Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Tindastóll
Tindastóll
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Sauðárkróksvöllur
5 - 2
FHL
FHL
Elísa Bríet Björnsdóttir 8'1 - 0Nicola Hauk 12'2 - 02 - 124' Christa Björg Andrésdóttir2 - 229' Calliste BrookshireMaría Dögg Jóhannesdóttir 39'3 - 2Elísa Bríet Björnsdóttir 48'4 - 2Isabelle Rose Gilmore (sjm) 72'5 - 2
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Markaveisla á Króknum

Hvað réði úrslitum?

Tindastólskonur voru bara betri aðilinn hér í dag, FHL fékk smá vonarglætu þegar þær jöfnuðu leikinn í 2-2 en trúin virðist ekki hafa haldist hjá þeim og Tindastóll náði aftur yfirhöndinni og sleppti ekki takinu aftur. Þær bættu bara í og juku forystuna jafnt og þétt. Hefðu líklega getað skorað fleiri mörk í seinni hálfleiknum

Bestu leikmenn

1. Elísa Bríet Björnsdóttir

Var algjörlega frábær í dag! Setti 2 mörk og átti 2 stoðsendingar. Hún var alltaf hættuleg þegar hún fékk boltann, ótrúlega vinnusöm inn á miðjunni, með baneitraðan spyrnufót og frábæran leikskilning

2. Nicola Hauk

Var mjög flott í dag, öflugur varnarmaður sem átti bæði mark og stoðsendingu í dag! Frábær skallamaður og solid í vörninni hjá Tindastól, Þá má líka alveg minnast á Birgittu Rún og Maríu Dögg sem einnig áttu góðan leik. Set líka shoutout á Sigríði Hrafnhildi, Lillu, sem kom í markið hjá Stólunum þegar um 11. mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Hún átti 3 hörku vörslur í röð.

Atvikið

Alveg hægt að velja nokkur atvik en set þetta á jöfnunarmark FHL, Tindastóll náði að koma sér í 2-0 og það leit svo sem ekkert út fyrir annað en að Tindastóll myndi bara bæta við. Hins vegar á 5 mínútna kafla ná FHL að skora 2 mörk og jafna leikinn. Við það kom trú hjá FHL liðinu og þær voru í raun bara líklegri til að bæta við, allt þar til að María Dögg skoraði þriðja mark Tindastóls.

Hvað þýða úrslitin?

Þessi leikur hafði svo sem engin áhrif þar sem bæði lið voru fallin fyrir leikinn en úrslitin þýða það að Tindastóll endar tímabilið á sigri og endar með 21 stig en FHL hins vegar eru enn með sín 4 stig eftir sumarið.

Vondur dagur

Fannst engin eiga sérstaklega slæman leik í dag en hlýtur að vera vondur dagur hjá Isabelle Rose Gilmore sem varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark, FHL tapar leiknum og svo eiga þær eftir að keyra alla leið á Reyðarfjörð.

Dómarinn - 8

Vel dæmt í dag, Svo sem engar stórar ákvarðanir, e hef held ég ekkert út á þá að setja, setti ákveðna línu og hélt sig við hana.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.