úr hornspyrnu. Verður líklegast valið mark umferðarinnar, trúi ekki öðru.
2. Thelma Karen Pálmadóttir
Var allt í öllu á hægri kantinum hjá FH. Hún vann fullt af hornspyrnum fyrir FH og ein af þeim hornspyrnum minnir mig hafa endað í marki fyrir FH.
Atvikið
Flottasta atvik leiksins var mark Andreu beint úr hornspyrnu. Það var gríðarlega fallegt mark sem maður sér ekki oft.
Hvað þýða úrslitin?
FH tryggir sig 2. sæti deildarinnar og spilar í Evrópukeppni næsta tímabil. Lið sem var að spila í Lengjudeild árið 2022 og er með eitt yngsta liðið deildarinnar. Ótrúlegt tímabil hjá FH í sumar. Víkingur dettur niður í 6. sæti eftir jafntefli Val gegn Blikum.
Vondur dagur
Þetta var mjög jafn leikur í dag, en Víkingar stóðu sig illa í þeim tveim hornspyrnum sem FH skoruðu úr. Í fyrsta er Deja alveg ein og skallar boltanum léttilega í mark. Í því seinna er enginn sem nær snertingu við boltann. Annars var þetta vondur dagur hjá Twana sem lét Víkinga næstum sigra þennan leik eftir fáránlegan vítaspyrnu dóm.
Dómarinn - 3
Eins og ég hef nefnt tvisvar áður, þá var ég ekki sammála þeim vítaspyrnu dóm sem Twana dæmdi fyrir Víkinga sem kom Víkingum í gírinn og skoruðu annað mark strax eftir á. Svo var hann að gefa nokkur gul spjöld og dæma á brot sem voru frekar soft. Alls ekki sérstakur leikur hjá Twana og teyminu hans í dag.




